Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Qupperneq 28
28 FÓKUS 14. ÁGÚST 2020 DV
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir fjölskyldumeðferðar-
fræðingur svarar spurningum lesenda um
málefni er varða fjölskylduna, börnin og
ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni
svarar Kristín lesanda sem hefur verið í
einangrun með maka sínum vegna COVID.
AÐÞRENGD Í EINANGRUN
S æl, Kristín. Við hjónin lentum verr í ann-arri bylgju Covid en
þeirri fyrri. Við greindumst
með sjúkdóminn og höfum
verið í sóttkví og einangrun
til skiptis. Maðurinn minn
veiktist töluvert en ég fékk
vægari flensueinkenni. Við
höfum átt farsælt hjónaband
þó svo að það hafi margt
breyst eftir að krakkarnir
fluttu að heiman, þá þurftum
við að vinna í því að finna
okkar þráð aftur og höfum
markvisst reynt það.
Aftur á móti líður okkur
báðum eins og undanfarnar
vikur hafi alveg farið með
okkur. Við fengum engan
stuðning frá hvort öðru,
vorum að drepa hvort annað
úr leiðindum, vorum agaleg
fórnarlömb til skiptis og tími
sem margir myndu segja að
styrktu sambandið myndaði
afar djúpa gjá milli okkar.
Við erum enn í einangrun
en erum búin að ná betri
heilsu. Ég er hrædd um að
þetta ástand hafi fært okkur
á endastöð og ef ég segi það
bara eins og er, þá nenni ég
ekki að standa í þessu. Hvað
gerum við nú?
Fjarlægð og vonleysi
Sæl, kæru hjón. Ég skil eigin-
lega ekki að ég hafi ekki feng-
ið sambærilega spurningu
fyrr. Í Wuhan mynduðust
raðir fyrir utan sýslumanns-
embættin eftir COVID því
fólk sótti unnvörpum um
skilnað.
Þó svo að of skammt sé liðið
frá því faraldurinn byrjaði til
þess að rannsóknarniðurstöð-
ur liggi fyrir, þá er það vitað
mál að COVID hefur haft
áhrif á fjölskyldur á marga
vegu. Mikil samvera, veik-
indi, tekjumissir og óvissa er
blanda sem hlýtur að kalla á
skjálfta í hinum stöðugustu
hjónaböndum.
Aftur á móti er það mín
reynsla af vinnu með pörum
á þessum tíma að annaðhvort
hefur ástandið styrkt sam-
bandið eða myndað gjá milli
hjóna. Það segir mér að þó þið
finnið núna fyrir fjarlægð og
vonleysi, þá þýðir það ekki að
sambandið sé búið. Kannski
er þetta tækifæri til þess að
endurskoða tilveru ykkar,
vinna í því að styrkja sam-
bandið á ný og leggja nýjar
áherslur? Kannski varð þessi
reynsla til þess að þið eruð ef-
ins um hjónabandið. En stóra
spurningin er: Hvað ætlið þið
að gera við þá upplifun?
Formgerðarbreytingar
Við köllum það formgerðar-
breytingar þegar fjölskylda
tekur breytingum, til dæmis
þegar fólk skilur, deyr eða
fæðist. Þið nefnið að það hafi
verið erfitt hjá ykkur þegar
börnin fluttu að heiman en
það er einmitt dæmi um
breytingar sem valda öðru
mynstri í formgerð fjölskyld-
unnar.
Formgerðarbreytingar hafa
alltaf áhrif á parsambönd,
nokkuð sem þið hafið greini-
lega upplifað áður. Þið funduð
út úr þeim breytingum sem
segir mér að þið getið líka
fundið út úr þeim aðstæðum
sem þið eruð í núna.
Mig langar til að minna
ykkur á að þið eruð ennþá í
sóttkví, erfiðleikarnir standa
enn yfir og þá er kannski ekki
rétti tíminn til þess að taka
afdrifaríkar ákvarðanir.
Þú nefnir að þið standið á
endastöð, orðið hljómar svo
endanlegt. Skilnaðarferli er
alltaf ferli og á sér ekki stað
klukkan þrjú á þriðjudegi.
Það tekur alltaf tíma, rúm og
aðgerðir að ganga í gegnum
slíkt, svo þó að þú upplifir þig
á endastöð getur vel verið að
frá henni liggi leið sem leiðir
ykkur að betri og bættri líðan.
Hvað gerum við nú?
Þú spyrð mig, hvað gerum við
nú? Og ég þakka þér innilega
fyrir traustið, en þið farið
ekki neitt úr sóttkvínni svo
hvernig væri að nýta tímann,
setja spilin á borðið og ræða
framhaldið?
Ég get ekki sagt ykkur hver
ykkar lausn verður eða hvað
þið þurfið svo ég mæli heldur
með að taka þann tíma sem
þið eigið í sóttkví til að hug-
leiða hvernig ykkur líður og
hvað þið þurfið til þess að
líðan ykkar verði betri? Þó
svo að þú „nennir þessu ekki“
þá veistu að þið getið þetta.
Reglulegar pásur
Margir halda að góð tengsl
snúist um að eyða miklum
tíma saman, vera alltaf sam-
mála, stunda mikið kynlíf
og leiðast út um allt. Þar eru
fræðin ósammála. Örugg
tengsl snúast um að par sé
öruggt um að það geti tjáð
sig um líðan sína og þarfir
og sömuleiðis öruggt um að
makinn geri slíkt hið sama.
Mörgum líður vel í einrúmi
og þurfa að fá næði til þess
að vera ein, þó að þeim líði
vel í parsambandinu. Öðrum
líður vel í miklum félagsskap
og þurfa að vera mikið með
maka sínum eða öðru fólki
svo þeim líði almennt vel.
Kannski hafið þið ekki þörf
fyrir að vera alltaf saman og
þessi reynsla kennt ykkur að
til þess að samband ykkar
gangi vel þá þurfið þið reglu-
legar „pásur“ frá hvort öðru?
Kannski þurfið þið að vinna
betur með hvernig þið styðjið
hvort annað, hvernig þið biðj-
ið um stuðning og hvað í því
felst. Þá vitiði það bara.
Að lokum, þetta eru undar-
legir og fordæmalausir tímar.
Slíkt getur haft undarleg og
fordæmalaus áhrif á parsam-
bönd, jafnvel hin farsælustu
hjónabönd. Nú andið þið inn
og út, meltið þessa miklu
reynslu og ræðið ykkur
niður á næstu skref. Ég ætla
að trúa því að COVID verði
bráðum eitt það besta sem
hefur komið fyrir ykkur.
Gangi ykkur vel. n
MYND/GETTY
Ég er hrædd um
að þetta ástand
hafi fært okkur
á endastöð.