Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 26
26 FÓKUS 14. ÁGÚST 2020 DV
Sjónvarpsgúmmelaði að
hætti eldhúshetjunnar Evu
Mexíkópitsa með djúsí ostasósu
Í þessar pitsur notar Eva Laufey
sérstaka tortillu-pitsubotna sem
kaupa má tilbúna úti í búð og tekur
því pitsugerðin örstutta stund.
2 tortilla-pitsakökur
1 dós sýrður rjómi
1 mexíkóostur, rifinn
500–600 g kjúklingakjöt t.d. úr-
beinuð kjúklingalæri
2 msk. mexíkósk kryddblanda
1 rauð paprika, smátt skorin
Salt
Nýmalaður pipar
Tillögur að áleggi: Lárpera, salsa-
sósa, sýrður rjómi og smátt saxaður
kóríander.
Leggið kjúklingalæri eða annað
kjúklingakjöt í eldfast mót og
kryddið til með bragðmikilli krydd-
blöndu. Eldið í ofni við 180°C í 20
mínútur (fer auðvitað eftir þykktinni
á kjúklingakjötinu).
Á meðan kjúklingurinn er í ofninum
blandið þið sýrða rjómanum og ný-
rifnum Mexíkóosti saman í skál og
kryddið til með salti og pipar.
Smyrjið tortillakökur með osta-
sósunni (ég keypti sérstakar pitsa-
tortillur í Hagkaup, þær eru þykkari).
Skerið papriku og kjúklingakjöt í litla
bita og dreifið yfir ostasósuna.
Bakið í ofni við 180°C í ca. 5–7 mín-
útur. Þegar pitsan er tilbúin er gott
að skera niður avókadó, tómata
og ferskan kóríander og dreifa yfir.
Einnig finnst mér algjört æði að
mylja niður nachos-flögur og sáldra
yfir. Einföld og stórgóð máltíð sem
öllum í fjölskyldunni þykir góð.
Ritzkexhjúpaður camembert
„Ég elska camembert, ég elska
Ritzkex og ég elska góða sultu. Hví
ekki að blanda þessu öllu saman í
ljúffengan smárétt? Þessi réttur er
að mínu mati guðdómlega góður.“
½ pakki Ritzkex
2 egg
100 g ca. hveiti
1 camembert-ostur
Myljið kökurnar í blandara eða mat-
vinnsluvél.
Skerið ostinn í bitastærð.
Veltið hverjum bita fyrst upp úr eggi
og svo upp úr hveiti og loks kexi.
Inn í ofn við 180°C í 6–8 mínútur.
(Misjafnt eftir ofnum, fylgist með
ostinum, um leið og hann er farinn
að bráðna þá er hann tilbúinn.)
Berið fram með góðri sultu.
Verði ykkur að góðu.
Sjónvarpskokkurinn Eva Laufey Kjaran ferðaðist
um landið á matarbíl í sumar þar sem hún kynntist
nýsköpun í matargerð. Afrakstur girnilegra ferða
hennar má sjá í nýjum þætti sem fer í loftið í haust.
Eva Laufey er líka meistari í partíréttum og sjón-
varpsnasli og deilir hér skotheldum uppskriftum.
Eva Laufey hefur í nægu að snúast og stendur einnig vaktina í útvarpsþættinum Bakaríinu á Bylgjunni á laugardögum. MYND/STÖÐ 2
MYND/AÐSEND
MYND/AÐSEND