Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 36
36 STJÖRNUFRÉTTIR 14. ÁGÚST 2020 DV The Breakfast Club HVAR ERU ÞAU NÚ? K vikmyndin The Break-fast Club frá árinu 1985 hefur verið sögð ein besta kvikmynd níunda ára- tugarins og hefur komist á fjölda topplista. Hún komst á lista Empire-tímaritsins yfir 500 bestu kvikmyndir allra tíma og í toppsæti tímaritsins Entertainment Weekly yfir 50 bestu menntaskólamyndirnar. The Breakfast Club fjallar um fimm nemendur sem þurfa að taka út refsingu á laugar- degi, á bókasafni skólans, fyrir slæma hegðun. Nem- endurnir koma úr ólíkum átt- um og eiga fátt sameiginlegt. Þau fá það verkefni að skrifa 1.000 orða ritgerð um hvað þau haldi að þau séu. Kennar- inn yfirgefur bókasafnið og athugar reglulega með nem- endurna. Þau verja tímanum á allt annan hátt en þeim var ætlað og verða að lokum góð- ir vinir. Með aðalhlutverk í myndinni fara Emilio Estevez, Anthony Michael Hall, Judd Nelson, Ally Sheedy og Molly Ringwald. Margt hefur á daga þeirra drifið frá því að þau léku í myndinni vinsælu. n Sóley Guðmundsdóttir soley@dv.is ALLY SHEEDY 58 ÁRA Í The Breakfast Club lék Ally stelpu sem var skrítin og passaði illa inn í hópinn. Sheedy var mjög hæfileikaríkt barn, þótti efnilegur dansari og gaf út metsölubók að- eins 12 ára. Sheedy lék þó nokkuð og var um tíma kærasta Bon Jovi. Hún sagði skilið við Hollywood í kjölfar #MeToo-byltingarinnar vegna kynferðislegrar áreitni sem hún varð fyrir en hún hefur nefnt nöfn Christians Slater og James Franco í því samhengi.Hún leikur nú í minni kvikmyndum og forðast Hollywood. JUDD NELSON 61 ÁRS Eftir að hafa slegið í gegn í The Breakfast Club sem útbrunninn hasshaus hefur Judd Nelson leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Nelson var tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir leik sinn í míníseríunni Billiona- ire Boys Club sem kom út árið 1987. Síðan þá hefur hann meðal annars leikið í CSI og Two and a Half Men. Nýjasta kvikmyndin sem Nelson leikur í er jólamyndin Santa Fake sem kom út í fyrra. Nelson hefur leikið í sjónvarpsþáttunum Empire sem hófu göngu sína árið 2015. ANTHONY MICHAEL HALL 52 ÁRA Anthony Michael Hall varð fyrst þekktur fyrir leik sinn í myndunum The Breakfast Club og Weird Science. Í framhaldinu lék hann í fjölda mynda, þar á meðal Ed- ward Scissorhands og Pirates of Silicon Valley. Nýj- asta hlutverk hans er í myndinni Halloween Kills sem kemur út í október á næsta ári. Hall og leikkonan Lucia Oskerova trúlofuðu sig í september í fyrra. MOLLY RINGWALD 52 ÁRA Í myndinni The Breakfast Club lék Ringwald prinsessuna Claire. Ári síðar lék hún í myndinni Pretty In Pink. Síðan þá hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta. Árið 2013 gaf Ringwald út djassplötu. Í dag fer hún með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Riverdale þar sem hún leikur Mary Andrews, móður aðalpersónunnar Archie Andrews. Nýjasta kvikmyndin sem Ring- wald leikur í er The Kissing Booth 2. Mynd númer þrjú er væntanleg og mun Ringwald einnig leika í henni. Ringwald á þrjú börn með grísk-ameríska rithöfundinum Panio Gianopoulos. EMILIO ESTEVEZ 58 ÁRA Emilio Estevez er leikari, framleiðandi, leikstjóri og handritshöfundur. Á sínum yngri árum lék Emilio í fjölda kvikmynda. Undanfarið hefur hann einbeitt sér að leikstjórn. Nýjasta mynd hans, The Public, kom út árið 2018 þar sem hann var bæði handritshöfundur og leikstjóri. Emilio er sonur stór- leikarans Martin Sheen og bróðir Charlie Sheen. Emilio var giftur Idol- drottningunni Paula Abdul um tíma og við skulum svo aldrei gleyma því að hann lék aðalhlutverkið í Myndinni Mighty Ducks þar sem María Ellingsen átti stórleik. Í dag er Emilio orðinn afi og bara nokkuð slakur. Leikarar myndarinnar vinsælu slógu öll í gegn á hvíta tjaldinu sem unglingar. Þau héldu áfram að láta ljós sitt skína í framhald- inu, allt til dagsins í dag. Nú eru þau öll á mismunandi stað. Þarna voru þau við upphaf leiðarinnar upp á stjörnuhimininn. MYND/SKJÁSKOT MYND/GETTY MYND/GETTY MYND/GETTY MYND/GETTY MYND/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.