Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7DV 14. ÁGÚST 2020
þar haldi áfram í lausu lofti,“
segir Ragnar.
1. september er svo komið að
skýrsluskilum forsendunefnd-
ar Lífskjarasamnings ASÍ og
SA. Nefndinni er ætlað að
fara yfir hvort forsendur fyr-
ir samningnum standi. Þrjár
meginforsendur eru fyrir því,
að sögn Ragnars. Fyrst, að
kaupmáttur aukist, að vextir
lækki og í þriðja lagi að staðið
verði við nokkuð langan lista
af loforðum hins opinbera.
Ragnar segir að tvö stór atriði
í þeim loforðalista hafi verið
tímasett og þau séu nú runnin
út á tíma. Það er bann við 40
ára verðtryggðum neytenda-
lánum, og að taka húsnæðis-
liðinn úr vísitölu neysluverðs.
Ef forsendunefnd kemst að
þeirri niðurstöðu að forsendur
fyrir samningnum séu brostn-
ar hafa aðilar samningsins
einn mánuð, septembermánuð,
til þess að laga það sem hægt
er að laga eða koma með eitt-
hvað nýtt í staðinn. Eða hrein-
lega að segja upp samningn-
um, að sögn Ragnars.
„Fer allt í háaloft“ verði
Lífskjarasamningnum rift
Aðspurður hvort hann telji
líklegt að samningnum verði
sagt upp af öðrum hvorum
aðilanum segir Ragnar svo
ekki vera. Ragnar er ekki að
skafa utan af því þegar hann
spáir um afleiðingar þess að
segja upp Lífskjarasamningn-
um. „Ef samningurinn heldur
ekki, þá spái ég því að það fari
allt upp í háaloft. Það verður
þá gríðarlega harður vetur.
Þetta veltur allt á Lífskjara-
samningnum.“
Hann segir jafnframt að
það kæmi honum mjög á óvart
ef ríkisstjórn sem kennir sig
við stöðugleika ætlar að bera
ábyrgð á því að vinnumark-
aðurinn fari nánast á hliðina
með því að leyfa Lífskjara-
samningnum að falla. „Það
myndi þá stefna í ein alvar-
legustu átök á vinnumarkaði
frá upphafi, ef ekki næst að
halda samningnum gangandi.
Það er það langt á milli aðila
núna, að ef við þyrftum að fara
aftur að samningaborðinu þá
verður staðan bara gríðarlega
alvarleg.“
Ragnar bendir á að ótti geti
breyst í reiði. „Eins og við
sáum í kjölfar bankahrunsins
2008, þá tók það smá tíma
fyrir óttann í samfélaginu að
breytast í reiði,“ sagði hann og
benti á að sú atburðarás gæti
allt eins endurtekið sig. „Í dag
hefur fólk áhyggjur af afkomu
sinni vegna ástandsins, en
þegar fram í sækir og ef okkur
tekst ekki að tryggja fólki lág-
marksafkomu sem dugar því
og þegar fólk fer að klára sína
uppsagnarfresti og detta á
strípaðar atvinnuleysisbætur,
þá getur stemningin í sam-
félaginu breyst mjög hratt til
hins verra.“
Segir viðbótakröfur
líklega lagðar fram
Ragnar segist gera ráð fyrir
því að verkalýðshreyfingin
muni fara fram með viðbótar-
kröfur sem koma þá í staðinn
fyrir vanefndir hins opinbera
á fyrrnefndum tímasettum
loforðum. Mikil ábyrgð sé á
herðum verkalýðshreyfingar-
innar og stjórnvalda að verja
þessa samninga.
Í lok síðustu viku sendi Drífa
Snædal, formaður ASÍ, frá
sér pistil þar sem stiklað var
á komandi tímum. Fyrirsögn
pistilsins sagði margt: „Í upp-
hafi krefjandi vetrar“. Líkt og
hjá Ragnari, var atvinnuleysi
og óvissan meginþemað.
Í samtali við blaðamann
DV sagði Drífa það „brýnasta
verkefni“ að verja störfin
í landinu og afkomu fólks.
Fjölga þyrfti störfum hjá hinu
opinbera, hækka atvinnuleys-
isbætur strax og koma í veg
fyrir frekari niðurskurð hjá
hinu opinbera.
Ljóst er á orðum Drífu nú og
áður að verkalýðshreyfingin
er uggandi yfir aðgerðum
Icelandair og stuðningi Sam-
taka atvinnulífsins í þeim
málum. Vísar Drífa þá til
þess þegar Icelandair sagði
upp öllum flugfreyjum sínum
og sagðist hafa hafið viðræður
við „annað innlent stéttarfélag
flugfreyja“ í kjölfar þess að
flugfreyjur felldu samning
FFÍ við Icelandair.
Óljóst er til hvaða stéttar-
félags var vísað, en telja má
víst að það hafi verið Íslenska
flugstéttarfélagið, sem samdi
nýlega við flugfélagið Play.
Drífa segir það „ekki í hendi
atvinnurekenda að velja og
hafna við hverja þeir semja“
og að „það verður ekki látið
viðgangast á íslenskum vinnu-
markaði og þó að flugfreyjur
hafi gengið frá samningum
þá mun þessi „sumargjöf“
elta okkur inn í haustið og lita
þau verkefni sem framundan
eru.“. n
Fyrri hluti af tveimur. Seinni
hluti greinarinnar birtist í
næsta tölublaði DV
Eldhúsinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
2
0
0
0
—
2
0
2
0