Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 47

Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 47
TÓNLIST Eyþór Ingi Jónsson á Orgel­ sumri í Hallgrímskirkju. Verk eftir Buxtehude, Bach, Magnús Blöndal og Gísla Jóhann Grétarsson Hallgrímskirkja Fimmtudaginn 6. ágúst Einu sinni sótti organisti nokkur um vinnu. Í umsókninni skrifaði hann: „Ég sæki hér með um starf sem organisti við kirkjuna. Þér aug- lýstuð eftir konu eða karlmanni til að leika á orgelið. Undanfarin ár hef ég verið bæði, svo ég ætti að koma sterklega til greina.“ Tónleikar í Hallgrímskirkju í hádeginu fimmtudaginn 6. ágúst voru ekki svona. Karlmaður lék á orgelið, og hann var ekki í drag. Tónskáldin á efnisskránni voru karlmenn. Eitt tónskáldið var meira að segja með geislabaug. Það var Bach. Ýmiss konar vitleysa hefur verið skrifuð um hann. Tónlistar- fólk ber svo mikla virðingu fyrir honum að það er eins og að allt sem var gert fyrir daga hans hafi verið la-la. Frábært tónskáld í sjálfu sér Buxtehude er dæmi um þetta, en hann átti fyrsta verkið á tónleik- unum. Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirkju, lék eftir hann Passakalíu, sem er eins konar dans. Tónlistarfræðingurinn Manfred Bukofzer hélt því fram að Buxte- hude hefði aðeins lagt grunninn að því sem Bach þróaði til fulls. En Buxtehude var frábært tónskáld í sjálfu sér og það sem Eyþór spilaði var fagurt. Leikur hans var vand- virkur og samhljómur ólíkra radda var í senn tær og nostursamlega mótaður. Útkoman var hrífandi. Bach bar sjálfur mikla virðingu fyrir Buxtehude, svo mjög að þegar hann var ungur maður gekk hann 400 kílómetra til að hlusta á hinn aldna snilling spila á orgelið. Það er svona eins og göngutúr frá Reykja- vík til Akureyrar og hefur væntan- lega tekið um viku með stoppum. Ekkert Spotify þar! Spúkí tónlist Næst á dagskránni var tónsmíð af allt öðrum toga. Ionization eftir Magnús Blöndal var samið með hinni svokölluðu tólftónatækni, sem var vinsæl aðferð meðal tón- skálda á tuttugustu öld, en illa liðin af almenningi. Slík tónlist er afar ómstríð og tormelt, og oftar en ekki óhugnanleg. Engu að síður eru til mörg f lott verk af þessum toga, og Ionization er eitt þeirra. Eyþór spilaði það af fagmennsku. Þar voru ýmist gríðarlegir, háværir hljóma- klasar eða einfaldar, dularfullar hendingar sem sköpuðu annarlegt, sterkt andrúmsloft. Túlkun Eyþórs var markviss og áleitin: Spúkí stemningin komst fyllilega til skila. Ánægjuleg heildarmynd Kafli úr sónötu eftir Gísla Jóhann Grétarsson var næstur á dagskrá. Tónlistin var í mjög einföldu, hefð- bundnu formi og var nokkuð fyrir- sjáanleg, en hún var blæbrigðarík í meðförum organistans og heildar- myndin var ánægjuleg. Önnur Passakalía, að þessu sinni eftir Bach, rak svo lestina, og var hún yfirleitt hin glæsilegasta. Ein- staka tónar voru að vísu ekki alveg hreinir, en túlkunin engu að síður stórbrotin, tignarleg og kraftmikil. Ánægjulegt var að sjá hve tón- leikagestir pössuðu vel upp á tveggja metra regluna, ólíkt því sem virðist hafa tíðkast undanfarið á mörgum börum. Í kirkjunni voru um níutíu manns, og hún er svo stór að auðvelt var fyrir gesti að dreifa sér um hana. Þetta var gaman. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Falleg tónlist sem var prýðilega flutt. La-la fyrir Jóhann Sebastian Bach Eyþór Ingi. Leikur hans var vand- virkur, segir gagnrýnandi. Að fenginni reynslu er y f irsk r ift sý n-ingar Kristbergs Ó. Péturssonar í SÍM-hú sinu . Sý ning in s a ma nstendu r a f myndverkum sem gerð eru með þekjulitum og eru frá þessu ári og því síðasta. Á sýningunni eru einnig ljóð eftir Kristberg, sem eru bæði á íslensku og í enskri þýðingu Aðal- steins Ingólfssonar. Í sýningarskrá segir: „Margir eiga bágt í samfélagi okkar. Sumir eru jaðarsettir, utangarðs, jafnvel útskúfaðir og jafnframt í vissum skilningi innilokaðir eða staddir í blindgötu. Við erum stundum fljót að dæma. Það er mikilvægt að gæta virðingar. Allir hafa sögu að segja. Jákvæðni, umburðarlyndi, tillits- semi og trúnaður er mikilvægt. Það er líka mikilvægt að taka fólki eins og það er og vera til staðar fyrir hvert annað. Verkin innihalda sam- mannlega og almenna skírskotun.“ Myrk verk „Þetta eru myrk verk en það örlar samt á litum í nokkrum þeirra,“ segir Kristbergur. „Í fyrra fóru alls konar fígúrur að detta inn í mynd- verkin hjá mér í skissuvinnunni. Smám saman áttaði ég mig á því að þessar fígúrur áttu rætur að rekja til starfsumhverfis míns og reynslu sem starfsmaður í heimaþjónustu Hafnarf jarðar. Þar hef ég séð ýmislegt og kynnst mismunandi aðstæðum fólks, sérstaklega þeirra sem komnir eru á efri ár. En ég legg áherslu á að verkin innihalda ein- ungis almennar skírskotanir sem geta átt við hvar og hvenær sem er. Ég hef líka haldið námskeið fyrir eldri borgara, þá sem þurfa starfs- endurhæfingu og geðfatlaða. Öll þessi reynsla sópaðist saman og braust út í þessum verkum sem gengu þvert á öll mín plön í mynd- listinni. Ég er myndlistarmaður sem málar abstrakt og er ekki fígúra- tífur. En eins og John Lennon sagði: Life is what happens when you are busy making other plans. Þetta varð að fá sinn tíma og sitt pláss og útkoman er á þessum veggjum.“ Sjö ljóð Um ljóðin segir hann: „Í nokkur ár hef ég fengist við að yrkja ljóð. Ég valdi sjö þeirra á sýninguna, þau fjalla um manninn í hinum ýmsu myndum. Þótt það séu engin bein tengsl milli ljóðanna og myndanna þá finnst mér ljóðin geta virkað í samhengi við myndverkin og það sem ég er að hugsa í þeim.“ Sýning Kristbergs stendur til 21. ágúst og er opin á virkum dögum kl. 10 til 16. Reynslan sópaðist saman og til varð sýning Kristbergur Ó. Pétursson sýnir myndverk og ljóð í SÍM-húsinu. Verk sem gengu þvert á plön hans í myndlistinni. Listamaðurinn segir verkin innihalda sammannlega og almenna skírskotun. „Í fyrra fóru alls konar fígúrur að detta inn í myndverkin hjá mér,“ segir Kristbergur Ó. Pétursson myndlistarmaður og ljóðskáld. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÞETTA VARÐ AÐ FÁ SINN TÍMA OG SITT PLÁSS OG ÚTKOMAN ER Á ÞESSUM VEGGJUM. Í dag, fimmtudaginn 13. ágúst kl. 12.30 í Hallgrímskirkju, leikur Eyþór Franzson Wechner-verk eftir fjögur tónskáld: Faustas Late- nas, Robert Schumann, Alfred Holl- ins og prelúdíu og fúgu í D-dúr eftir Johann Sebastian Bach. Eyþór er starfandi organisti Blönduóskirkju og nærsveita, kennir við Tónlistarskóla A-Húna- vatnssýslu og við Tónskóla Þjóð- kirkjunnar. Eyþór hefur komið fram á einleikstónleikum á Íslandi, Þýskalandi og í Ástralíu. Eyþór í Hallgrímskirkju Tríó Ómars Einarssonar kemur fram í Salnum í dag, fimmtu-dag, klukkan 17.00. Tríóið f lytur djassstandarda í skemmti- legum útsetningum í bland við frumsamið efni með suðrænum andblæ. Tríóið er skipað þeim Ómari Einarssyni gítarleikara, Jóni Rafnssyni bassaleikara og Erik Qvick á slagverk. Frítt er inn á tónleikana en að þessu sinni þurfa tónleikagestir að sækja sér boðsmiða á heimasíðu Salarins, www.salurinn.is, til að tryggja sér sæti. Takmarkaður sæta- fjöldi er í boði. Tríó Ómars Einarssonar í Salnum Frítt er inn á tónleika Tríós Ómars Einarssonar í Salnum. M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31F I M M T U D A G U R 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.