Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 16
16 EYJAN 14. ÁGÚST 2020 DV MEIRI HAGSMUNIR FYRIR MINNI Mikið mæðir nú á ríkisstjórninni en þeir eru ýmsir sem telja nýja bylgju kórónaveir- unnar einkum stafa af alls ótímabærri tilslökun ríkisins á íslensku landamærunum. Sóttvarnaaðgerðir ríkis­stjórnarinnar voru í brennidepli þessa vikuna. Ríkisstjórnin hefur hingað til vísað til þess að ákvarðanirnar séu teknar að tillögum sér­ fræðinga í sóttvörnum og vakti það því athygli þegar land­ læknir, Alma Möller, greindi frá því að það hefði verið að frumkvæði ríkisstjórnarinnar sem slakað var á sóttvörnum við landamæri Íslands. DV tók saman það sem bar hæst í um­ ræðunni í vikunni varðandi aðgerðir ríkisstjórnarinnar við landamæri landsins. Var meiri hagsmunum lýðsins fórnað fyrir minni hagsmuni ferða­ þjónustunnar og er raunhæft að loka landamærum Íslands? Efnahagur eða lýðheilsa „Við vorum komin á góðan stað, við vorum búin að hreinsa landið að nokkru leyti af veir­ unni,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagrein­ ingar, í þættinum Sprengi­ sandi á sunnudag. Kári telur skynsamlegustu leiðina gegn kórónaveirunni vera að loka landamærum Íslands. Margir hafa í vikunni tekið undir með Kára og krefjast þess að stjórn­ völd forgangsraði heilsu þjóð­ arinnar ofar en efnahagslegum ábata af opnum landamærum og ferðaþjónustu. Ríkisstjórnin hefur tekið til varna í umræðunni og minnt á að landamæri Íslands hafi aldrei verið lokuð þó að ferða­ takmörkunum hafi verið beitt. Það hafi snemma í faraldrinum komið á daginn að smit frá ferðamönnum væri lítið sem ekkert og það skipti sköpum að koma efnahagslífi Íslands aftur í gang. Áslaug Arna Sigurbjörns­ dóttir dómsmálaráðherra skrifaði grein í Morgunblaðið þar sem hún benti á að ríkis­ sjóður væri ekki sjálfbær í dag og því riði á að koma hjólum hagkerfisins í gang að nýju. „Við vissum að önnur bylgja veirunnar myndi koma og svo­ kölluð opnun landsins (land sem var aldrei lokað) er ekki ástæða þess.“ Þeim rökum hafnar þó Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor: „Það er ekki rétt að það hafi verið nauðsynlegt fyrir efnahags­ lífið að opna fyrir flæði ferða­ manna,“ skrifaði hann í grein sem birtist í Vísbendingu – vikuriti um viðskipti og efna­ hagsmál, í vikunni. Þar sagði hann stjórnvöld hafa gert mis­ tök með opnun landamæranna. Ákvörðunin hafi ekki verið gerð að nægilega athuguðu máli og með henni hafi miklum almannagæðum verið stefnt í hættu. Rök ríkisstjórnarinnar kallaði hann rökleysur og lík­ lega hefði þrýstingur frá ferða­ þjónustunni spilað þar veiga­ mikinn þátt. Óvissan þungbær Stjórnarandstaðan hefur sömu­ leiðis gagnrýnt stjórnvöld fyrir að láta undan þrýstingi hags­ munaaðila innan ferðaþjón­ ustunnar og sé það jafnframt ámælisvert að þjóðinni sé hald­ ið mánuðum saman í óvissu um framtíðina. DV hafði samband við Loga Einarsson, formann Samfylkingarinnar, og spurði hvort ríkisstjórnin væri að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og jafnframt hvort loka ætti landamærum Íslands. „Ég ætla ekki að fyllyrða það en það er þó ljóst að ríkisstjórnin byggði ákvörðun sína ekki á nægilega vand­ aðri hagsmunagreiningu og það er gagnrýnivert. Ákvörðunin virðist hafa byggt á takmörkuðum greiningum út frá áhrifum á ferðaþjónust­ una. En ný smit, sem kunna að fylgja afléttingu ferða­ takmarkana, hafa auðvitað veruleg áhrif á nær alla aðra atvinnustarfsemi í landinu og daglegt líf fólks.“ Logi segir það eðlilegt að fólk sé að velta stöðunni fyrir sér og hver ávinningurinn af afléttingu ferðatakmarkana sé. Eins hafi ríkisstjórnin vitað það fyrir fram að tilslökun á landamærunum gæti hleypt af stað annarri bylgju kóróna­ veirunnar. „Raunar gaf skýrsla stýri­ hóps um afléttingu ferðatak­ markana sjálf nægt tilefni til að horft hefði verið breiðara yfir sviðið en þar segir: „Um leið er mikilvægt að hafa í huga að ef of geyst er farið getur komið dýrkeypt bakslag í baráttuna gegn veirunni hér innan lands og þá er betur heima setið en af stað er far­ ið.““ Varðandi hvort loka eigi landamærunum segir Logi að um erfiða ákvörðun sé að ræða og huga þurfi vel að ólíkum ósamræmanlegum hags­ munum. Megi þar ekki aðeins horfa til hagsmuna ferðaþjón­ ustunnar. „Sóttvarnalæknir telur öruggast að herða ferðatak­ markanir með þeim hætti að allir sem hingað koma fari í sóttkví og tvær skimanir út frá sóttvarnalegum sjónar­ miðum – en hvaða leið sem farin verður er sú ákvörðun afdrifarík og þarf að byggja á heildrænu mati á hagrænum áhrifum, ekki aðeins á ein­ stakar mikilvægar atvinnu­ greinar. Við þurfum að huga sérstaklega að áhrifum á líf fólks; álagi á heilbrigðiskerfið, efnahag heimila, möguleikum aldraðra og sjúkra til að hitta ástvini sína og barna og ungs fólks til að sækja skóla með eðlilegum hætti. Við þurfum að taka ákvörðun út frá þess­ ari heildarmynd.“ Tækifærissinnar Katrín Jakobsdóttir for­ sætisráðherra skrifar gagn­ rýni stjórnarandstöðunnar á tækifærismennsku. „Ég furða mig satt best að segja á því ef stjórnmálamenn ætla að notfæra sér faraldurinn og sóttvarnaaðgerðir okkar til póli tískrar tækifæris­ mennsku,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið. Að hennar mati er það tvennt sem skiptir máli í þessari fordæmalausu stöðu. Heilbrigðis­ og sótt­ varnasjónarmið annars vegar og svo að halda samfélaginu sjálfu gangandi. „Hluti af því er að greiða fyrir samgöngum í frjálsu samfélagi.“ Katrín bendir á að sótt­ varnalæknir hafi ítrekað sagt að lokun landamæra gæti ekki tryggt að kórónaveiran bærist ekki aftur til lands­ ins. „Þrátt fyrir allar reglur um sóttkví höfum við aldrei tryggingu fyrir því að allir fylgi henni. Þarna eru ótal erfiðar spurningar og þeim verður ekki svarað með hag­ fræðiúttekt eingöngu.“ Katrín hafnar einnig þeirri gagnrýni að ríkisstjórnin hafi slakað á takmörkunum við landamær­ in sökum þrýstings frá ferða­ þjónustunni. Einfalt já Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, telur aug­ ljóst að tilslakanir á landa­ mærunum hafi falið í sér súr skipti. „Spurningunni hvort verið sé að fórna meiri hags­ munum fyrir minni með því að opna landamærin í núver­ andi ástandi og annarri bylgju faraldursins er auðsvarað með einföldu „já“.“ Hefur hann í greinaskrifum í vikunni bent á að leið til að vernda heilsu þjóðarinnar og vernda sömu­ leiðis efnahaginn sé skýr, og það sé í nýsköpun. Efnahagur þjóðarinnar rísi ekki og falli með ferðaþjónustunni einni. „Nei, það á ekki að lama hér íslenskt efnahagslíf. En stjórn­ völd eru að gera nákvæmlega það með því að fara óvarlega í opnun landamæra í þessu ástandi. Þau taka áhættuna á því að allt lamist hér innan­ lands ef veiran tekur sig upp á ný.“ Ljóst er að fram undan þurfa stjórnvöld að taka erf­ iðar ákvarðanir sem líklega falla ekki öllum í geð. Seinni bylgja kórónaveirunnar er staðreynd og mun þjóðin að líkindum þurfa að glíma við hana eða afleiðingar hennar þar til bóluefni finnst, hvort sem landinu verði lokað eða ekki. n Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is Þungar ákvarðanir eru fram undan vegna kórónaveirunnar. MYND/ERNIR Logi Einarsson formaður Sam- fylkingarinnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.