Fréttablaðið - 13.08.2020, Page 10
Lögregla í Minsk í Hvíta-Rússlandi handtók mann sem hugðist setja blóm þar sem mótmælandi lést. Alexander Lu-
kashenko var endurkjörinn forseti með 80 prósentum atkvæða, en stjórnarandstaðan telur brögð í tafli. MYND/EPA
Jimmy Lai, eigandi Apple Daily News, var sleppt úr haldi í Hong Kong í gær. Lai var handtekinn á grundvelli um-
deildra laga um þjóðaröryggi. Blaðið styður lýðræðisumbætur og hefur mál Lais vakið mikla athygli. MYND/EPA
Mótmælendur köstuðu steinum nærri þinghúsinu í Beirút vegna sprengingarinnar þar sem 171 lést. Mikil reiði er í garð yfirvalda og lögregla hefur mætt mótmælunum af hörku. MYND/EPA
Hitamet var sett í Japan í gær er 40,5 gráðu hiti mældist í Kiryu. Náði hitinn
í 39 gráður í úthverfi Tókýó. Mikið er um að vera í vatnsleikjagörðum. Voru
þessi ungmenni ánægð að baða sig í froðu í Toshimaen-garðinum. MYND/EPA
Indverjar héldu trúarhátíðina Sri Krishna Janmashtami. Helgast hátíðin
af bænahaldi, leikritum um ævi guðsins Krishna og föstu. Indverskt barn
klætt sem guðinn Krishna var viðstatt bænahald í Nýju-Delhi. MYND/EPA
ÁSTAND HEIMSINS
1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð