Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 24
Spilað í gegnum COVID Einangrun og sóttkví þarf ekki að þýða leiðindi og er í reynd fullkomið tækifæri til að verja gæðastundum með sínum nánustu í góðu og skemmtilegu borðspili. DV leitaði til nokk- urra valinkunnra Íslendinga eftir ábendingum um gæða borðspil. FYRIR BYRJENDUR LENGRI SPIL Byrjendur ættu að prófa skyldueignina Bohnanza. Það snýst um að safna baunaspilum í raðir fyrir framan sig og selja síðan uppskeruna á réttum tíma fyrir fúlgur fjár. En þú færð ekki spilin sem þú vilt nema með því að víla og díla við sessunautana. Skraut- legar samningaviðræður og mikil spenna! – Bryndís Tsuro. Einfalt og fljótlegt að læra. Fljótlegt að setja upp og tekur stuttan tíma að spila hvert spil. Mjög gott í upphitun á spilakvöldum líka. – Björn Carcassonne. Einfaldar reglur, og eitt af bestu tveggja manna spilunum. Fyrstu tvær viðbæturnar bæta svo spilið fyrir 3-4, og áður en þú veist af ertu kominn með safn. – Óskar Ég myndi mæla með Splendor, það er svo fínn taktur í því. Það er stutt, lítil uppsetning og það verður bara strategískara eftir því sem þú spilar það meira. – Svanhildur Ég myndi mæla með einhverju sem er ekki of langt, ekki of flókið en samt hæfilega nördalegt. Mysterium fellur vel inn í alla þessa flokka, en þar reyna leikmenn að ráða morðgátu út frá draumsýnum sem draugur afhendir þeim. Mysterium er þannig að mann langar strax að spila það aftur og alla langar að prófa að vera draugurinn. Í þokkabót er það gullfallegt. – Kristinn Haukur Catan er held ég best fyrir alla byrjendur, svona eins og matador, nema skemmtilegt. Það er líka eiginlega ekkert direkt konflikt í grunnspilinu, þannig erfitt að fara í fýlu eð vera tapsár. – Sindri Eitt af ótalmörgum góðum er Castles of Mad King Ludwig. Þar raðar þú niður her- bergjum og lystigörðum þar til þú hefur byggt heilan kastala á borðinu fyrir framan þig. En það er hægara sagt en gert þegar konungurinn er frekur og herbergin sem í boði eru verða sífellt fáránlegri. Skemmtilegt fyrir skapandi spilara sem vilja brjóta heilann. – Bryndís Gloomhaven. Stórt spil þar sem þú spilar sömu persónuna í mörgum spilum og það er alltaf ný áskorun í hverju spili. – Björn Arkham Horror. Þar ráfa rannsóknarmenn um götur Nýja-Englands á þriðja áratug síðustu aldar og reyna að stemma stigu við þeim ógnum sem guðir á borð við Cthulu, Yog Sothoth og Shub-Niggurath spýja út úr sér. Þetta er vel nördalegt og getur tekið allt kvöldið og langt fram á nótt. Spilið er byggt á hryllingssögum hins stórundarlega snill- ings H.P. Lovecraft sem er í miklum metum hjá mér. – Kristinn Haukur Age of Steam. 3+ tímar af uppboðum, leiðaskipulagi og vörusendingum með fjöldanum öllum af kortum í boði til að spila á. – Óskar Ég verð að fá að velja tvö, Concordia og Castles of Burgundy. Ástæðan fyrir því er að það munar oft svo litlu og maður nær betri tökum á spilinu með hverjum leik. Ef ég tapa verð ég að fá að taka annan leik því ég gæti unnið hann. – Svanhildur Twilight Imperium er ávallt langspilakóngurinn, epísk sci-fi styrjöld með pólitísku og viðskiptaívafi. Það verður bara betra og hnitmiðaðra með hverri endurútgáfu, og 4. út- gáfan er vel smurð fullkomnun. – Sindri MYND/GETTY 24 FÓKUS 14. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.