Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Síða 8
SAMHERJABÖRNIN
Börn Þorsteins Más og Krist
jáns eru nú stærstu hluthafar í
Samherja og hefur gjarnan verið
vísað til þeirra sem „Samherja
barnanna“. Þau eru Katla Þor-
steinsdóttir, Baldvin Þorsteins-
son, Dagný Linda Kristjánsdóttir,
Halldór Örn Kristjánsson, Krist-
ján Bjarni Kristjánsson og Katrín
Kristjánsdóttir. Þau sem mest
hafa látið til sín taka í rekstri og
starfsemi Samherja eru Baldvin,
Kristján og Halldór.
Baldvin er framkvæmdastjóri við
skiptaþróunar hjá Samherja og
stjórnarformaður Eimskips. Bald
vin bregður fyrir í Samherjaskjöl
unum og vakti sérstaka athygli
mynd í skjölunum þar sem hann
stillir sér upp með namibískum
konum. Baldvin er iðnaðarverk
fræðingur og spilaði um árabil
handbolta í efstu deild. Baldvin
hefur verið nefndur sem líklegastur
til að taka alfarið við af föður sínum
þegar hann lætur af störfum.
Kristján Bjarni starfar sem raf
eindavirki hjá Samherja og er tölv
unarfræðingur að mennt.
Halldór starfar sem bílstjóri hjá
Samherja á Akureyri. Árið 1997
hlaut hann skilorðsbundinn dóm
fyrir að stofna lífi og velferð fólks
í augljósan háska, stófelld eigna
spjöll og fleiri brot.
LYKILLEIKMENN SAMHERJA
BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON
Björgólfur er forstjóri Samherja við hlið Þorsteins Más.
Björgólfur hefur um árabil verið áberandi í íslensku
viðskiptalífi. Hann var áður stjórnarformaður Íslands
stofu og fyrir það var hann forstjóri Icelandair Group.
Hann hefur einnig verið formaður Samtaka atvinnulífs
ins og í stjórn Festar svo fáein dæmi séu tekin. Hann er
samt enginn nýgræðingur hjá Samherja en hann hefur
víðtæka reynslu af sjávarútvegi og hefur þar að auki
áður starfað fyrir Samherja. Hann hefur verið fjármála
stjóri Útgerðarfélags Akureyrar, framkvæmdastjóri hjá
Samherja og forstjóri Síldarvinnslunnar sem var að
hluta í eigu Samherja.
JÓN ÓTTAR ÓLAFSSON
Jón Óttar er doktor í afbrotafræði og fyrrverandi rann
sóknarlögreglumaður sem hefur starfað um nokkurt
skeið fyrir Samherja. Hann starfaði sem ráðgjafi hjá
Samherja á því tímabili sem Samherjaskjölin ná til og
var í innsta hring Namibíuveiðanna. Jón Óttar starf
aði sem rannsóknarlögreglumaður hjá Sérstökum
saksóknara en var rekinn árið 2012 fyrir meint brot
á þagnarskyldu. Málið var látið niður falla árið 2013.
Hann er einnig glæpasagnahöfundur og hefur skrifað
bækurnar Hlustað og Ókyrrð.
KRISTJÁN VILHELMSSON
Kristján var, ásamt Þorsteini Má, einn aðaleigandi
Samherja ásamt eiginkonu sinni, Kolbrúnu Ingólfs
dóttur, eða allt þar til þau afsöluðu hlut sínum til barna
sinna í maí. Hann er útgerðarstjóri fyrirtækisins á Ís
landi og er meðal ríkustu einstaklinga landsins. Árið
2013 voru hann og Kolbrún efst á lista Viðskiptablaðs
ins yfir auðugustu Íslendingana með hreina eign um
fram skuldir upp á rúmlega 6,8 milljarða. Hann vakti
athygli árið 2017 fyrir að brjóta gegn skattalögum,
en hann og Kolbrún vanræktu að telja fram til skatts
í fjölda ára.
MYND/STEFÁNMYND/FACEBOOK
MYND/PJETUR
ÞORSTEINN MÁR BALDVINSSON
Þorsteinn Már hefur verið forstjóri Samherja síðan árið 1983. Hann steig
þó til hliðar í nóvember 2019 í kjölfar umfjöllunar Kveiks og Stundarinnar
um starfsemi félagsins í Namibíu. Í mars á þessu ári ákvað stjórn Samherja
að Þorsteinn skyldi snúa aftur til starfa og verða forstjóri samstæðunnar
við hlið Björgólfs Jóhannssonar sem gegnir forstjórastarfi sínu áfram þar
til annað verður ákveðið. Þorsteinn og fyrrverandi eiginkona hans, Helga
Steinunn Guðmundsdóttir, voru meðal aðaleigenda Samherja þar til þau
afsöluðu hlut sínum til barna sinna í maí.
AÐALSTEINN HELGASON
Aðalsteinn var um árabil lykil
starfsmaður hjá Samherja, en er
nú kominn á eftirlaun. Hann var
áberandi í Samherjaskjölunum
svonefndu sem vörpuðu ljósi á
meint fjármálamisferli og mútu
greiðslur dótturfélags Samherja
í Namibíu. Aðalsteinn gegndi í
gegnum árin mörgum hlutverkum
hjá Samherja og var um tíma
framkvæmdastjóri Kötlu Sea
food, dót turfélags Samherja,
og framkvæmdastjóri Namibíu
útgerðarinnar.
ÞORBJÖRN ÞÓRÐARSON
Þorbjörn er lögfræðingur og fyrrverandi fjölmiðlamaður og er meðal þeirra
sem Samherji fékk til ráðgjafar í kjölfar uppljóstrana Stundarinnar, Kveiks
og Wikileaks um starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Stundin greindi frá því
í gær að Þorbjörn hefði komið að gerð myndbandsins umdeilda um Seðla
bankamálið. Þorbjörn starfar einnig sem lögmaður og er aðaleigandi LPR
lögmannsstofu. Ekki er á tæru með hvaða hætti hann kom að áðurnefndu
myndbandi eða hvort það hafi verið sem lögmaður eða sökum reynslu hans
úr fjölmiðlum. Ekki náðist í Þorbjörn við vinnslu greinarinnar.
ANNA BRYNDÍS BALDVINS MCCLURE
Anna Bryndís er yfirlögfræðingur Samherja og kemur oft fyrir í Samherja
skjölunum. Hún sat meðal annars fundi með namibísku þremenningunum
James, Tamson Hatukulipi og Sacky Shangala sem sagðir eru hafa þegið
mútur frá Samherja til að greiða aðgang að fiskveiðikvóta.
M
Y
N
D/
SA
MHERJI
MYND/SA
M
H
E
R
J
I
M
Y
N
D
/S
TE
FÁN
MYND/AUÐUNN
M
Y
N
D
/D
V
Samherji birti í vikunni mynd-
band sem olli töluverðu fjaðra-
foki þar sem fáheyrt er hér á
landi að stórfyrirtæki ráðist
með álíka hætti að fjölmiðli. En
hverjir eru það sem standa að
baki Samherja?
M
YN
D
/Ö
R
LY
G
U
R
H
N
E
F
ILL
M
Y
N
D
/FA
C
EBOOK
8 FRÉTTIR 14. ÁGÚST 2020 DV