Fréttablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 8
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Í SUMARDRY
KK
IN
N
SÍTRÓ
NA
Fáðu töfra
innblástur á
kronan.is/
töfrar
DRYKK!
SUMAR
Töfraðu fram ...
✿ Framboðnir sætiskílómetrar
2015-2024 (ma.)
✿ Farþegar
2015-2024 (m.)
Hraðari
vöxtur
Hraðari
vöxtur
15A 16A 17A 18A 19A 20F 21F 22F 23F 24F
11
14
15
16 17
15A 16A 17A 18A 19A 20F 21F 22F 23F 24F
3,1
3,7
4,0 4,1
4,4
✿ Tekjur
(m.USD)
✿ EBIT
(m.USD)
Niðurfærsla
viðskipta-
vildar
3,1%
CAGR
15A 16A 17A 18A 19A 20F 21F 22F 23F 24F
1.085
1.214
1.332
1.409 1.412
1.643
1.390
1.036
637
499
<
15A 16A 17A 18A 19A 20F 21F 22F 23F 24F
-2
39
-363
134 113
46 54
78
135
175
-60 -43
12%EBIT% 9% 3% -4% 4% -7% 8% 10% 1%-73%
-1
24
Icelandair verði mjög samkeppnishæft
Forstjóri Icelandair telur að flugfélagið verði vel í stakk búið til að keppa á flugmarkaðinum á næstu árum ef áætlanir þess ganga
eftir. Kemur til greina að sölutryggja útboðið. Hertar aðgerðir á landamærum hafa ekki áhrif á útboðið eða langtímaáætlanir.
hafafund sem felur í sér að stjórn
félagsins verði heimilt að ákveða
að hinum nýju hlutum í félaginu
fylgi áskriftarréttindi (e. warr
ant) sem samsvara allt að 25 pró
sentum af skráningu nýrra hluta
í útboðinu.
„Það kemur til greina og er til
skoðunar hjá félaginu,“ segir Bogi,
spurður hvort stefnt sé að því að
sölutryggja útboðið. Með sölu
tryggingu er átt við samning milli
fjármálafyrirtækis og útgefanda
verðbréfa þar sem fjármálafyrir
tækið skuldbindur sig til þess að
kaupa þann hluta verðbréfa sem
áskrift næst ekki fyrir í almennu
útboði.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins er hor ft til þess að
Íslandsbanki og Landsbankinn
taki að sér að sölutryggja útboðið.
Hlutafjárútboðið mun ekki fela
í sér neinar skuldbreytingar, það
er að segja að kröfum sé breytt
í hlutafé, að sögn Boga. „Ef við
berum okkur saman við f lugfélög
eins og Norwegian sem fóru þá
leið, þá var fyrst og fremst verið
að breyta vanskilum eða óveð
tryggðum skuldum í hlutafé,“
útskýrir Bogi.
„Við erum hvorki með vanskil
né óveðtryggð skuldabréf, þann
ig að staða okkar gagnvart lánar
drottnum var allt önnur en hjá
Norwegian.“
Spurður hvort hertar aðgerðir á
landamærunum hafi áhrif á hluta
fjárútboðið eða áætlanir félagsins
svarar Bogi neitandi.
„Þær hafa ekki áhrif á okkar
langtímaplön. Frá því í vor höfum
við talað um að þetta ár yrði
mikið óvissuár. Að það yrði lítil
eftirspurn og lítið f logið fram á
næsta vor. Vissulega hafa þessar
ferðatakmarkanir gríðarleg áhrif
til skemmri tíma fyrir íslenska
ferðaþjónustu, og þar af leiðandi á
framleiðslu okkar á næstu vikum.
Við munum þurfa að fækka f lug
um næstu vikurnar. En þetta er í
takt við grunnsviðsmyndina sem
við höfum búið okkur undir, það
er að eftirspurn fyrir árið í heild
yrði mjög veik, og hefur þess vegna
ekki áhrif á hlutafjárútboðið,“ segir
Bogi.
Icelandair sér fram á neikvætt
sjóðsstreymi í vetur en er þó vel
í stakk búið til að standa undir
sínum skuldbindingum.
„Af því gefnu að við klárum
þetta hlutafjárútboð verður félag
ið í stakk búið til að standa undir
sínum skuldbindingum og verður
með sterka lausafjárstöðu í gegn
um tiltölulega tekjulítið tímabil
fram á næsta vor. Það er grunn
sviðsmyndin sem við erum að
horfa á,“ segir Bogi.
Fjárhagsleg endurskipulagning
Icelandair hefur meðal annars
falist í því að ná samningum við
kröfuhafa og birgja. Í kynningunni
kemur fram að samningarnir hafi
bætt fjárhagsstöðu fyrirtækisins,
miðað við óbreytt ástand, um 450
milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði
61 milljarðs íslenskra króna.
Til að mynda hefur greiðslu á
fjármagnsgjöldum að fjárhæð 6,8
milljarðar króna verið frestað um
allt að 24 mánuði. Mestu munar
þó um samninga við Boeing sem
bættu stöðuna um 260 milljónir
dollara, jafnvirði um 35 milljarða
króna.
Hinir nýju samningar kveða á
um að f lugfélagið kaupi tólf Boeing
737 MAX í stað 16, Icelandair fái
aukinn afslátt við kaup á þeim sex
f lugvélum sem á eftir að afhenda og
fébætur.
„Þetta er lánalína til þrautavara“
Icelandair hefur náð samkomulagi við ís-
lensk stjórnvöld um ríkisábyrgð á lánalínu
til tveggja ára frá Íslandsbanka og Lands-
bankanum að fjárhæð allt að 16,5 milljarðar
króna. Ríkisábyrgðin nær yfir 90 prósent af
láninu og eru vextir lánsins reiknaðir sem
álag ofan á LIBOR-vexti, sem hækkar eftir
því sem meira er dregið á lánalínuna. Skilmálar
lánsins eru þeir að eigið fé Icelandair haldist
yfir 2 prósentum.
„Hugsunin með lánalínuna er að
þurfa ekki að draga á hana. Þetta
er lánalína til þrautavara.
Ef ástandið varir hins vegar
lengur en fram á næsta vor, þá
gætum við þurft að nýta hana,“
segir Bogi.
Með þeim aðgerð-
um sem við munum
fara í verður félagið mjög
samkeppnishæft á þeim
markaði sem það starfar á.
Bogi Nils Bogason, forstjóri
Icelandair Group
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir að áætlanir og hagræðingaraðgerðir félagsins geri það vel í stakk búið til að keppa
á f lugmarkaðinum. Með sveigjan
legri kjarasamningum og auknu
vinnuframlagi áhafna, ásamt
öðrum hagræðingaraðgerðum,
áætlar Icelandair að kostnaður á
hvern sætiskílómetra (CASK) lækki
um samtals 10 prósent til ársins
2024. Launakostnaður verður 28
prósent af tekjum, samanborið við
30 prósent árið 2018.
„Við gerum ráð fyrir ákveðnum
verðlagshækkunum eins og verið
hafa undanfarin ár. Ef sú forsenda
gengur eftir munu önnur félög
einnig glíma við verðlagshækk
anir. Með þeim aðgerðum sem við
munum fara í verður félagið mjög
samkeppnishæft á þeim markaði
sem það starfar á,“ segir Bogi.
Icelandair Group birti í fyrra
kvöld í Kauphöll kynningargögn
fyrir fyrirhugað hlutafjárútboð
félagsins, en útboðið er lokahnykk
urinn í fjárhagslegri endurskipu
lagningu félagsins. Viðmælendur
Markaðarins sem starfa á fjármála
markaði og fjárfestar, höfðu á orði
að áætlanir félagsins litu vel út við
fyrstu sýn og virtust byggja á raun
hæfum sviðsmyndum.
Áætlanir Icelandair gera meðal
annars ráð fyrir að f lugframboð
félagsins aukist jafnt og þétt. Árið
2024 verði framboðið komið í sama
horf og það var árið 2018. Þá er gert
ráð fyrir að tekjur félagsins hafi
hækkað upp í 1,6 milljarða dala
árið 2024 og verði þannig um 3 pró
sentum hærri en þær voru í fyrra.
EBIT, rekstrarhagnaður fyrir fjár
magnsliði og skatta, tekur síðan
við sér og verður 175 milljónir dala
árið 2024.
Í hlutafjárútboðinu gerir Ice
landair ráð fyrir að selja nýja hluti
fyrir 20 milljarða króna að nafn
verði á genginu 1 króna á hlut. Komi
til umframeftirspurnar í hluta
fjárútboðinu, mun stjórn félagsins
hafa heimild til að auka hlutafé enn
frekar um allt að 3 milljarða, þannig
að stærð útboðsins yrði að hámarki
23 milljarðar króna.
Til viðbótar er gert ráð fyrir því
að tillaga verði lögð fyrir hlut
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
MARKAÐURINN
2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð