Fréttablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 29
BÍLAMERKINGAR
Vel merktur bíll er
ódýrasta auglýsingin
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
BÍLAR
Smájepplingurinn Suzuki Ignis
hefur fengið andlitslyftingu ásamt
meiri tæknibúnaði og nýrri tvinn
útfærslu. Búið er að breyta grilli
og einnig stuðurum og undirplötu
bílsins. Komið er nýtt, stafrænt
mælaborð með sjö tommu upp
lýsingaskjá. Bensínvélin er sama
1,2 lítra vél og áður en hún hefur
fengið nýja innspýtingu, ventla
stýringu, olíudælu og kælingu.
Tvinnútgáfa er staðalbúnaður og
er rafhlaðan stærri en áður. Hægt
verður að fá bílinn núna með
CVTsjálfskiptingu. Betri búnaður
verður í boði og fær SZ5útgáfan
leiðsögukerfi, lyklalaust aðgengi,
veglínuskynjara og neyðarhemlun
svo eitthvað sé nefnt.
Suzuki Ignis fær
andlitslyftingu
Að framan eru komnir nýir stuðarar
og framtannagrill.
Fyrsti raf bíll Skoda er Enyaq iV
sem verður frumsýndur á næst-
unni, á undan VW ID.4.
Það styttist í frumsýningu nýs
raf bíls Skoda, en hann hefur
fengið nafnið Enyaq iV. Bíllinn
verður frumsýndur 1. septem
ber næstkomandi, en hann er
systurbíll Volkswagen ID.4. Við
höfum nýlega séð njósnamyndir af
bílnum án dulargervis og mynd
irnar hér sýna bílinn með ýktum
línum og stærri felgum en í boði
verða.
Greinilegt er að Vision iV er
grunnurinn að hönnun þessa nýja
bíls. Bíllinn verður ekki með kúpu
lagi eins og hugmyndabíllinn, en
slík útgáfa er þó á teikniborðinu.
Afturendi bílsins minnir sterklega
á nýjan Octavia með afturljósum
sínum. Það sama má segja um inn
réttinguna sem er lík þeirri sem
er í nýjum Octavia. Fyrir miðju
er stór 13 tommu upplýsinga
skjár og fyrir neðan píanótakkar
svipaðir og í Peugeotbílunum.
Meira verður af endurunnum
efnum í innréttingu Enyaq en áður
hefur sést hjá Skoda. Sætin verða
úr endurunnum plastflöskum og
litur á leðri verður gerður með
efnum unnum úr ólífutrjám. Bíll
inn verður rúmgóður eins og aðrir
bílar Skoda og farangursrýmið
verður 585 lítrar.
Enyaq verður í boði með fjór
hjóladrifi eða afturdrifi og verða
þrjár rafhlöður með fimm aflút
færslum í boði. Grunnútfærslan iV
50 verður með 55 kWst rafhlöðu
og afturhjóladrifi og skilar 146
hestöflum. Sú útfærsla verður
með um 340 km drægi. Næsta
útgáfa verður einnig afturhjóla
drifin með 62 kWst rafhlöðu og
177 hestöfl. Drægi hennar verður
ívið meira eða 390 km. Stærsta
rafhlaðan verður 82 kWst og þá
einnig með fjórhjóladrifi. Drægi
hennar verður allt að 500 km.
Bíllinn kemur í sölu á næsta ári
en ekkert er vitað um mögulegan
komutíma hans hingað til lands
enn þá.
Skoda sýnir hönnun Enyaq iV
Fyrir miðju verður stór 13 tommu upplýsingaskjár líkt og í nýjum Octavia og hnappaborð þar fyrir neðan.
Hinn nýi Enyaq verður með ákveðnari framenda en aðrir Skoda-bílar, og munar þar mest um hærra grill og upphækkað húddið ásamt þynnri aðalljósum.
Þriðja kynslóð Nissan Qashqai er
væntanleg á markað í lok árs og
nýlega náðust njósnamyndir af
bílnum við prófanir. Þrátt fyrir að
bíllinn sé með mikið dulargervi á
myndunum gefa þær bestu mynd
hingað til af því hvernig bíllinn
muni líta út.
Greinilegt er að framljósin verða
þynnri eins og hönnunarlína
Nissan er að undanförnu. Grillið
verður stærra en áður og hann fær
sportlegri þaklínu. Nýr Qashqai
kemur á CMF undirvagninum,
sem þýðir að það verða tvinnút
gáfur í boði. Líklegast verða tvær
gerðir tvinnbíla í boði, annars
vegar tengiltvinnútgáfa og hins
vegar útgáfa með bensínvél sem
hleður rafhlöðu sem drífur áfram
rafmótor. Sú útgáfa nær aðeins
um 140 km hraða og virkar best á
hraða íslensks þjóðvegakerfis, eða
á um 90 km hraða á klst. Nissan er
líklegt til að hætta að bjóða upp
á dísilvélar í jepplingalínu sinni,
til að minnka mengunarsektir
merkisins. Ekki er von á rafmagn
aðri útgáfu en þess í stað kemur
nýr bíll, Nissan Ariya á CMFEV
undirvagninum sem hannaður er í
samstarfi við Renault.
Njósnamyndir af nýjum Nissan Qashqai
Það er sportlegra yfirbragð á þriðju kynslóð Qashqai sem kemur á CMF
undirvagninum og líkast til með tvær gerðir tvinnbúnaðar.
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
Stjórnbúnaður fyrir rúðuþurrkur
í Model 3 er gegnum snertiskjá
bílsins, en sá búnaður hefur nú
verið bannaður í Þýskalandi. Þar
lenti bílstjóri í árekstri á meðan
hann var að stilla rúðuþurrkurnar
á ferð. Bílstjórinn fékk sekt sem
hann var ósáttur við og fór með
fyrir dómstóla, sem nýlega dæmdi
búnaðinn ólöglegan. Fellur það
undir þá skilgreiningu að ekki
megi nota snertiskjá í akstri, en
Tesla til varnar er rétt að nefna að á
stefnuljósarofa bílsins er hnappur
sem þurrkar einu sinni af rúðunni
og kveikir á stjórnbúnaðinum á
skjánum um leið. Þetta er ekki
fyrsta málið sem fellur Teslabílum
í óhag í Þýskalandi að undanförnu.
Í júlí var Autopilot búnaður Tesla
dæmdur misvísandi af þýskum
dómstólum.
Tesla fær bann
vegna rúðuþurrka
Erfitt er að nota snertiskjá í akstri
að mati þýskra dómstóla.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0