Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR 14. ÁGÚST 2020 DV metnað í starfi sínu hjá Wurth eða í skóla. Grínþátturinn 70 mínútur var á þessum tíma vinsælasta sjónvarpsefni landsins, stýrt af tvíeykinu Simma og Jóa, Sigmari Vil- hjálmssyni og Jóhannesi Ábjörnssyni. Þarna fann ungi sveitastrákurinn metnað sem kom sterkt fram í þrautseigju hans við að koma sér inn hjá þeim félögum. Hann ætlaði að verða sjónvarpsmaður. Annað kom ekki til greina. „Simmi Vill ákvað að gefa mér séns. Ég var búinn að suða í honum um að fá að taka eina falda myndavél. Ég hitti hann fyrst á djamminu og var að reyna að selja honum hvort ég mætti koma og reyna fyrir mér. Hann var svo kurteis að hann sagði bara jájá og svo fékk ég númerið hjá honum. Ég mætti bara upp eftir. Hann ákvað að gefa mér séns fyrir rest. Það var fallegt af hon- um,“ segir Auddi en á þessum tíma voru Simmi og Jói sjálfir orðnir of þekktir til þess að leika í földu myndavélinni sem var vinsælasti liðurinn í þættinum. „Ég vann frítt í fjóra mánuði við að sanna mig. Ég mætti þrisvar sinnum í viku í Wurth klukkan sex á morgnana og vann til þrjú. Þá fór ég í tökur með 70 mínútum.“ Þarna var enginn skortur á dugnaði, orku og hugmyndum. Auddi segir lykilatriði fyrir þá sem vilja starfa í sjónvarpi að móta sínar eigin hugmyndir og að þrautseigjan skili sér. „Stundum kemur fólk til mín og spyr hvað það ætti að gera í fjölmiðlum. Það er ekki mitt að segja þér hvað þú átt að gera, heldur átt þú að koma með hugmyndir. Þegar ég var að koma mér að mætti ég með fullt af hugmyndum að földu myndavélinni sem ég var búinn að skrifa niður. Ég mætti ekki bara og sagði: „Má ég vera með?“ Það sem mér finnst samt leiðinlegast er þegar ungt fólk spyr hversu vel þetta sé borgað. Þú getur ekki byrjað á því að hugsa um það. Það þarf að byrja á því að vinna sig upp í að fara á laun og svo í að þetta verði ágætis laun.“ Enginn á Íslandi það frægur Auddi átti það til að stuða marga. Hann er skapstór, athyglissýkin átti um tíma stærri hluta af honum en honum þykir í dag fallegt og hann hefði jafnvel flokkast sem frekja. Það er þó líklega sú frekja sem náði allan hring- inn yfir í þrautseigju sem kom Audda á þann stað sem hann er á í dag. „Þegar ég var að byrja þá dýrkaði ég að fá spurninguna: „Ert þú ekki gaurinn í földu myndavélinni?“ Þetta kom í svona bylgjum. Fyrst fannst mér þetta alveg geggjað og ég vonaðist til að fólk þekkti mig. Svo kom stutt tímabil þar sem mér fannst ég voða spaði en það entist stutt sem betur fer. Almennt er það bara hrós ef fólk vill tala við þig.“ Auddi segir frægð á Íslandi ekki vera hamlandi. „Ég hef Auðunn Blöndal er einn þekktasti sjónvarpsmaður landsins og hefur starfað í sjónvarpi í 20 ár. MYND/VALLI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.