Fréttablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 18
Freydís hefur komið víða við í listsköpun sinni en hún lék eitt aðalhlutverkanna í fjöl- skyldumyndinni sígildu Stikkfrí sem kom út árið 1997. Þá var hún fyrst kvenna til þess að sigra í Rímnaflæði-keppninni árið 2001. Í dag leggur Freydís stund á kennaranám ásamt því að sinna eigin listsköpun. „Ég er í kenn- aranámi við menntavísindasvið Háskóla Íslands og legg áherslu á list- og verkgreinar, það snýr að áhugasviði mínu og ég hlakka til að takast á við það verðuga verk- efni að virkja skapandi eiginleika ungs fólks.“ Nærandi að vinna með leir Eitt af því sem Freydís hefur unnið mikið með undanfarin ár er leir. „Ég var áður í Myndlistaskólanum í Reykjavík á keramikbraut sem er tveggja ára nám. Það nám nærði mig mikið og að vinna með leir er mjög skemmtilegt og spennandi,“ skýrir hún frá. „Ég vinn í Verkfæralagernum á Smáratorgi með skólanum sem er skemmtilegt starf, er þar að mestu í myndlistardeildinni sem er bæði skemmtilegt og heill heimur af myndlistarvörum fyrir unga sem aldna. Er einnig mjög mikill raðari í eðli mínu svo þetta starf gefur mér heilan helling, finnst fátt skemmtilegra en að raða og stilla upp hlutum,“ segir Freydís. „Svo í frítíma mínum er ég að fást við mín eigin verkefni og búa til alls konar, en mest myndlist og tónlist. Var að klára fjögurra vikna gjörninganámskeið í Listaháskóla Íslands sem var hreinsandi fyrir sál og líkama. Mér finnst gaman að fara á söfn og sjá listasýningar, er nýbúin að fjárfesta í Menningar- korti Reykjavíkur sem er snilld því þá get ég farið oftar en einu sinni á hverja sýningu.“ Gaman að finna gullmola Freydís svarar játandi þegar hún er spurð að því hvort hún hafi áhuga á tísku. „Já, ég hef áhuga á tísku en finnst ég ekki fylgja tískustraumum, vel frekar flíkur með sniðum og litum sem mér finnast skemmtileg. Gaman að blanda saman nýju og gömlu, endurnýting er líka eitt af því sem skiptir mig máli og mér finnst gaman að finna gamla gullmola, ég gleðst meira ef ég finn flík sem ég veit að einhver annar hefur átt frekar en að kaupa mér nýja flík, það er líka spennandi að hugsa um söguna, hvar hefur hún verið og hver átti hana.“ Þá er hún spurð hvort hún hafi haft skoðanir á fatavali þegar hún var barn. „Já, ég held það, mamma saumaði oft föt á mig sem barn og fannst mér gaman að fylgjast með henni sauma og beið spennt eftir nýrri f lík við eldhúsborðið heima. Yfirleitt fórum við saman að velja efni í Vogue sem var í Skeifunni. Við fengum líka Hennes og Maurits-bæklinginn sendan heim og það var alltaf jafn skemmtilegt að skoða hann, þetta var þykkur og veglegur bæklingur og ég Audrey Hepburn á sérstakan stað í hjarta Freydísar. MYND/GETTY Freydís í litríkum blómamynstruðum kjól og gallajakkaskyrtu. Freydís kann vel við sig innan um myndlistarvörur og hillur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALL Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Freydís hefur fengist við list- sköpun af öllu tagi frá því að hún var barn. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Er einnig mjög mikill raðari í eðli mínu svo þetta starf gefur mér heilan helling, finnst fátt skemmtilegra en að raða og stilla upp hlutum. Framhald af forsíðu ➛ LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NÝJAR HAUSTVÖRUR STREYMA INN fékk alltaf að velja mér eina flík í hverjum bæklingi.“ Þegar Freydís er beðin um að lýsa stíl sínum rifjar hún upp eftir- minnileg orð úr fyrirlestri sem hún sat í fyrra. „Ég fór á mjög áhuga- verðan fyrirlestur seinasta haust í Kennaraháskólanum þar sem Ásdís Jóelsdóttir, lektor í textílmennt á menntavísindasviði HÍ, talaði um endurnýtingu í textílkennslu, hún talaði einnig um að stíll hvers og eins sé framlenging á persónu- leikanum. Það er kannski þannig sem ég hugsa stílinn minn, ákveðið tjáningarform og endurspeglun á mínum persónuleika og hvernig mér líður, ég vel svört föt ef mér finnst ég vera orkulaus og klæðist litríkum fötum ef ég er glöð.“ Hver er uppáhaldsf líkin? „Kjóll sem ég keypti í Extralopp- unni, hann er seventís-stíl, litríkur og með blómamunstri.“ Hvaðan færðu innblástur? „Náttúran gefur mér mikinn innblástur, einnig fæ ég alltaf inn- blásturs-boozt við að fara í leik- hús, tónleika og listasöfn. Finnst líka gaman að öllum smáatriðum í daglegu amstri, þau gefa mér inn- blástur.“ Áttu þér einhverja/r tískufyrir- mynd/ir? „Audrey Hepburn er kannski aðaltískufyrirmyndin mín, var nýlega að horfa aftur á Breakfast at Tiffany’s þar sem allt sem hún klæðist fer henni vel.“ Eyðirðu miklu í föt? „Ég myndi ekki segja það, ef ég kaupi mér nýja flík þá er hún á útsölu, annars reyni ég að versla mest í þeim búðum sem selja notuð föt.“ Hvaða f lík keyptir þú síðast ? „Seinast keypti ég mér grímu ef það gæti kallast f lík, saumaða af Ingu Höskuldsdóttur. Hún er að endurnýta efni í grímur sem er náttúrulega snilld. Keypti tvær grímur, eina með risaeðlumunstri og eina með abstrakt munstri. Gríman er tveggja laga og nýtist mér í bæði lengri strætóferðir og í vinnunni.“ Notar þú fylgihluti og skart? „Hef aldrei verið mikið fyrir fylgihluti en ef ég nota fylgihluti þá er það eitthvað sem ég hef búið til sjálf, hef verið að gera eyrnalokka fyrir sjálfa mig með myndum sem ég teikna.“ Hvar kaupir þú helst föt? „Ef ég kaupi föt þá fer ég oft í Extraloppuna í Smáralind, annars er ég mjög hrifin af Monki og finn alltaf eitthvað þar á útsöluslánni.“ Hvað er fram undan í haust? „Skólinn tekur við í þarnæstu viku svo ég er að undirbúa mig fyrir það, það eru meðal annars tveir áhugaverðir áfangar sem ég tek í haust sem eru Heimspeki og hugmyndasaga menntunar og Íslensk listasaga, söfn og menntun, hlakka mikið til þess. Annars verð ég að sinna sjálfri mér og minni listsköpun, vonandi fæðast einhverjar nýjar og skemmtilegar hugmyndir.“ Hægt er að fylgjast með Freydísi á Instagram undir: fatafey 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.