Fréttablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 8 1 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Hágæða harðparket í miklu úrvali Harðparket er með einstaklega sterkt yfirborð sem býður upp á mikinn umgang og viðhaldið er svo til ekkert, svo er það líka fallegt! Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • parki@parki.is • 595 0570 FÉLAGSMÁL Erling Smith, lamaður maður, hefur mátt dvelja á hjúkr- unarheimili í tvö og hálft ár eftir að NPA-samningi hans var rift. Við að fara á stofnun missti hann hluta lífeyrisins og getur ekki greitt vist- unargjöld. Í gærmorgun var fjárnám gert í eignum hans vegna vangold- inna gjalda en hann gat ekki einu sinni mætt til sýslumannsins sjálfur. „Ég samþykkti aldrei langtíma- vistun. Ég er nýlega giftur, á konu og heimili og bíð eftir því að fá að komast heim,“ segir Erling, sem upphaf lega var tjáð að hann væri í tímabundinni hvíldarinnlögn en sjálfur hefur hann ekki skrifað undir neitt. Hann líkir vist sinni á hjúkrunarheimilinu sem varðhaldi en réttargæslumaður hans hefur unnið að því lengi að koma honum heim og fá nýjan NPA-samning, því Erling þarf sólarhringsþjónustu. – khg / sjá síðu 6 Fastur á hjúkrunarheimili og fjárnám gert vegna vistunargjalda Þessir ferðamenn f lúðu rigninguna í borginni í gær og leituðu skjóls í ilmandi gróðurhúsi sem staðsett er á Lækjartorgi. Í húsinu má finna skemmtilegt safn af fjölbreyttum og ólíkum plöntum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK VIÐSKIPTI „Það kemur til greina og er til skoðunar hjá félaginu,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice landair Group, spurður hvort stefnt sé að því að sölutryggja fyrirhugað hlutafjár- útboð Icelandair. Með sölutryggingu er átt við samning milli fjármála- fyrirtækis og útgefanda verðbréfa þar sem fjármálafyrirtækið skuld- bindur sig til þess að kaupa þann hluta verðbréfa sem áskrift næst ekki fyrir í almennu útboði. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er horft til þess að Íslands- banki og Landsbankinn taki að sér að sölutryggja útboðið. Í hlutafjárútboðinu gerir Ice- landair ráð fyrir að selja nýja hluti fyrir 20 milljarða króna að nafn- verði, á genginu ein króna á hlut. Komi til umframeftirspurnar í hlutafjárútboðinu, mun stjórn félagsins hafa heimild til að auka hlutafé enn frekar um allt að þrjá milljarða, þannig að stærð útboðs- ins yrði að hámarki 23 milljarðar króna. Hlutafjárútboðið mun ekki fela í sér neinar skuldbreytingar, það er að segja að kröfum sé breytt í hlutafé, að sögn Boga. „Ef við berum okkur saman við flugfélög eins og Norwegian sem fór þá leið, þá var fyrst og fremst verið að breyta van- skilum eða óveðtryggðum skuldum í hlutafé,“ útskýrir Bogi. „Við erum hvorki með vanskil né óveðtryggð skuldabréf, þann- ig að staða okkar gagnvart lánar- drottnum var allt önnur en hjá Nor- wegian.“ Bogi segir að áætlanir og hagræð- ingaraðgerðir geri félagið vel í stakk búið til að keppa á flugmarkaðinum. Með sveigjanlegri kjarasamningum og auknu vinnuframlagi áhafna, ásamt öðrum aðgerðum, áætlar Icelandair að kostnaður á hvern sætiskílómetra lækki um samtals tíu prósent til 2024. Launakostnaður verður 28 prósent af tekjum saman- borið við 30 prósent 2018. „Við gerum ráð fyrir ákveðnum verðlagshækkunum eins og verið hefur síðustu ár. Ef sú forsenda gengur eftir munu önnur félög einn- ig glíma við verðlagshækkanir. Með þeim aðgerðum sem við förum í verður félagið mjög samkeppnis- hæft á þeim markaði sem það starfar á,“ segir Bogi. – hae, þfh / sjá síðu 8 Gætu tryggt sölu í útboði Icelandair Forstjóri Icelandair segir það koma til greina að sölutryggja fyrirhugað hlutafjárútboð félagsins. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins myndu Íslandsbanki og Landsbankinn taka það að sér. Hugsunin með lána- línuna er að þurfa ekki að draga á hana. Þetta er lánalína til þrautavara. Bogi Nils Bogason, forstjóri Iceland­ air group Erling Smith

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.