Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2020, Síða 37
E ftir umræður vikunnar fannst Lúnu Fírenzu spákonu tilvalið að draga spil fyrir blaðamanninn Helga Seljan og sjá
hvað stjörnurnar segja. Helgi er er fæddur 18.
janúar sem gerir hann að Steingeit.
Steingeitin hefur verið þekkt fyrir sannleiksleit sína
sem kemur kannski ekki á óvart í þessu samhengi.
Þeir sem eru fæddir í þessu merki eru afar metn-
aðarfullir og tilbúnir til að leggja ýmislegt á sig til
þess að ná markmiðum sínum.
Stríðsvagninn
Lykilorð: Viljastyrkur, velgengni, aðgerðir, ákveðni
„Já, herra, sendu nú gullvagninn að sækja mig…“
kemur spánni svo sem ekkert við en þetta lag kom
upp í huga mér við að draga spilið. Hér er sterkur ein-
staklingur kominn sem grípur til aðgerða og ætlar sér
að halda ótrauður áfram. Hann gefst ekki auðveldlega
upp og stýrir sínum vagni sjálfur.
Fimm stafir
Lykilorð: Átök, ágreiningur, samkeppni, spenna
Það er augljós ágreiningur og ákveðið ferli í gangi.
Þú ert í miðjum bardaga og þarft að hafa fyrir því
að koma þínu til skila þótt aðrir muni berjast á móti
því. Þetta er þó ekki ógæfuspil því það kemur hér til
að láta þig vita að þessa vinna mun vera þess virði.
Sumir munu reyna að taka hlutina úr samhengi, sem
dregur úr áhrifum, en að lokum mun sannleikurinn
skína í gegn. Hann gerir það alltaf að lokum, en þetta
veistu. Spilið er aðeins áminning.
Hamingjuhjólið
Lykilorð: Velgengi, karma, lífsferill, örlög
Lífshjólið minnir þig á að hjólið er alltaf að snúast
og lífið er stöðugum breytingum háð. Ef þú ert að
ganga í gegnum erfiða tíma, getur þú verið viss um
að lífið mun verða betra héðan í frá. Þetta spil minnir
þig einnig á að horfa á meira en það sem er í gangi
akkúrat núna, við getum átt það til að festast í búbblu.
Sjáðu fegurðina í litlu hlutunum og ekki gleyma þér í
drama nútímans. Mikilvægt að treysta á að kosmósið
sé að hlúa að þér og að „karma“ sjái um sig sjálft.
Hugleiðsla er verkfærið sem þú ættir að nýta þér til
þess að fá meira jafnvægi inn í líf þitt. Þú kemst ekki
allt á hnefanum.
Skilaboð frá
spákonunni
Viljastyrkur þinn mun skila sér í ríkulegri uppskeru.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Helgi Seljan
Svona eiga þau saman
Vikan 14.08. – 20.08.
Leitin að sannleikanum
Sambandið loksins opinberað
MYND/ANDRI MARINÓ
stjörnurnarSPÁÐ Í
Fyrstu fregnir um samband Baltasars Kormáks, þekktasta leikstjóra landsins, og Sunnevu Ásu Weisshappel, listakonu
og leikmyndahönnuðar, bárust í apríl í fyrra.
Parið tók sinn tíma til að birta fyrstu myndina
af sér saman en gerði það loks á dögunum. DV
lék forvitni á að vita hvernig þau eiga saman ef
litið er til stjörnumerkjanna.
Baltasar er Fiskur en Sunneva er Steingeit.
Það er örugglega ekki til betri leið fyrir Stein-
geitina að slaka á en að fara í samband með
Fiski. Steingeitin er ströng, skynsöm og jarð-
bundin en Fiskurinn er sveigjanlegur, tilfinn-
ingaríkur og sveimhugi.
Þó að merkin séu ólík byggist samband þeirra
á aðdáun. Steingeitin dáist að ljúflyndi Fisksins
og Fiskurinn heillast af þrautseigju og kímni-
gáfu Steingeitarinnar. Lykillinn að góðu sam-
bandi á milli þessara merkja er hreinskilni.
Þetta samband var lengi að þróast og þau hafa
tekið sér langan tíma í að sjá hvert ástin leiðir
þau. Ef parið ákveður að ganga í það heilaga
getur hjónaband þeirra orðið firnasterkt. En til
þess má Steingeitin ekki vera of stjórnsöm og
Fiskurinn ekki of viðkvæmur. n
Baltasar Kormákur
27. febrúar 1966
Fiskur
n Listrænn
n Gáfaður
n Blíður
n Tónelskur
n Treystir of fljótt
n Dagdreyminn
MYND/DV MYND/HANNA
Sunneva Ása Weisshappel
18. janúar 1989
Steingeit
n Ábyrg
n Öguð
n Skipulögð
n Með mikla sjálfsstjórn
n Besservisser
n Býst við hinu versta
Hvað segja stjörnurnar um þig þessa vikuna?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Ævintýrasækinn leiðtogi: Stund-
um er best að vera sammála um
að vera ósammála. Ólíkar skoðanir
koma upp á yfirborðið sem þarf
vissulega að ræða en niðurstaðan
verður ekki endilega eftir þínu
höfði. Hristu það af þér og haltu
áfram að vera frábæra/i þú!
Naut
20.04. – 20.05.
Ákveðinn rólyndispési: Stjörn-
urnar styðja þig í því að taka
áhættu. Það eru jafn miklar líkur
á að þú munir sigra í þessu máli
og að þú gerir það ekki. Þú verður
allavega reynslunni ríkari við að
stökkva á tækifærið og prófa þig
áfram. Ekkert spennandi gerist án
smá áhættu.
Tvíburar
21.05. – 21.06.
Sniðugur listamaður: Þú getur
ekki gert upp hug þinn varðandi
ákveðið mál. Þú átt svo sem jafn
erfitt með að ákveða hvað verður í
kvöldmatinn. Stjörnurnar segja þér
að ofhugsa ekki. Gefðu þér ró til að
hlusta á innsæið, þar liggur svarið!
Krabbi
22.06. – 22.07.
Ástríkur verndarengill: Fleira en
eitt atvinnutækifæri kemur til þín
í vikunni og nú er valið þitt. Gefðu
þér góðan tíma í að velja hvað starf
muni veita þér bestu lífsgæðin því
lífið er of stutt fyrir stress. Einnig
er tækifæri til að gera kröfur,
kortin eru þér hliðholl.
Ljón
23.07. – 22.08.
Tryggur bjartsýnismoli: Til ham-
ingju með afmælismánuðinn þinn,
kæra ljón. Í afmælisgjöf mun al-
heimurinn losa þig við einn slæman
ávana. Þú ert einnig hvatt til þess
að vera hvatvísari þegar kemur að
því að velja þér starf. Við finnum að
þú þarft á breytingu að halda.
Meyja
23.08. – 22.09.
Duglegur snyrtipinni: Láttu það
vaða! Segðu það sem þú þarft að
segja svo þú getir svo haldið áfram
þinn veg. Það verður mikill léttir að
fá að opna þig um ákveðið málefni
sem hefur verið að ergja þig og
safnast upp síðustu vikurnar.
Vog
23.09. – 22.10.
Sjálfstæður fagurkeri: Þitt innra
eðli kallar hátt á þig. Þú þarft
meira jafnvægi í lífið og gerir þær
ráðstafanir sem þú þarft til að ná
því á strik. Rútína og góður „to do“
listi mun róa hug þinn.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Orkudrifið gáfnaljós: Þú gefur
öðrum svo mikla ást en nú máttu
snúa þeirri ást að þér. Nýttu
vikuna í sjálfsást og lækkaðu í
sjálfsgagnrýnni röddinni sem er
að taka yfir í hausnum á þér. Þú
myndir aldrei segja það sama um
aðra í sömu aðstæðum. Ekki vera
þinn eigin óvinur.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Gjafmildur dugnaðarforkur: Anda
inn, anda út… Já, þú gerir þér fulla
grein fyrir því að lífið er að kenna
þér eitthvað. Þú ert til í þessa
áskorun og ert óvenju bjartsýn/n
miðað við aðstæður. Hlutirnir
gætu verið verri er móttó vikunnar.
Áfram þú!
Steingeit
22.12. – 19.01.
Metnaðarfullur húmoristi: Þú
þarft smá hugrekki til þess að
vera fullkomlega og ófullkomlega
þú. Þessa vikuna þarft þú aðeins
meira pláss og það er allt í lagi!
Sýndu á þér allar hliðar og hleyptu
þessum tilfinningum í gegn, við
elskum þig eins og þú ert!
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Heimspekilegt ljóðskáld: Óvenju
mikið stress hefur verið að hrjá
þig og þú veist ekki alveg hvaðan
það kemur, bara einhver óróleiki.
Góð leið til að hrista það af þér
er matarboð með þínum nánustu.
Dust aðu rykið af matreiðslu-
bókinni og hringdu í vin!
Fiskur
19.02. – 20.03.
Óeigingjarnt sköpunarverk: Það
les enginn hugsanir, elsku Fiskur.
Þú verður að vera aðeins skýrari
og nákvæmari um hvað þú þarft
frá þínum nánustu. Þýðir ekkert að
verða bara fúll á móti út af getu-
leysi okkar í hugsanalestri. Æfðu
raddböndin með söng!
STJÖRNUFRÉTTIR 37DV 14. ÁGÚST 2020