Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 38

Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 38
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Þörungar eru góðir til matar og þrungnir af bæti- og stein-efnum,“ segir Eydís Mary Jónsdóttir. Hún er höfundur bókarinnar Íslenskir mat-þörungar sem Sögur voru að gefa út og er sú fyrsta sinnar tegundar. Íslendingar nýttu þörunga áður fyrr og hefðu ekki lifað af gegnum aldirnar ef þeir hefðu ekki kunnað það, að sögn Eydísar. „Söl voru eini C-vítamíngjaf- inn sem Íslendingar höfðu yfir vetrar- tímann. Þau voru flutt yfir fjallgarða til þeirra sem ekki höfðu aðgang að þeim í náttúrunni, enda létt og oft hluti af versl- unarvöru.“ Silja Dögg Gunnarsdóttir, sagnfræð- ingur og alþingismaður, lagði Eydísi lið við efnisöf lun. En þó bókin miðli fróðleik um fyrri tíð, þá kennir hún líka nútímafólki að nýta sér þörunga til matar. Eydís bendir á að hráefnið nori, sem vafið er utan um sushi, sé gert úr rauðþörungum og gefur mörg f leiri dæmi um nýtingu þörunga. Hún fékk Hinrik Carl Ellertsson matreiðslu- meistara til að útbúa ýmsar krásir úr þeim og myndir sem Karl Peterson tók eru augnayndi í bókinni. En hvað kom til að Eydís fékk áhuga á þessu efni? „Ég lærði landfræði í Danmörku en kom heim í hruni og fékk enga vinnu svo ég neyddist til að fara í meistaranám og tók þá umhverfis- og auðlindafræði í HÍ. Á þeim tíma vissi ég ekkert um þörunga, sá bara fyrir mér gróður í fiskabúrum. Fyrsta vinnan mín var hjá Náttúrustofu Reykjaness í Sandgerði, þá varði ég einu sumri í að labba fjörur og hjálpa til að kortleggja hvaða tegundir væru þar. Svo var ég með aukaverkefni u m ný t ing u þeirra bæði að fornu og nýju. Síðar kortlagði ég um það bil hálfa strand- lengju Íslands, með tilliti til vaxtarsvæða.“ Þ ö r u n g a r þurfa grjót og kletta til að festa sig við og þar er hægt að ná þeim ferskum allan ársins hring, að sögn Eydísar. Hún telur Skandinava ekki hafa  nýtt þá til forna, en þekkingin hafi borist til Íslands með fallegu kon- unum sem víkingarnir tóku með sér frá Írlandi. „Þannig lærðu Íslendingar að nota þennan sjávargróður, sölin, purpurahimnuna og f leira ætilegt og það bjargar mörgum frá því að deyja úr skyrbjúg. En eftir síðari heimsstyrjöld varð fæðið fjölbreyttara í landinu og við hættum að pæla í sölum sem undir- stöðu. Því hefur okkur skort kunnáttu til að búa til góðan mat úr þörungum en þar kemur bókin inn. Hún fræðir okkur meðal annars um hvernig hægt að búa til veislumáltíð úr þessum vannýttu gjöfum náttúrunnar.“ gun@frettabladid.is Vannýttar gjafir náttúru Íslenskir þörungar eru ofurfæða að mati Eydísar Mary Jónsdóttur land- og umhverfis- fræðings. Hún gerði um þá bók með öflugu fólki í matreiðslu, sagnfræði og ljósmyndun. Hinrik Carl, Eydís Mary, Karl Peterson og Silja Dögg eiga heiðurinn að efni bókarinnar. Sögur gefa hana út. Harðfiskur, söl og smjör – holl og góð þrenning. MYND/KARL PETERSON Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gerður Stefanía Elimarsdóttir frá Hólmum í Austur-Landeyjum, Stóragerði 7, Hvolsvelli, lést laugardaginn 8. ágúst 2020. Útför hennar fer fram frá Stórólfshvolskirkju, laugardaginn 15. ágúst og hefst kl. 13. Vegna samkomutakmarkana geta aðeins allra nánustu aðstandendur verið í kirkjunni, en athöfninni verður útvarpað fyrir þá sem verða í bílum á staðnum. Kristján Ágústsson Ágúst Kristjánsson Gunnhildur Edda Kristjánsd. Hrafnhildur R. Kristjánsd. Fannar Jónasson Haukur Guðni Kristjánss. Guðmunda Þorsteinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur. Ástkær bróðir okkar og mágur, Þórir Andrés Laustsen ( Löddi ) er látinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð. Sveinbjörg Laustsen Guðjón Guðmundsson Fanný Laustsen Þórhallur Stefánsson Matthildur Laustsen Ólafur Ólafsson Helgi Freddý Laustsen Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hulda Vordís Aðalsteinsdóttir Syðri-Bægisá, Hörgárbyggð, lést 11. ágúst á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útför auglýst síðar. Katrín Steinsdóttir Jóhannes Sigfússon Helgi Bjarni Steinsson Ragnheiður Margrét Þorsteinsd. barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskaða Guðmundar Pálmars Ögmundssonar rafeindavirkja, Brekkugötu 7, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki líknarþjónustunnar Heru og Líknardeildarinnar í Kópavogi fyrir nærgætna umönnun, umhyggju og hlýju. Þórunn Blöndal Bryndís Pálmarsdóttir Hannu von Hertzen Hjördís Pálmarsdóttir Guðlaugur Hjaltason Halldóra Pálmarsdóttir Jón Júlíus Tómasson afabörn og langafabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Sigþrúður Margrét Þórðardóttir fyrrum bóndi í Hvammi í Norðurárdal er látin. Í ljósi aðstæðna verður tímasetning og fyrirkomulag útfarar auglýst síðar. Sverrir Guðmundsson Hrafnhildur Sverrisdóttir Axel Friðgeirsson Þórður Smári Sverrisson Hanna Kristín Bjarnadóttir Sverrir Már Sverrisson Dagur Sverrir, Margrét María og Freyja Magnea Innilegar þakkir fyrir samúð og vinsemd við andlát og útför Guðrúnar Huldu Guðmundadóttur ( Dúnnu ) Sérstakar þakkir til A3 á Grund fyrir alúð og hlýju í hennar garð. Sigurbjörg Lundholm Þórir Ólafsson Ísidór Hermannsson Ingibjörg Júlíusdóttir Steinn G. Lundholm Erla Elva Möller og afkomendur . Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Kamilla Guðbrandsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Eir, þriðjudaginn 14. júlí sl. Útför hennar fer fram frá Neskirkju, föstudaginn 14. ágúst nk., kl. 13.00. Olga Hafberg Björn Rögnvaldsson Einar Skúli Hafberg Hrannar Már Hafberg Rebekka Helga Aðalsteinsdóttir Júlíanna Ósk Hafberg Svavar Skúli Einarsson 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R22 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.