Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Blaðsíða 8
SAMHERJABÖRNIN Börn Þorsteins Más og Krist­ jáns eru nú stærstu hluthafar í Samherja og hefur gjarnan verið vísað til þeirra sem „Samherja­ barnanna“. Þau eru Katla Þor- steinsdóttir, Baldvin Þorsteins- son, Dagný Linda Kristjánsdóttir, Halldór Örn Kristjánsson, Krist- ján Bjarni Kristjánsson og Katrín Kristjánsdóttir. Þau sem mest hafa látið til sín taka í rekstri og starfsemi Samherja eru Baldvin, Kristján og Halldór. Baldvin er framkvæmdastjóri við­ skiptaþróunar hjá Samherja og stjórnarformaður Eimskips. Bald­ vin bregður fyrir í Samherjaskjöl­ unum og vakti sérstaka athygli mynd í skjölunum þar sem hann stillir sér upp með namibískum konum. Baldvin er iðnaðarverk­ fræðingur og spilaði um árabil handbolta í efstu deild. Baldvin hefur verið nefndur sem líklegastur til að taka alfarið við af föður sínum þegar hann lætur af störfum. Kristján Bjarni starfar sem raf­ eindavirki hjá Samherja og er tölv­ unarfræðingur að mennt. Halldór starfar sem bílstjóri hjá Samherja á Akureyri. Árið 1997 hlaut hann skilorðsbundinn dóm fyrir að stofna lífi og velferð fólks í augljósan háska, stófelld eigna­ spjöll og fleiri brot. LYKILLEIKMENN SAMHERJA BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON Björgólfur er forstjóri Samherja við hlið Þorsteins Más. Björgólfur hefur um árabil verið áberandi í íslensku viðskiptalífi. Hann var áður stjórnarformaður Íslands­ stofu og fyrir það var hann forstjóri Icelandair Group. Hann hefur einnig verið formaður Samtaka atvinnulífs­ ins og í stjórn Festar svo fáein dæmi séu tekin. Hann er samt enginn nýgræðingur hjá Samherja en hann hefur víðtæka reynslu af sjávarútvegi og hefur þar að auki áður starfað fyrir Samherja. Hann hefur verið fjármála­ stjóri Útgerðarfélags Akureyrar, framkvæmdastjóri hjá Samherja og forstjóri Síldarvinnslunnar sem var að hluta í eigu Samherja. JÓN ÓTTAR ÓLAFSSON Jón Óttar er doktor í afbrotafræði og fyrrverandi rann­ sóknarlögreglumaður sem hefur starfað um nokkurt skeið fyrir Samherja. Hann starfaði sem ráðgjafi hjá Samherja á því tímabili sem Samherjaskjölin ná til og var í innsta hring Namibíuveiðanna. Jón Óttar starf­ aði sem rannsóknarlögreglumaður hjá Sérstökum saksóknara en var rekinn árið 2012 fyrir meint brot á þagnarskyldu. Málið var látið niður falla árið 2013. Hann er einnig glæpasagnahöfundur og hefur skrifað bækurnar Hlustað og Ókyrrð. KRISTJÁN VILHELMSSON Kristján var, ásamt Þorsteini Má, einn aðaleigandi Samherja ásamt eiginkonu sinni, Kolbrúnu Ingólfs­ dóttur, eða allt þar til þau afsöluðu hlut sínum til barna sinna í maí. Hann er útgerðarstjóri fyrirtækisins á Ís­ landi og er meðal ríkustu einstaklinga landsins. Árið 2013 voru hann og Kolbrún efst á lista Viðskiptablaðs­ ins yfir auðugustu Íslendingana með hreina eign um­ fram skuldir upp á rúmlega 6,8 milljarða. Hann vakti athygli árið 2017 fyrir að brjóta gegn skattalögum, en hann og Kolbrún vanræktu að telja fram til skatts í fjölda ára. MYND/STEFÁNMYND/FACEBOOK MYND/PJETUR ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON Þorsteinn Már hefur verið forstjóri Samherja síðan árið 1983. Hann steig þó til hliðar í nóvember 2019 í kjölfar umfjöllunar Kveiks og Stundarinnar um starfsemi félagsins í Namibíu. Í mars á þessu ári ákvað stjórn Samherja að Þorsteinn skyldi snúa aftur til starfa og verða forstjóri samstæðunnar við hlið Björgólfs Jóhannssonar sem gegnir forstjórastarfi sínu áfram þar til annað verður ákveðið. Þorsteinn og fyrrverandi eiginkona hans, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, voru meðal aðaleigenda Samherja þar til þau afsöluðu hlut sínum til barna sinna í maí. AÐALSTEINN HELGASON Aðalsteinn var um árabil lykil­ starfsmaður hjá Samherja, en er nú kominn á eftirlaun. Hann var áberandi í Samherjaskjölunum svonefndu sem vörpuðu ljósi á meint fjármálamisferli og mútu­ greiðslur dótturfélags Samherja í Namibíu. Aðalsteinn gegndi í gegnum árin mörgum hlutverkum hjá Samherja og var um tíma framkvæmdastjóri Kötlu Sea­ food, dót turfélags Samherja, og framkvæmdastjóri Namibíu­ útgerðarinnar. ÞORBJÖRN ÞÓRÐARSON Þorbjörn er lögfræðingur og fyrrverandi fjölmiðlamaður og er meðal þeirra sem Samherji fékk til ráðgjafar í kjölfar uppljóstrana Stundarinnar, Kveiks og Wikileaks um starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Stundin greindi frá því í gær að Þorbjörn hefði komið að gerð myndbandsins umdeilda um Seðla­ bankamálið. Þorbjörn starfar einnig sem lögmaður og er aðaleigandi LPR lögmannsstofu. Ekki er á tæru með hvaða hætti hann kom að áðurnefndu myndbandi eða hvort það hafi verið sem lögmaður eða sökum reynslu hans úr fjölmiðlum. Ekki náðist í Þorbjörn við vinnslu greinarinnar. ANNA BRYNDÍS BALDVINS MCCLURE Anna Bryndís er yfirlögfræðingur Samherja og kemur oft fyrir í Samherja­ skjölunum. Hún sat meðal annars fundi með namibísku þremenningunum James, Tamson Hatukulipi og Sacky Shangala sem sagðir eru hafa þegið mútur frá Samherja til að greiða aðgang að fiskveiðikvóta. M Y N D/ SA MHERJI MYND/SA M H E R J I M Y N D /S TE FÁN MYND/AUÐUNN M Y N D /D V Samherji birti í vikunni mynd- band sem olli töluverðu fjaðra- foki þar sem fáheyrt er hér á landi að stórfyrirtæki ráðist með álíka hætti að fjölmiðli. En hverjir eru það sem standa að baki Samherja? M YN D /Ö R LY G U R H N E F ILL M Y N D /FA C EBOOK 8 FRÉTTIR 14. ÁGÚST 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.