Fréttablaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 34
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Díana Bretaprinsessa var þekkt sem prinsessa fólksins og vann ötullega að
alls kyns mannúðar- og góðgerða-
málum. Fyrir vikið heimsótti hún
alls kyns fólk í opinberum störfum
og eyddi oft tíma með börnum.
Hún var þekkt fyrir að ná góðum
tengslum við þá sem hún heim-
sótti og klæðaburður hennar var
hluti af ástæðunni fyrir því að hún
náði vel fólks. Fjallað var um þetta
á vef Marie Claire.
Díana tók þá ákvörðun að hlýða
ekki konunglegum reglum um að
nota hanska, sem var umdeilt á
sínum tíma. Það gerði hún vegna
þess að hún vildi halda í hendur
þeirra sem hún heimsótti og vera í
beinni snertingu við fólk sem hún
heilsaði með handabandi, sam-
kvæmt Eleri Lynn, sýningarstjóra
sýningarinnar Diana: Her Fashion
Story. Á þessum tíma trúðu sumir
því að það væri mögulega hægt að
smitast af alnæmi með því að taka
í hendina á alnæmissjúklingum,
en Díana hjálpaði til við að útrýma
þeirri goðsögn.
Hún hætti líka að ganga með
hatta, þó að þeir væru taldir við-
eigandi fyrir formlegar heimsókn-
ir, vegna þess að hún gat ekki kúrt
með börnum með hatt á höfðinu.
Elskaði umhyggjukjól sinn
Díana hafði alltaf mikla ást á
börnum og hún eyddi miklum
tíma í að heimsækja spítala og
staði fyrir fólk í neyð. Þá passaði
hún upp á að vera alltaf í björtum
litum.
Hönnuðurinn David Sassoon,
sem var vinur Díönu, segir að þetta
hafði allt byrjað með kjól sem hún
kallaði umhyggjukjólinn sinn. Það
var kjóll með blómamynstri sem
hún var í þegar hún fór til Lagos
í Nígeríu, Sao Paulo í Brasilíu og
þegar hún heimsótti líknardeild
fyrir alnæmissjúklinga í London.
Í samtali við The Telegraph sagði
Sassoon að það hefði verið tilviljun
sem réði því að hún var í þessum
kjól þegar hún heimsótti spítala
og börn virtust safnast að henni
og vera hrifin af honum. „Ef þú ert
eins og prinsessan af Wales, sem
elskaði börn, þá viltu ekki mjög
formlegan klæðnað fyrir spítala-
heimsókn,“ sagði hann. „Þú velur
Í björtu með börnunum
Díana prinsessa vann mikið að mannúðarmálum og góðgerðarstarfsemi og alltaf þegar hún
fór að heimsækja börn passaði hún upp á að vera klædd í bjarta og fallega liti fyrir tilefnið.
Hér er Díana
í umhyggju
kjólnum sínum
að heimsækja
heimili fyrir
yfirgefin börn
í borginni Sao
Paulo í Brasilíu.
Díana vildi vera
í beinni snert
ingu við þau og
elskaði hvernig
þau löðuðust
að kjólnum.
Mörg barnanna
á barnaheimil
inu í Sao Paulo
voru smituð af
HIV eða með
alnæmi. Sumir
trúðu að það
væri hægt að
smitast með
snertingu, en
Díana hjálpaði
til við að út
rýma þeirri
goðsögn. MYND/
GETTY
Hér er Díana prinsessa að heimsækja sjúklinga á líknardeild Móður Teresu í
Kalkútta á Indlandi. Hún kaus fallegan, bleikan kjól fyrir þessa heimsókn.
Hér er prins
essan í hvítu
að heilsa upp
á hóp barna
þegar hún fór
í heimsókn
í glæsilegt
musteri hindúa
í Neasden í
London, sem
var þá nýopnað.
Fyrirtækjaþjónusta
Sérblað um fyrirtæki sem þjónusta önnur
fyrirtæki kemur út miðvikudaginn 19. ágúst.
Í þessu blaði geta fyrirtæki eða einstaklingar kynnt sína þjónustu
í formi kynningar eða með hefðbundinni auglýsingu.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við:
Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúa Fréttablaðsins.
Netfang: jonivar@frettabladid.is – Beinn sími: 550-5654
mjög óformlegan kjól í björtum
litum, eins og þessi kjóll var. Það
vakti aðdáun meðal ungra barna.“
Þar sem börn löðuðust að
hönnuninni ákvað Díana að halda
áfram að vera í björtum litum til
að gleðja þau og gera heimsókn-
irnar ekki eins formlegar.
Sassoon bætti við að Díana hefði
haldið áfram að nota kjólinn, þrátt
fyrir að aðrir væru ekki hrifnir.
„Hún sagði: „fólk er alltaf að segja
mér að vera ekki í honum, en ég
elska þennan kjól, umhyggju-
kjólinn minn“.
Díana var auðvitað fyrsti með-
limur konungsfjölskyldunnar til
að brjóta allar reglurnar.“
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 3 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R