Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 54

Fréttablaðið - 13.08.2020, Side 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is KENNARINN MINN SAGÐI MÉR AÐ ÉG VÆRI MEÐ EINHVERN STÍL, LÍKA ÞEGAR ÉG VAR AÐ MÁLA MEÐ MÓDEL FYRIR FRAMAN MIG. HANN SAGÐI MÉR AÐ GLEYMA ÞESSU OG HVATTI MIG TIL AÐ HALDA ÁFRAM MEÐ ÞENNAN STÍL. Skartgripahönnuðurinn Hendrikka Waage heldur málverkasýningu á verk-um sínum í versluninni Evu. Sýningin hefst í dag og stendur til 22. ágúst. Hendrikka hóf að mála fyrir rúmum þremur árum og hefur að undan- förnu stundað nám við London Aca- demy of Arts, samhliða starfi sínu sem skartgripahönnuður. Sagt að gleyma módeli „Þetta er áhugamálið mitt. Ég hélt fyrstu sýninguna mína á Íslandi í júní og þá seldust allar myndirnar upp,“ segir Hendrikka. Hún býr að staðaldri í sveitinni fyrir utan London í Bretlandi, en er nú stödd hér á landi. Um er að ræða portrett myndir sem gerðar eru án módels. „Kennarinn minn sagði mér að ég væri með einhvern stíl, líka þegar ég var að mála með módel fyrir framan mig. Hann sagði mér að gleyma þessu og hvatti mig til að halda áfram með þennan stíl.“ Eitt eyra Um er að ræða olíupastelverk sem byggja á sömu heildarhugmynd- inni, en þau eru mjög litrík. „Ég kalla þetta Dásamlegar verur. Þetta er naívismi og mjög litaglatt. Ég fæ sjálf mjög mikla gleði af því að mála þessar myndir og ég vona að það sjáist á þeim. Það er ótrúleg gleði sem fylgir því að klára hvert verk.“ Innblástur frá merkilegum listakonum Þá vekur athygli að verurnar eru aðeins með eitt eyra. „Þú þarft ekki að hlusta á allt, það er það sem ég túlka út úr þessu, en ég vil leyfa áhorfandanum að túlka verkin á þann hátt sem hann sér þau.“ Innblásturinn sækir hún til Fær innblástur frá Gloriu Vanderbilt Í dag hefst sýning á málverkum eins þekktasta skartgripahönn- uðar landsins, Hendrikku Waage, í versluninni Evu. Innblásturinn fyrir málverk sín segist hún meðal annar fá frá Gloriu Vanderbilt. Hendrikka hefur stundað nám að undanförnu við London Academy of Arts. MYND/AÐSEND Verk Hendrikku eru unnin með olíupastel og eru mjög litrík. Innblásturinn að litadýrðinni sækir Hendrikka til Önu Tzarev. Hendrikka leyfir áhorfendum að túlka hví verurnar hafa eitt eyra. tveggja merkilegra kvenna. „Annars vegar Gloriu Vanderbilt, sem féll frá í fyrra. Ég hef fylgt henni í gegnum lífið, allt frá því mamma talaði um hana þegar ég var lítil. Hún var mikil listakona. Síðustu ár fór hún að búa til afskaplega skemmtilegar myndir sem hún sýndi á Instagram,“ segir Hendrikka. Svo er það króatíska listakonan Ana Tzarev. „Hún er stórkostlegur listamaður sem notar mikið þessa skæru liti, hún hefur veitt mér mikinn innblástur.“ Hægt er að fylgjast með Hend- rikku á Instagram undir Hendrikka- waagepersonal. arib@frettabladid.is go crazy Fimmtudag - mánudags 13. - 17. ágúst af öllum vörum* 25% Sparadu- *20% afsláttur af sérpöntunum. Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði. ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is mánudaga - sunnudaga 12-18 1 3 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.