Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 52

Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 52
OKKUR FINNST ALLRI UMRÆÐUNNI UM OFBELDI OG KYNJAMISRÉTTI HAFA VERIÐ STJÓRNAÐ AF FORRÉTTINDAFÓLKI OG VILDUM ÞANNIG HLEYPA FLEIRI HÓPUM AÐ. Ný tvöföld virkni sem veitir hraða og langvarandi vörn gegn tannkuli. Alltaf nóg til af humri hjá Norðanfiski... STÓRUM HUMRI!! Norðanfiskur ehf. sérhæfir sig í framleiðslu á úrvals sjávarfangi til veitinga- og stóreldhúsa. Einnig má finna vörur Norðanfisks í neytendapakkningum í verslunum Bónus um land allt. Hafið samband á nordanfiskur@nordanfiskur.is eða í síma 430 1700 Druslugöngunni í ár verður ekki af lýst vegna smithættu, heldur verður hún haldin með nýju sn iði á ve f síðu feminíska veftímaritsins Flóru. Í tilefni af tíu ára afmæli Druslu- göngunnar hefur verið boðað til rafrænnar göngu. Segja má að ræðu- höld Druslugöngunnar færist yfir á tímaritið Flóru, þar sem jaðarsettar raddir fá pláss til að lýsa sinni upp- lifun. „Vegna núverandi aðstæðna í þjóðfélaginu aðlaga Druslur sig að breyttum aðstæðum með því að birta greinar, ljóð og list,“ segir Eva Sigurðardóttir, einn skipuleggjandi göngunnar. Unnið var að því að finna nýja leið til að vekja athygli á málstað göngunnar, þrátt fyrir að ekki væri hægt að sýna samstöðu með því að safnast saman á götum bæjarins. Valdefla jaðarhópa „Markmið átaksins í ár er að fá fólk með forréttindi til að átta sig á því að það hafa ekki allir sömu réttindi og að við verðum að nýta forréttindi okkar til að stíga til hliðar og leyfa öðrum að njóta sín.“ Brugðið var á það ráð að fá fjöl- breyttan hóp einstaklinga til að deila reynslu sinni á veftímaritinu Flóru. „Boðskapur Druslugöng- unnar er að standa með brotaþolum og í ár vildum við fá að heyra í ein- staklingum sem fá oft ekki pláss í sviðsljósinu,“ segir Eva „Okkur finnst allri umræðunni um of beldi og kynjamisrétti hafa verið stjórnað af forréttindafólki og vildum þannig hleypa fleiri hópum að.“ Auglýst var eftir þátttakendum í rafrænu gönguna og létu svörin ekki á sér standa. „Við fengum til liðs við okkur konur af erlendum uppruna, litað fólk og fólk sem glímir við fíkn, svo nokkur dæmi séu tekin.“ Greinahöf- undar ákváðu síðan sjálfir hverju þeir vildu deila. Kröfuganga á vefnum Í stað þess að fylkja liði í miðbæn- um er fólk hvatt til að deila áfram greinum sem innihalda fræðslu um ofbeldismenningu og fordóma gegn hópum sem hefur verið þrýst út á jaðarinn. „Því f leiri sem áframdeila greinunum, því lengri kröfuganga myndast á vefnum.“ Rafræna Druslugangan fer fram á morgun og er hægt að taka þátt án þess að brjóta gegn sóttvarnalögum með því að heimsækja heimasíðu Flóru. „Sýnum öllum brotaþolum of beldis stuðning óháð kyni, kyn- þætti, fötlun, útliti, litarhætti, kyntjáningu, kynhneigð, kyngervi, heimilisaðstæðum, heilsufari, líf- erni og öðrum stöðlum samfélags- ins. Dreifum boðskapnum.“ Öllum er velkomið að taka þátt í rafrænni Druslugöngu á https:// flora-utgafa.is/. kristlin@frettabladid.is Rafræn Drusluganga Í ár er Druslugangan með breyttu sniði vegna heimsfaraldurs CO- VID-19. Rafræn Drusluganga fer fram á veftímaritinu Flóru í dag. Fyrsta Druslugangan var farin hér á Íslandi árið 2014. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Eva Sigurðardóttir er ein af skipuleggjendum Druslugöngunnar síðustu árin, sem og í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.