Fréttablaðið - 20.08.2020, Qupperneq 10
Skammt austan við Höfn í Hornafirði er Vestrahorn, eitt af af tignarlegustu fjöllum landsins og útvörður Suðausturlands. Þetta er klasi tinda og er sá vestasti, Klifatindur (890 m), hæstur. Upp á hann liggur göngu-leið sem ekki krefst klifurs líkt og þegar lagt
er til atlögu við aðra tinda Vestrahorns. Þær klifur-
leiðir þykja með þeim bestu hérlendis, ekki síst snar-
brattur austurveggur Kambshorns. Ástæðan er sú að
Vestrahorn er gert úr gabbrói; hörðu djúpbergi sem
ekki er jafn laust í sér og blágrýti og móberg sem flest
íslensk fjöll eru gerð úr. Sérkennilegasti tindur Vestra-
horns er sá austasti og heitir Brunnhorn (454 m). Það
minnir á Batman, sérstaklega séð að norðanverðu úr
Papafirði. Þarna eru ýmsar skemmtilegar gönguleiðir
í boði og hægt að virða fyrir sér leðurblökumanninn
í návígi. Bílum er lagt skammt frá bænum Syðra-Firði
en vegna skugga frá fjöllum Vestrahorns er sólar-
gangur þarna hvað stystur á bóndabæ á Íslandi. Orti
Eiríkur Guðmundsson bóndi svo:
Lengi að þreyja í þessum skugga
þykir mörgum hart.
Samt er á mínum sálarglugga
sæmilega bjart.
Meðfram Papafirði er þægileg ganga út að Papósi
en þar er frábært útsýni að litríkum fjöllunum upp
af Papafirði og Lóni. Við Papós var helsti verslunar-
staður sýslunnar um rösklega þrjátíu ára skeið og þar
byggð reisuleg verslunarhús. Þegar ákveðið var að
leggja verslunina af voru húsin tekin niður og þeim
fleytt á ævintýrlegan hátt sjóleiðina fyrir Horn og inn
Hornafjörð. Enn má víða sjá tóftir gamalla húsa við
Papós og þarna er mikið fuglalíf. Fyrir þá sem kjósa
lengri göngu má ganga út fyrir Brimnestanga og í
kringum Brunnhorn. Enn skemmtilegri gönguleið
liggur í suður frá bílastæðinu við Syðra Horn og er þá
komið upp í skarð sem heitir því skemmtilega nafni
Kex. Efst í skarðinu blasir skyndilega Hornsvíkin við
og Stokksnes. Haldið er niður brattar skriður úr Kexi
eftir gamalli gönguleið sem ekki er fyrir lofthrædda.
Frá Hornsvík er síðan gengið rangsælis út fyrir
Hafnartanga og Brimnestanga, fyrir Brunn-
horn og fram hjá Papósi uns komið er aftur
að Syðra-Firði. Þetta er 14 km löng ganga
og mikið fyrir augað, ekki síst við rætur
Brunnhorns.
Batman á Fróni
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Brunnhorn séð
að norðanverðu
frá Papafirði.
Líkindin við
Batman eru
sláandi.
MYND/TG
Ganga meðfram fallegum Papafirðinum gleður auga göngufólks. MYND/TG
Horft yfir snarbratta tinda Brunnhorns í áttina að Kambshorni sem einnig tilheyrir Vestra-Horni. MYND/ÓMB
2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð