Fréttablaðið - 13.08.2020, Page 26
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Þegar líða fer á ágúst fara margir að huga að haust-inu. Starfsfólki Pennans
Eymundsson þykir þessi tími alltaf
jafn skemmtilegur. Stór hópur
barna bíður spenntur eftir að
hefja sína fyrstu skólagöngu: aðrir
hlakka til að byrja aftur í skólan-
um og hitta félaga, vini og kennara
eftir sumarfrí,“ segir Selma Rut
Magnúsdóttir, vörustjóri hjá Penn-
anum Eymundsson.
Hún segir landslagið þó hafa
breyst mikið síðastliðin þrjú ár, því
nú kaupi sveitarfélög og skólar öll
helstu ritföng og stílabækur fyrir
nemendur grunnskólanna. Í ár
vinni Penninn Eymundsson með
flestum sveitarfélögum landsins
sem kaupa námsgögn fyrir nem-
endur í rúmlega 85 grunnskólum.
„Það breytir því ekki að börn
sem eru að hefja skólagöngu sína
eru alltaf jafn spennt að kaupa
fyrstu skólatöskuna og þau koma
tímanlega til okkar til að velja
skólatösku sem hentar. Aðrir þurfa
að endurnýja sína tösku og því
höfum við lagt áherslu á að bjóða
vandaðar skólatöskur í úrvali,“
upplýsir Selma, en þar má nefna
töskur frá danska framleiðand-
anum Jeva og norska fyrirtækinu
Beckmann.
„Þessi tvö fyrirtæki eiga það
sameiginlegt að bjóða sérlega
vandaðar skólatöskur og hafa þær
verið okkar vinsælustu töskur um
árabil,“ segir Selma.
Margar spennandi nýjungar
Þegar kemur að vali á skólatösku
þarf að huga að nokkrum atriðum.
„Taskan þarf að vera með góðum
stuðningi við bakið, ólar þurfa að
vera bólstraðar og auðvelt að stilla
þær að þörfum og stærð barnsins.
Gott er ef taskan hefur þveról yfir
bringuna. Það tryggir að taskan
sitji rétt á barninu. Einnig þarf að
Úrval skólataska er ríkulegt í Pennanum Eymundsson sem selur vandaðar töskur frá Jeva og Backmann. Starfsfólkið veitir liðsinni við að velja réttu töskuna fyrir hvern og einn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Stílabækur og pennaveski eru ómissandi í skólatöskuna fyrir veturinn.
Framhald af forsíðu ➛
taka mið af stærð barnsins, því
of stór skólataska getur hamlað
hreyfingum þess,“ útskýrir Selma
og bætir við: „Starfsmenn okkar
eru alltaf tilbúnir að aðstoða og
leiðbeina við valið.“
Selma segir sífellt vinsælla að
bæta við vöru sem styður við og
eykur skilning barna á ýmsum
þáttum.
„Þetta eru til dæmis vörur
sem aðstoða við skilning og
styðja við lestur og reikning. Því
eru léttlestrarbækur og ýmsar
þrautabækur vinsæl viðbót við
skólatöskukaupin og greinilegt að
foreldrum er annt um að bæta við
vöru sem bætt getur færni barna
þeirra. Yngri systkini njóta líka oft
góðs af og fá bækur sem hjálpa til
við að læra stafina,“ segir Selma.
Einnig er vinsælt að bæta við
ýmsu smálegu sem kryddar
skólagönguna eins og nestisboxi,
drykkjarbrúsa, teygjumöppu og
fleiru, gjarnan með uppáhalds-
teiknimyndapersónunni hverju
sinni.
„En svo má segja að gulur Pluto-
blýantur, UHU-límstiftin, Cra-
yola-vaxlitirnir og bláa, klassíska
stílabókin „Mennt er máttur“ hafi
verið vinsælustu skólavörurnar
okkar í áraraðir og þær eru tákn-
rænar fyrir skóla í hugum margra.
Við reynum alltaf að passa upp á
að eiga vöru sem hentar flestum
og því bjóðum við upp á skólavöru
sem er sérstaklega hönnuð fyrir
örvhenta. Þar má nefna yddara,
reglustikur, skæri og stílabækur,“
segir Selma.
Allir þekkja Crayola-litina sem
Penninn Eymundsson hefur selt í
áratugi.
„Nú hafa nokkrar nýjungar bæst
við hjá Crayola, eins og vaxlitir
með glimmeri, tússlitir og vaxlitir
með ilmi. Þessi nýja vara er vinsæl
hjá litaglöðum krökkum og á
örugglega eftir að krydda fallegar
teikningar í vetur.“
Vinsæll skiptibókamarkaður
Skiptibókamarkaður Pennans
Eymundsson trekkir alltaf að í
aðdraganda nýs skólaárs.
„Framhaldsskólanemar eru dug-
legir að nýta sér skiptibókamark-
aðinn og þar er alltaf líf og fjör þó
svo að margir kjósi að kaupa sér
nýjar bækur. Við leggjum áherslu
á að eiga þær bækur sem eru á
listum framhaldsskólanna og
bjóðum upp á gott úrval árið um
kring,“ segir Þórunn Inga Sigurðar-
dóttir, vörustjóri.
Sitthvað nýtt er ávallt í boði fyrir
nemendur framhaldsskólanna í
Pennanum Eymundsson.
„Til dæmis stílabækur frá
Oxford þar sem notast er við
Scribzee-appið. Með þeim er hægt
að skanna, geyma, skipuleggja
og deila glósum með til dæmis
samnemendum. Fagbækur njóta
líka mikilla vinsælda og ekki má
gleyma gæða Staedtler-filtpenn-
unum sem hafa verið geysivinsælir
við glósugerðina. Litaúrvalið gerir
glósurnar svo miklu skemmtilegri
og alls 48 litir í boði og í ár bjóðum
við upp á pastelliti í áherslupenn-
um, því ritföng eins og önnur vara
fylgir tískustraumum,“ upplýsir
Þórunn.
„Við leggjum áherslu á gott
og vandað vöruúrval og hefur
undirbúningurinn staðið yfir frá
áramótum. Því er gaman þegar
loksins kemur að skólasetningu
og nemendur og foreldrar þeirra
heimsækja verslanir okkar. Þetta
er alltaf jafn skemmtilegur árs-
tími.“
Skoðið úrvalið fyrir skólann og
staðsetningu verslana Pennans
Eymundsson á penninn.is
Þetta er alltaf jafn
skemmtilegur
árstími. Það er gaman
þegar loksins kemur að
skólasetningu og nem-
endur og foreldrar þeirra
heimsækja verslanir
okkar.
2 KYNNINGARBLAÐ 1 3 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RSKÓLAR OG NÁMSKEIÐ