Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 14
Eitt helsta einkenni íslenskra fjalla er hversu fjölbreytt þau eru og á það bæði við um lögun þeirra og liti. Sum eru frábrugðnari en önnur og litirnir stinga skemmtilega í stúf við umhverfið. Þessi fjöll eru mikil prýði og auka á fjölbreyti leikann í nátt
úrunni – sem er jákvætt líkt og í samfélagi okkar þar
sem einstaklingar eru ekki allir eins. „Hinsegin fjöll“
eru oftar en ekki gerð úr líparíti (rhyolíti) en það er
súrt gosberg sem getur skartað ýmsum litum eins og
grænum og rauðum þótt ljósbrúnn sé algengastur.
Liturinn ræðst af ýmsu, meðal annars efnasamsetn
ingu gosefna, hitastigi og hraða kólnunar.
Líparítfjöll má finna víða um land en flest þeirra
eru á Víknaslóðum, í Kerlingarfjöllum, Lóns
öræfum og sérstaklega á Torfajökulssvæðinu. Þar
er einmitt eitt litríkasta og fallegasta fjall landsins,
Brennisteins alda (881 m), skammt frá Landmanna
laugum og einn helsti konfektmolinn við Laugaveg
inn. Hún skartar öllum regnbogans litum og litapall
ett an er breytileg eftir birtuskilyrðum. Litskrúðugar
hlíðarnar mynda skemmtilega andstæðu við Lauga
hraunið sem umlykur hluta fjallsins, biksvart hraun
sem víða er mosavaxið. Árið 1480 rann Laugahraun
úr gígum í jaðri Öldunnar en í því má víða finna gler
kennt ókristallað líparít sem kallast hrafntinna og er
oft notað í skartgripi. Í hlíðum Brennisteinsöldu er
svartur drangur sem líkist steingerðum þurs og litríkt
hverasvæði með gufuhverum sem sýna kraftinn í
iðrum jarðar með tilheyrandi brennisteinslykt.
Það er auðvelt að ganga á Brennisteinsöldu, enda
hækkunin aðeins um 200 metrar. Ferðin hefst við
skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum og
tekur tæpa klukkustund að ganga að fjallinu og er
þá fylgt fyrsta hluta Laugavegarins. Sunnanvert
á fjallinu er hryggur sem er auðveldasta leiðin á
tindinn, en þar býðst frábært útsýni yfir undraveröld
Landmannalauga og nágrennis en einnig sést vel inn
á hálendið í norðri. Hæsta fjallið í nágrenninu, Blá
hnjúkur (945 m), er skammt undan og tilvalið fyrir
fyrir sprækt göngufólk að ganga einnig á þann
tind í sömu ferð. Er þá fylgt merktri göngu
leið þvert yfir Laugahraun að Grænagili
en þaðan liggur göngustígur „bakdyra
megin“ upp á Bláhnjúk. Í lok göngudags
bíða síðan heitar Landmannalaugar.
Hinsegin fjall
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Brennisteins alda í öllum regnbogans litum er eitt fallegasta fjalli landsins. MYND/KRISTÍN BÁRA BRYNDÍSARDÓTTIR
Umhverfi Brennisteinsöldu er ekki síður fagurt en fjallið sjálft. MYND/ÓMB
Drangurinn í hlíðum Brennisteinsöldu minnir óneitanlega á þurs sem dagað hefur uppi. MYND/ÓMB
1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð