Fréttablaðið - 20.08.2020, Qupperneq 26
Móðir okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Ingibjörg Þorkelsdóttir
Tröllakór 10,
lést 6. ágúst á Landspítalanum við
Hringbraut. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kristín G. Jóhannsdóttir
Bjarni J. Jóhannsson Carina Broman
Þorbjörg Hjálmarsdóttir
Sigríður Ósk Benediktsdóttir Haraldur Orri Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Helgi Jónasson
fv. fræðslustjóri,
lést miðvikudaginn 12. ágúst að
Hrafnistu, Hafnarfirði. Hann verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 21. ágúst kl. 13.
Erla Sigurjónsdóttir
Guðbjörg Helgadóttir Einar Oddur Garðarsson
Kristín Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær systir okkar,
Edda Hrafnhildur
Björnsdóttir
lést á heimili sínu í Reykjavík,
þriðjudaginn 11. ágúst.
Í ljósi aðstæðna í samfélaginu
fer útförin fram með nánustu ættingjum og vinum.
Þökkum auðsýnda samúð.
Friðrik Björnsson
Oddgeir Björnsson
Skjöldur Vatnar Björnsson
Björgólfur Björnsson
Þorbjörg Björnsdóttir
Arnheiður Björnsdóttir
Aðalheiður Björnsdóttir
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma
Hjördís M. Magnúsdóttir
kennari,
andaðist 13. ágúst.
Útför mun fara fram frá Lindakirkju
föstudaginn 28. ágúst kl. 15.
Vegna samkomutakmarkana er athöfnin einungis
fyrir ættingja og vini.
Hálfdán Helgason
Kristín Anna Einarsdóttir Páll Árnason
Guðmundur Einarsson Súsanna Schmidt
Helga Einarsdóttir Sigurjón Eiríksson
Áslaug Helga Hálfdánardóttir Matthías V. Baldursson
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Vordís
Aðalsteinsdóttir
Húsfreyja á Syðri-Bægisá,
Hörgársveit,
lést 11. ágúst á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Útför verður mánudaginn 24. ágúst frá Glerárkirkju
klukkan 13.30. Vegna fjöldatakmarkana verður eingöngu
nánustu ættingjum og vinum boðið í kirkjuna, jarðsett
verður í Bægisá. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á að láta Sjúkrahúsið
á Akureyri njóta þess.
Katrín Steinsdóttir Jóhannes Sigfússon
Helgi Bjarni Steinsson Ragnheiður Margrét
Þorsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jakob Árnason
húsasmíðameistari og loðdýrabóndi,
Miðtúni 2,
Keflavík,
lést mánudaginn 17. ágúst á Hrafnistu,
Hlévangi. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu
aðstandendur viðstaddir útförina. Starfsfólki Hlévangs
eru færðar innilegustu þakkir fyrir góða og hlýja
umönnun. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Hollvini Grensásdeildar.
Ísleifur Árni Jakobsson Laufey Hrönn Þorsteinsdóttir
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir Gunnar I. Baldvinsson
Kristinn Þór Jakobsson Ólöf Kristin Sveinsdóttir
Ásdís Ýr Jakobsdóttir Valur B. Kristinsson
Sigrún Björk Jakobsdóttir Jón Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
Bjarki Jónsson
Aðalgötu 32, Ólafsfirði,
lést á sjúkrahúsinu á Siglufirði
þriðjudaginn 11. ágúst sl.
Útför fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
mánudaginn 24. ágúst og hefst kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitina
Tind Ólafsfirði.
Þrúður Pálmadóttir
Gönguhópur sem kallar sig Strandverði er 24 ára gamall að stofni til, hluti af honum byrjaði á að ganga Horn-strandir 1996 og þá varð
nafnið til,“ segir Guðmunda Steingríms-
dóttir sjúkraliði. Hún er sjálf einn Strand-
varðanna og hóaði í hópinn nýlega til
skrafs og ráðagerða, hann hafði skráð sig í
Reykjavíkurmaraþonið í göngu til ágóða
fyrir Alzheimersamtökin.
„Hópmaraþoninu var aflýst en fólki
er heimilt að hlaupa eða ganga þegar
því hentar og við ætlum að halda okkar
markmiði 22. ágúst,“ lýsir Guðmunda.
„Leiðin liggur úr Laugardalnum inn í Ell-
iðaárdal, þar hring og til baka aftur. Þó
enginn verði að fylgjast með og klappa
þegar við komum í mark þá getur fólk
treyst því að við stöndum okkur,“ bætir
hún við hlæjandi en verður alvarleg
aftur og segir Alzheimersamtökin vera
öllum Strandvörðunum hugleikin. „Ein
í hópnum fór með móður sinni á stofn-
fund samtakanna 1986 og gerðist strax
félagi í þeim. Við eigum öll, eða höfum
átt, einhvern nákominn með sjúk-
dóminn, hann er nánast í öllum fjöl-
skyldum,“ segir Guðmunda. Hún kveðst
vona að fólk heiti á Alzheimersam-
tökin gegnum síðuna hlaupastyrkur. is.
„Reykjavíkurmaraþonið hefur alltaf
verið stór tekjulind fyrir þessi samtök,
eins og mörg önnur góðgerðafélög.“
Guðmunda starfar í Dagendurhæf-
ingu Hrafnistu. Hún var ein þriggja
kvenna sem stofnuðu fyrsta Alzheimer-
kaffið á Íslandi árið 2012 í Hæðargarði
31. „Við sköpuðum vettvang fyrir fólk
með Alzheimer og skylda sjúkdóma og
aðstandendur þess til að koma saman og
sáum sjálfar um reksturinn í fjögur og
hálft ár. Þá tóku Alzheimersamtökin við
og nú er slík starfsemi komin víða um
land.“ gun@frettabladid.is
Ætla að ganga til góðs
Nú þegar fólk má ganga og hlaupa í þágu góðra málefna láta Strandverðir ekki sitt eftir
liggja. Þeir ætla í 10 kílómetra göngu á laugardag og styrkja Alzheimersamtökin.
Gönguhópurinn Strandverðir svo til klár í slaginn. Viðmælandinn Guðmunda er lengst til vinstri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Við eigum öll, eða höfum átt,
einhvern nákominn með sjúk-
dóminn, hann er nánast í öllum
fjölskyldum.
Komist var í fyrsta skipti á bíl um Sprengisand
þennan dag árið 1933, eftir sex daga ferð úr Reykja-
vík. Í för voru Einar Magnússon, Sigurður Jónsson
frá Laug, sem var bílstjórinn, Jón Víðis og Valdi-
mar Sveinbjörnsson. Þeir óku húslausum Ford frá
1927 sem var bara með sæti frammi í. Voru með
viðleguútbúnað, kompás og kort, gert af Jóni Víðis,
því ekki var til kort af miðhálendinu. Á fyrsta degi
náðu félagarnir að slökkva eld í leiðslum, á öðrum
degi komu þeir bílnum á ferjubát við Tungnaá og
reru lífróður með hann yfir. Þeir lentu í byl við
Tungnafellsjökul, veltu steinum af leið sinni og var
tekið með fögnuði á Mýri í Bárðardal.
Þ E T TA G E R Ð I S T 2 0 . ÁG Ú S T 1933
Fyrsta Sprengisandsferð á bíl varð að veruleika
Planka var skotið undir eitt hjól sem stóð út af. MYND/JÓN VÍÐIS
2 0 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT