Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.08.2020, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 20.08.2020, Qupperneq 22
Stelpur vilja klæða sig eins og Charli D’Amelio og vinkonur hennar á TikTok: í þægi- legum fatnaði sem er auðvelt að hreyfa sig í, leika og dansa. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Það þarf ekki annað en að líta í kringum sig til að sjá hvaða áhrif vinsælustu unglings- stúlkurnar á TikTok hafa á klæða- burð stúlkna í dag. Þær ganga um í íþróttafatnaði, jafnt þröngum sem víðum, oftar en ekki látlausum síðbuxum, síðum hettupeysum og háskólabolum, eða þá í toppi eða stuttum magabol við. TikTok er urmull af tískuvitum sem kunna sitt fag, án þess þó að tefla fram hátísku eða of miklum glamúr. Vinsælasta stelpan á Tik- Tok er án efa bandaríski dansarinn Charli D’Amelio sem hefur áhrif á tískuheiminn í sívaxandi mæli. Charli er aðeins sextán ára og með 80 milljónir fylgjenda um allan heim og vex fjöldi þeirra hratt. Hún er með eindæmum bros- mild og spreðar gleði og gæsku í myndböndum þar sem hún tekur dansspor sem nú tröllríða heims- byggðinni, og einstaka sinnum má sjá eldri systur hennar Dixie (með 35 milljónir fylgjenda), eða þá mömmu hennar og pabba, taka sporið með henni í bakgrunni. Foreldrar Charli viðurkenna að hafa í fyrstu haft efasemdir um framgang dóttur sinnar á TikTok og spurt hvers vegna í ósköpunum hún væri að taka upp myndbönd í herberginu sínu með óumbúið rúmið í bakgrunni og óhrein föt á gólfinu. Spiluðu þar inn í áhyggjur af almenningsálitinu þegar kæmi að uppeldinu heima fyrir, að kenna stelpunni ekki að búa um sig á morgnana og taka til í her- berginu. Þau áttuðu sig svo fljót- lega á að áhorfendur heilluðust af því hversu Charli væri ósvikin og tilgerðarlaus. Hún var líka fljót að sýna sitt hreina hjarta og hefur lagt Unglingsstjörnur leggja tískulínurnar Samfélagsmiðillinn TikTok hefur ekki síður áhrif þegar kemur að tískustraumum en tískuhús heimsins. Vinsælasti áhrifavaldurinn er aðeins sextán ára og með yfir 80 milljónir fylgjenda. Addison Rae og systurnar Dixie og Charli D’Amelio eru meðal langvinsælustu áhrifavalda heims. MYNDIR/GETTY D’Amelio-fjölskyldan er öll orðin fræg og birtist senn í raunveruleikaþætti um heimilislífið. Frá vinsti: Charli og Dixie og foreldrarnir Heidi og Marc. Charli er góð fyrirmynd með grímu. Avani Gregg þykir afar svöl og fín. Addison Rae í stíl við COVID-tíma. lóð á vogarskálarnar gegn einelti, loftslagsvá og kynþáttafordómum. Áhrif Charli á klæðaburð ungra stelpna og kvenna eru ótvíræð og þær vilja klæðast frjálslegum fötum eins og Charli, systir hennar og vinkonur gera þegar þær dansa með þokka og tilþrifum, í galla- eða joggingbuxum, bolum, toppum og hettupeysum úr bóm- ull: þægilegum fatnaði sem er auð- velt að hreyfa sig í, sparka, snúast og rúlla sér, á meðan dansað er og leikið sér. Meðal góðra vinkvenna Charli, og sem eru sömuleiðis stórir áhrifavaldar á tísku ung- menna og hafa milljónir fylgjenda á bak við sig, eru skvísurnar Add- ison Rae og Avani Gregg. Í vetur sem leið var Charli boðið að sitja á fremsta bekk á tískusýn- ingu Prada fyrir haust- og vetrar- tískuna í vetur og hefur hún átt í samstarfi við Vanity Fair og CNN Style á YouTube. Þá hefur hún birst í spjallþáttum og auglýsingum, meðal annars fyrir Super Bowl, og ljær teiknimyndapersónunni Tinker rödd sína í kvikmyndunum StarDog og TurboCat. Á teikni- borðinu eru raunveruleikaþættir með D’Amelio-fjölskyldunni. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.