Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.08.2020, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 13.08.2020, Qupperneq 50
ALLAR FLÓÐGÁTTIR STÓÐU OPNAR EFTIR SLEITULAUSA VINNU OG SVEFNLAUSAR NÆTUR, ÞÁ BIRTAST MANNI OFT BESTU LÖGIN. Ása „Við höfðum meiri tíma og svigrúm til að vinna að plöt- unni á okkar forsendum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Skúlptúr eftir Katrínu og mynd eftir Ásu prýðir plötuum- slag Ride the Fire. Í dag kemur út lagið Prince með hljómsveitinni Mamm­út. Lagið var það síðasta sem kom út úr hljóðversvinnu við gerð nýjustu plötu þeirra, Ride the Fire. „Það hafði blundað bak við augu og eyru gegnum allt upptökuferlið en við fundum því ekki réttan far­ veg fyrr en í blálokin. Það er upp­ gjör, leikur, háð. Allar f lóðgáttir stóðu opnar eftir sleitulausa vinnu og svefnlausar nætur, þá birtast manni oft bestu lögin. Þau banka upp á þegar ritskoðunin er engin og orkunotkunin hefur færst frá höfði yfir í hendur. Við lágum yfir gítarsólóinu í marga daga og töldum okkur hafa fundið hið fullkomna gítarsánd,“ segir Ása Dýradóttir, bassaleikari sveitarinnar. Undarlegir tímar Platan var tekin upp og pródúseruð af Árna Hjörvari Árnasyni, sem er mjög náinn hljómsveitinni. „Ása var búsett með honum í London áður en vinna við plötuna hófst, og við ákváðum að gera þetta með honum þar sem við vorum nú þegar að vinna mikið að tónlist saman. Hann tók áður upp ábreið­ una okkar af Believe í London árið 2017 og hefur verið okkar allra­ handa samstarfsfélagi síðan þá. Auk þess að taka upp Ride the Fire, hefur hann verið okkur innan handar sem hljóðmaður á túr, leikið í myndböndum og syngur svo með mér í viðlagi Prince,“ segir Katrína Mogensen, söngkona Mammút. „Við gátum ekki ímyndað okkur Allar flóðgáttirnar stóðu opnar Lagið Prince með hljómsveitinni Mammút kemur út í dag. Von er á breiðskífunni Ride the Fire í október. Platan frestaðist vegna COVID-19. Stöllurnar segja undarlega tíma eflaust hafa kennt mörgum að leita inn á við. að taka þessa plötu upp með öðrum en honum, hann er besti pródú­ serinn og ferðafélagi okkar síðustu árin,“ segir Ása. Ása og Katrína ákváðu að gera tónlistarmyndband við lagið Prince sjálfar, frekar en að leita annað. „Við lögðum upp með heljarinnar „storyboard“ og áform um hina og þessa heima, sem við eimuðum svo yfir í einfalt samtal tveggja kar­ aktera. Við vildum prófa að gera þetta bara tvær í rólegheitum, án útskýringa, funda eða ágreinings. Við fengum svo Línu Thoroddsen til að klippa efnið með okkur. Ætli undarlegu tímarnir í ár fái mann ekki í auknari mæli til þess að leita inn á við, skoða verkfærin sín og þróa með sér getu til að nota þau,“ segir Ása. Vilja ekkert miðjumoð Útlit plötunnar og fylgiefni hönn­ uðu meðlimirnir sjálfir. „Þar sem við erum búin að mar­ ínerast í svo mörg ár sem listakoll­ ektív og þróa á milli okkar ákveðna lífssýn og heimspeki getur verið erfitt fyrir okkur að innleiða vinnu utanaðkomandi aðila, nema útkom­ an endi í miðjumoði,“ segir Ása. „Við Ása og Alexandra erum allar faglærðar ýmist í myndlist eða graf­ ískri hönnun, svo við metum það svo að við séum bestar í verkið. Við höfum alltaf séð um listina og útlit sem fylgir útgáfunum og munum veiða áfram úr þeim sýrupolli sem er á milli okkar. Áfram veginn og treystum engum,“ segir Katrína. Upphaf lega stóð til að Ride the Fire kæmi út í vor og að hljóm­ sveitin myndi svo túra yfir sumarið. Heimsfaraldurinn setti þó strik í reikninginn og útgáfunni var því frestað fram í október. „Svo krossar maður bara fingur og vonar að sumarfestivölin eigi sér stað 2021, þó að útlitið sé svart. Við höfum eytt árinu í að hlúa að útgáfunni og umgjörð hennar, í bland við að hlúa að börnum og buru, en Mammútabörnin eru núna í þúsundatali og krefjast mikillar athygli, stór og loðin,“ segir Ása. Traustið mikilvægt Vinnan að baki plötunni stóð yfir í tvö ár. „Hún fól í sér samtíning af ein­ staklingsvinnu milli landa, og afrakstur vinnulota, þar sem við komum saman í stúdíói eða æfinga­ rými í London eða Reykjavík, tókum upp, púsluðum og gerðum endalausar tilraunir. Svo skildust alltaf leiðir inn á milli og hægt var að virða efnið fyrir sér og breyta og bæta þegar næsta lota hófst. Þegar traustið er mikið milli einstaklinga er þetta rosalega þægileg vinnu­ aðferð,“ segir Ása. „Já, traustið á ferlið og efnið þarf líka að vera til staðar, engar hug­ myndir eru tilgangslausar, annað­ hvort þarf að klæða þær í búning eða leyfa þeim að umbreytast í öðrum útsetningum,“ segir Katrína. Höfðu meira svigrúm Áður hafa þau líkt plötunni við ferðalag ofan í kanínuholu. „Við stigum inn í ferlið eins og svampar, svona duglegir svampar. Tilbúin að skoða allt það sem á okkar vegi varð og vinna hörðum höndum. Við lögðum ekki upp með neinn fyrir fram áætlaðan strúktúr eða hljóðheim, heldur notuðum for­ vitnina og tímann sem vopn,“ segir Ása „Þessi plata var líka frábrugðin þeirri á undan, Kinder Versions, að því leytinu til að við höfðum meiri tíma og svigrúm til að vinna að henni á okkar forsendum. Við vorum ekki að eltast við ákveðna útkomu heldur bara að njóta leiks­ ins og kafa dýpra,“ segir Katrína. „Og þar sem allir áætlaðir tónleik­ ar virðast sífellt falla niður, höldum við bara áfram að krukka í eigin sjón­, og hljóðræna drullumalli, það verður gaman að fylgjast með útgáfu f lórunni í tónlistarbrans­ anum 2021,“ bætir Ása við. Lagið Prince kemur út í dag á öllum helstu streymisveitum. Plat­ an Ride the Fire kemur út í október. Útgáfutónleikar verða tilkynntir síðar. steingerdur@frettabladid.is 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.