Fréttablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.08.2020, Blaðsíða 10
Skammt austan við Höfn í Hornafirði er Vestrahorn, eitt af af tignarlegustu fjöllum landsins og útvörður Suðausturlands. Þetta er klasi tinda og er sá vestasti, Klifatindur (890 m), hæstur. Upp á hann liggur göngu-leið sem ekki krefst klifurs líkt og þegar lagt er til atlögu við aðra tinda Vestrahorns. Þær klifur- leiðir þykja með þeim bestu hérlendis, ekki síst snar- brattur austurveggur Kambshorns. Ástæðan er sú að Vestrahorn er gert úr gabbrói; hörðu djúpbergi sem ekki er jafn laust í sér og blágrýti og móberg sem flest íslensk fjöll eru gerð úr. Sérkennilegasti tindur Vestra- horns er sá austasti og heitir Brunnhorn (454 m). Það minnir á Batman, sérstaklega séð að norðanverðu úr Papafirði. Þarna eru ýmsar skemmtilegar gönguleiðir í boði og hægt að virða fyrir sér leðurblökumanninn í návígi. Bílum er lagt skammt frá bænum Syðra-Firði en vegna skugga frá fjöllum Vestrahorns er sólar- gangur þarna hvað stystur á bóndabæ á Íslandi. Orti Eiríkur Guðmundsson bóndi svo: Lengi að þreyja í þessum skugga þykir mörgum hart. Samt er á mínum sálarglugga sæmilega bjart. Meðfram Papafirði er þægileg ganga út að Papósi en þar er frábært útsýni að litríkum fjöllunum upp af Papafirði og Lóni. Við Papós var helsti verslunar- staður sýslunnar um rösklega þrjátíu ára skeið og þar byggð reisuleg verslunarhús. Þegar ákveðið var að leggja verslunina af voru húsin tekin niður og þeim fleytt á ævintýrlegan hátt sjóleiðina fyrir Horn og inn Hornafjörð. Enn má víða sjá tóftir gamalla húsa við Papós og þarna er mikið fuglalíf. Fyrir þá sem kjósa lengri göngu má ganga út fyrir Brimnestanga og í kringum Brunnhorn. Enn skemmtilegri gönguleið liggur í suður frá bílastæðinu við Syðra Horn og er þá komið upp í skarð sem heitir því skemmtilega nafni Kex. Efst í skarðinu blasir skyndilega Hornsvíkin við og Stokksnes. Haldið er niður brattar skriður úr Kexi eftir gamalli gönguleið sem ekki er fyrir lofthrædda. Frá Hornsvík er síðan gengið rangsælis út fyrir Hafnartanga og Brimnestanga, fyrir Brunn- horn og fram hjá Papósi uns komið er aftur að Syðra-Firði. Þetta er 14 km löng ganga og mikið fyrir augað, ekki síst við rætur Brunnhorns. Batman á Fróni Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Brunnhorn séð að norðanverðu frá Papafirði. Líkindin við Batman eru sláandi. MYND/TG Ganga meðfram fallegum Papafirðinum gleður auga göngufólks. MYND/TG Horft yfir snarbratta tinda Brunnhorns í áttina að Kambshorni sem einnig tilheyrir Vestra-Horni. MYND/ÓMB 2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.