Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 4
1 „Ég er á kúpunni, eiginlega bara í mínus” sagði Rúrik – „Mér líður hræðilega” Knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason gerði símaat í útvarps- þætti þar sem hann laug að mági sínum að hann væri blankur. 2 Einar Jónsson látinn – „Hans verður sárt saknað og við munum minnast hans um ókomna tíð” Fyrrverandi leikmaður og þjálfari Selfoss í knattspyrnu er látinn. 3 Leynileg upptaka Samherja af Helga Seljan verður opinberuð – „Þú mátt ekki segja þeim frá þessu” Samherji birti í vikunni myndband á YouTube þar sem vegið var að heil- indum RÚV og Helga Seljan vegna umfjöllunar um Seðlabankamálið. 4 Ný banvæn veira herjar á Kína Bunya-veiran svonefnda berst nú manna á milli í Kína. 5 Einn virtasti fjölmiðill heims fjallar um íslenska fasteign – Metin á 108 milljónir The New York Times fjallaði um sumarhús við Illagil sem er til sölu á Íslandi. 6 Vikan á Instagram: „RIP sumar 2020” Vikan á Instagram er fastur liður á mánudögum hjá DV. 7 Hjólar í Kára Stefánsson: „Núna sitjum við uppi með afleiðing- arnar af þessum skapsveiflum for- stjórans” Ólafur Haukur almanna- tengill kenndi Kára Stefánssyni um endurkomu kórónaveirunnar. 8 Play ræður inn kanónu úr flugbransanum Sandra Ósk Sigurðardóttir, fyrrverandi vefstjóri WOW air, hefur verið ráðin til flug- félagsins Play. 9 Knattspyrnumaður í vand-ræðum – Myndband opinberar kynlífspartý Adalberto Penaranda er í vandræðum eftir að myndband af honum í kynlífspartíi komst á netið. 10 Sakar leigusala um að henda eigum sínum út úr íbúð á Njálsgötu – „Mér hefur aldrei verið ógnað eins mikið” Leigusali henti út búslóð leigjenda sinna. MEST LESIÐ Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST... Tilslakanir á takmörkunum Svo virðist sem tökum hafi verið náð á hinni svokölluðu seinni bylgju COVID-19 hér á landi. Tilslakanir hafa verið boðaðar á takmörkunum settum í kjölfar þeirra. Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir sagði í vikunni að hann myndi frekar vilja hafa fastar takmarkanir sem fyrirtæki og fólk í landinu gætu vanið sig við og aðlagast, en að vera að sveifla á milli tilslakana og takmarkana. Fótboltinn aftur af stað Fótboltaunnendur landsins glöddust yfir fréttum af því að fót- boltinn yrði aftur leyfður. Samkvæmt nýjum reglum um tak- markanir sem taka gildi á morgun verða snertiíþróttir heimil- aðar að nýju. Á boltinn að fara að rúlla á ný í dag, föstudag. Enn gildir tveggja metra reglan um áhorfendur og má því búast við að fáir verði á vellinum fyrst um sinn, ef einhverjir. Órakið hópsmit DV sagði frá því í vikunni að smitrakningarteymi al- mannavarna ynni hörðum höndum að því að rekja hópsmit. Að minnsta kosti 32 smit má rekja til sama afbrigðis veirunnar sem líklegt er að hafi komið til landsins frá Austur-Evr- ópu. Hundruð voru send í sóttkví í vikunni, þar á meðal á fjórða tug starfs- manna Torgs, sem gefur meðal annars út DV. Helgi Seljan og Samherji Samherjamálið vaknaði upp af værum blundi í vikunni þegar útgerðarfélagið birti myndskeið á netinu þar sem Helgi Seljan og RÚV voru ásökuð um að ljúga um til- vist skýrslu um sölu karfa á undirverði til erlendra dóttur- félaga. Samherji sagði skýrsl- una aldrei hafa verið til. Síðar í vikunni kom þó í ljós að skýrslan var vissulega til, í formi Excelskjals þó. Sam- herji hefur boðað fleiri þætti. Landsréttur snýr við frávísun héraðsdóms Landsréttur ógilti úrskurð Héraðsdóms um að vísa frá dómi ákæru vegna alvarlegs kynferðisbrots Gylfa Jóns Gylfasonar sálfræðings gegn unglingi sem var í sálfræðitímum hjá hon- um. Verður málið því tekið upp að nýju í Héraðsdómi Reykja- ness í haust. Brotin áttu sér stað í Holtaskóla í Reykjanesbæ, þar sem drengurinn var sendur til Gylfa í sálfræðimeðferð árið 2014. Menningarnótt blásin af Menningarnótt Reykjavíkur var blásin af í vikunni með öllu. Áður hafði verið tilkynnt að Menningarnótt yrði að „Menn- ingarnótt, eftir nótt eftir nótt“, og átti að standa í tíu daga til þess að dreifa álaginu af einum degi og koma í veg fyrir að fleiri en 1.000 kæmu saman á sama stað. Eftir að hámarks- fjöldi var færður úr 1.000 niður í 100 og tveggja metra reglan tekin upp að nýju var hátíðin blásin af. Er þetta í fyrsta sinn frá því 1996 sem Menningarnótt fer ekki fram. Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri sagði neyðarstjórn borgarinnar einhuga í þeirri ákvörðun. G Ö N G U K ORT H I K I N G M A P GÖNGUM INN Í SUMARIÐ Göngusérkortin með grænu röndinni sýna leiðir sem síminn þinn veit ekki einu sinni um og koma þér örugglega á áfangastað LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16 4 FRÉTTIR 14. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.