Fréttablaðið - 13.08.2020, Page 14

Fréttablaðið - 13.08.2020, Page 14
Eitt helsta einkenni íslenskra fjalla er hversu fjölbreytt þau eru og á það bæði við um lögun þeirra og liti. Sum eru frábrugðnari en önnur og litirnir stinga skemmtilega í stúf við umhverfið. Þessi fjöll eru mikil prýði og auka á fjölbreyti leikann í nátt­ úrunni – sem er jákvætt líkt og í samfélagi okkar þar sem einstaklingar eru ekki allir eins. „Hinsegin fjöll“ eru oftar en ekki gerð úr líparíti (rhyolíti) en það er súrt gosberg sem getur skartað ýmsum litum eins og grænum og rauðum þótt ljósbrúnn sé algengastur. Liturinn ræðst af ýmsu, meðal annars efnasamsetn­ ingu gosefna, hitastigi og hraða kólnunar. Líparítfjöll má finna víða um land en flest þeirra eru á Víknaslóðum, í Kerlingarfjöllum, Lóns­ öræfum og sérstaklega á Torfajökulssvæðinu. Þar er einmitt eitt litríkasta og fallegasta fjall landsins, Brennisteins alda (881 m), skammt frá Landmanna­ laugum og einn helsti konfektmolinn við Laugaveg­ inn. Hún skartar öllum regnbogans litum og litapall­ ett an er breytileg eftir birtuskilyrðum. Litskrúðugar hlíðarnar mynda skemmtilega andstæðu við Lauga­ hraunið sem umlykur hluta fjallsins, biksvart hraun sem víða er mosavaxið. Árið 1480 rann Laugahraun úr gígum í jaðri Öldunnar en í því má víða finna gler­ kennt ókristallað líparít sem kallast hrafntinna og er oft notað í skartgripi. Í hlíðum Brennisteinsöldu er svartur drangur sem líkist steingerðum þurs og litríkt hverasvæði með gufuhverum sem sýna kraftinn í iðrum jarðar með tilheyrandi brennisteinslykt. Það er auðvelt að ganga á Brennisteinsöldu, enda hækkunin aðeins um 200 metrar. Ferðin hefst við skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum og tekur tæpa klukkustund að ganga að fjallinu og er þá fylgt fyrsta hluta Laugavegarins. Sunnanvert á fjallinu er hryggur sem er auðveldasta leiðin á tindinn, en þar býðst frábært útsýni yfir undraveröld Landmannalauga og nágrennis en einnig sést vel inn á hálendið í norðri. Hæsta fjallið í nágrenninu, Blá­ hnjúkur (945 m), er skammt undan og tilvalið fyrir fyrir sprækt göngufólk að ganga einnig á þann tind í sömu ferð. Er þá fylgt merktri göngu­ leið þvert yfir Laugahraun að Grænagili en þaðan liggur göngustígur „bakdyra­ megin“ upp á Bláhnjúk. Í lok göngudags bíða síðan heitar Landmannalaugar. Hinsegin fjall  Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Brennisteins alda í öllum regnbogans litum er eitt fallegasta fjalli landsins. MYND/KRISTÍN BÁRA BRYNDÍSARDÓTTIR Umhverfi Brennisteinsöldu er ekki síður fagurt en fjallið sjálft. MYND/ÓMB Drangurinn í hlíðum Brennisteinsöldu minnir óneitanlega á þurs sem dagað hefur uppi. MYND/ÓMB 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.