Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Side 32
Matseðill
Margrétar
Morgunmatur
Þegar ég á grænan banana þá
fæ ég mér hann. Annars borða
ég mjög sjaldan morgunmat.
Millimál
Grænn sjeik eða hrein ABT með
múslí, höfrum og rúsínum.
Hádegismatur
Fæ mér mjög of t mexíkóska
ommelettu og avókadó. Svo fer
ég stundum út að borða í hádeg
inu og finnst þá gott að fá mér
fisk dagsins eða eitthvað annað
spennandi.
Millimál
Finnst gott að fá mér ávöxt, þá
helst appelsínu eða epli. En Snick
ers verður líka oft fyrir valinu…
Kvöldmatur
Í sumar hef ég mikið verið að
grilla pitsu. Annars er ég mjög
reglulega með penang karrí eða
annan asískan rétt. Svo þegar ég
hef lítinn tíma finnst mér gott að
henda í fajitas.
Naan-pitsa
Naan-brauð
1 tsk. sykur
½ bolli volgt vatn
2 ¼ tsk. þurrger
2 ¼ bolli hveiti
½ bolli hreint jógúrt
½ tsk. salt
1 msk. olía
Blandar í skál sykri, þurrgeri og
vatni, pískar saman og geymir í 15
mínútur.
Setur hveiti á borð og býrð til holu í
miðjuna. Setur jógúrtið, olíu og salt
í holuna.
Bætir gerblöndunni við og blandar
síðan öllu saman í höndunum.
Setjið í skál og látið hefast í klukku-
tíma með viskustykki yfir skálinni.
Skerið í 6-8 bita og fletjið út í litlar
kökur.
Steikið í Cast Iron potti eða pönnu
(til dæmis Le Cruiset) með smá olíu.
Búið til hvítlaukssmjör og penslið
naan-brauðin.
Karrý
2–3 hvítlauksgeirar
½ rauðlaukur
Kirsuberjatómatar eða 1 tómatur
1 dós kjúklingabaunir
1 dós tómat-púrra
1 ferna kókosrjómi (coconut cream,
þessi fjólubláa frá Santa Maria)
1 kjúklingakraftsteningur
Ferskur kóríander
¹∕³ tsk. cayenne
1 ½ tsk. túrmerik
½ tsk. cumin
1 ½ tsk. garam masala
2 tsk. marokkósk harissa chilli-
blanda (Kryddhúsið)
Pressið hvítlaukinn og skerið rauð-
laukinn í þunnar sneiðar.
Svitið hvítlaukinn og rauðlaukinn á
pönnu ásamt smá olíu. Bætið tómat-
púrru út á pönnuna og síðan kókos-
rjómanum.
Setjið síðan smá vatn í fernuna
og bætið því einnig út á pönnuna
ásamt kjúklingakrafti.
Kryddið með túrmerik, garam ma-
sala, marokkóskri harissu, cumin
og cayenne. Smakkið til og kryddið
svolítið eftir smekk.
Skolið kjúklingabaunirnar með vatni
og bætið síðan út á pönnuna.
Saxið ferskan kóríander og skerið
tómata í bita og bætið við blönduna.
Að lokum
Mangó
Klettasalat (rucola)
Mozzarellaostur eða kotasæla
Ólífuolía
Skerið mangó í þunnar sneiðar. Setj-
ið blönduna á naan-brauðið og hyljið
með þunnum mangósneiðum. Berið
fram með klettasalati og ólífuolíu.
MYND/A
Ð
S
E
N
D
32 MATUR 14. ÁGÚST 2020 DV
Bragðmikil og fersk naan-
pitsa að hætti Margrétar
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Það er í raun enginn venju-legur dagur hjá mér þessa stundina og enginn
dagur eins. Ég er matreiðslu-
maður að mennt og vanalega
fer mikill tími í vinnuna og
dagarnir eru óreglulegir, en nú
er ég í fæðingarorlofi,“ segir
Margrét.
„Ég vil helst hafa marga
bolta á lofti og er alltaf með
eitthvert verkefni fyrir dag-
inn. Ég ver miklum tíma með
fjölskyldunni minni og þá helst
yngstu systur minni sem held-
ur manni á tánum. Ég elska
að hreyfa mig og er þá helst
að lyfta og sækja tabata-tíma.
Einnig hef ég mjög gaman af
gönguferðum. Síðan fer seinni
hluti dagsins oft í að ákveða
kvöldmat, matreiða og verja
tíma með fjölskyldu og vinum.
Ég er mikil ugla og fer því
mjög seint að sofa. Hef verið á
leiðinni að hætta þeim slæma
ávana síðustu 15 ár eða svo,“
segir Margrét.
Jafnvægi er lykillinn
Margrét fylgir engu sér-
stöku mataræði heldur leggur
áherslu á jafnvægi. „Mér
finnst best að vera skynsöm
og hafa gott jafnvægi. Ég
hef margoft prófað að fylgja
matarprógrammi en mér líður
einfaldlega best að borða það
sem mig langar í hverju sinni,“
segir Margrét.
„Ég trúi því að ef líkaminn er
í góðu jafnvægi þá leiti maður í
hollan og góðan mat. Ég reyni
að borða fjölbreytta fæðu og
finnst gaman að smakka nýjan
mat. Ég borða líka óhollt inn á
milli eins flestir og á oftast
súkkulaði og Haribo Clickmix
heima,“ segir hún.
Margrét ver töluverðum
tíma í eldhúsinu og þykir lang-
skemmtilegast að elda asískan
mat og prófa nýjar uppskriftir.
„Í samkomubanninu prófaði ég
mig aðeins áfram í súrdeigs-
bakstri og hafði mjög gaman
af,“ segir Margrét.
Uppáhaldsmáltíð
„Það er mjög erfitt að velja
eina máltíð. En sú máltíð sem
ég hlakka alltaf til að borða
eru rjúpur á jólunum með öllu
tilheyrandi – finnst þá ómiss-
andi að hafa Waldorfsalatið
hennar ömmu með, með nóg
af sérríi út í.“ n
Margrét Bjarnadóttir, matreiðslumaður með meiru, trúir því að ef líkaminn er í góðu
jafnvægi þá leiti hann í hollan og góðan mat. Hvað ætli hún borði á venjulegum degi?
Margrét Bjarnadóttir vil helst alltaf hafa nóg fyrir stafni. MYND/ANTON BRINK