Morgunblaðið - 13.01.2020, Side 2

Morgunblaðið - 13.01.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 Vetrarsól er umboðsaðili 40 ár á Íslandi Sláttuvélar Snjóblásarar Sláttutraktorar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Viðgerðir standa yfir á suðurhlið Hallgrímskirkju. Til stendur að brjóta ysta lag múrhúðarinnar ut- an af hliðinni, endurnýja burðar- virki og steypa að nýju. Viðgerð- irnar eru liður í stöðugri endur- nýjun á kirkjunni, að sögn Sigurðar Árna Þórðarsonar sóknarprests. „Það hefur komið í ljós að upprunalega steypan var lélegri en hún hefði átt að vera,“ segir Sigurður og bætir við að miklar rakaskemmdir hafi því ver- ið í kirkjunni. Kostnaður við fram- kvæmdirnar nú hleypur á tugum milljóna, en Sigurður segir að langtímaverkefnið kosti hundruð milljóna. Í fyrra var til að mynda gert við neðri hluta kórsins og í leiðinni skipt um glugga. Aðspurður segir Sigurður að kirkjan hafi burði til framkvæmd- anna vegna þess mikla fjölda ferðamanna sem sækir hana heim- .Um helmingur ferðamanna sem koma hingað til lands heimsækir Hallgrímskirkju og stór hluti þeirra borgar sig inn í lyftuna. „Hálfa leið til himins og til baka,“ eins og Sigurður orðar það. Ekki séu allar kirkjur landsins þó jafn vel settar. Framkvæmdir við Hallgrímskirkju liður í stöðugri endurnýjun Burðarvirki suðurhliðar endurnýjað Morgunblaðið/RAX Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Árni Stefán Jónsson, formaður Sam- eykis, segist trúa því að ef kjaravið- ræður komist ekki á skrið á næstu tveimur vikum geti það leitt til verk- falla. Sem kunnugt er hafa kjara- samningaviðræður BSRB við við- semjendur gengið hægt, en kjara- samningar flestra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá því í apríl 2019. Árni staðfestir að samninga- nefndir Sameykis séu komnar á fullt eftir jólafrí, en fyrirhugað er að funda með samninganefnd Reykja- víkurborgar hjá ríkissáttasemjara í dag og verður annar fundur með samninganefnd ríkisins á morgun. „Ég geri mér vonir um að menn fari nú að taka þessar viðræður fast- ari tökum. Það er ekkert laun- ungarmál að það eru nokkur mál sem stoppa þetta töluvert,“ segir Árni í samtali við Morgunblaðið. „Það er til dæmis stytting vinnuvik- unnar hjá vaktavinnufólki og svo- kölluð leiðrétting launa milli opin- bera og almenna markaðarins. Það er loforð sem við eigum frá 2016 og átti að vinnast núna og leiðréttast á sex árum,“ segir hann. Hann segir að farið verði í að teikna upp mögulegar aðgerðir ef ekki komist skriður á viðræðurnar á næstu vikum. Þá sé stefnan að fara af stað með mildari þrýstiaðgerðir sem myndu að lokum enda í verk- föllum. Seinagangurinn með ólíkindum Aðspurður hvort hann telji að það stefni í verkföll segir Árni: „Ef þetta fer ekki að komast á skrið á næstu tveimur vikum er ég hræddur um að stefni í það.“ Segist hann ekki gera greinarmun á viðsemjendum BSRB en gagnrýnir seinagang ríkisins sérstaklega sem hann segir að hafi verið „alveg með ólíkindum“. „Nú bíðum við ekki lengur. Það er komið að lokahnykknum. Við mun- um sækja það mjög fast að ganga frá þessum kjarasamningum. Mjög fast,“ segir Árni. Markmið að klára á næstunni Sverrir Jónsson, formaður samn- inganefndar ríkisins, segir viðræð- urnar hafa gengið vel og nefndin sé afar bjartsýn á að þær klárist á næstu vikum, ekki síðar en í febrúar. „Það er markmiðið. Við höfum ein- sett okkur, BSRB og Sameyki, að sitja við í næstu viku og vinna jafnt og þétt að því að ganga frá og ljúka samningnum,“ segir Sverrir. „Þetta hefur vissulega tekið lang- an tíma. Það er verið að breyta vinnutímaákvæðum sem eru 50 ára gömul sum hver og það eru bara allir að vanda sig og vilja gera þetta var- lega. Það er ekkert óeðlilegt við það. En nú er komið að því að ljúka þessu,“ segir hann og bætir við að einhugur sé um að vinna að bæði styttri og betri vinnutíma. Aðspurður um líkur á aðgerðum segir Sverrir að ekkert í viðræðun- um hafi gefið tilefni til aðgerða. „Það er lítill ágreiningur. Það er verið að vinna að útfærslu á stytt- ingu vaktavinnunnar. Stytting dag- vinnunnar liggur fyrir. Launaliður- inn er að öllu leyti sambærilegur við það sem samið var um í lífskjara- samningnum. Auðvitað eru einhver mál sem við erum að útfæra og erum að ræða en það eru engin stór mál sem standa út af,“ segir hann. „Frá okkar bæjardyrum séð er ekkert sem gefur tilefni til aðgerða.“ Komið að lokahnykknum  Formaður Sameykis er hræddur um að það stefni í verkföll ef viðræður komast ekki á skrið á næstu tveimur vikum  Ekkert sem gefur tilefni til aðgerða, segir formaður samninganefndar ríkisins Árni Stefán Jónsson Sverrir Jónsson Kjarasamningar hjúkrunarfræðinga við ríkið hafa verið lausir í níu mán- uði og þolinmæði félagsmanna gagn- vart samninganefnd ríkisins er á þrotum. Þetta segir Guðbjörg Pálsdóttir, for- maður Félags ís- lenskra hjúkr- unarfræðinga. Samninga- nefnd ríkisins leggur hinn svo- kallaða lífskjara- samning, samn- ings SA við helstu stéttarfélög á al- mennum markaði, til grundvallar í viðræðunum. Guðbjörg segir hins vegar að ljóst hafi verið frá fyrsta degi að hjúkrunarfræðingar gerðu meiri kröfur. Vísar hún máli sínu til stuðnings í skýrslu Ríkisendurskoð- unar á starfsumhverfi hjúkrunar- fræðinga frá 2017, en þar kemur fram að meðaldagvinnulaun félags- manna Bandalags háskólamanna með sambærilega menntun séu 12% hærri en laun hjúkrunarfræðinga. Til viðbótar eru gerðar kröfur um styttingu vinnuvikunnar úr 40 stundum í 36, einkum fyrir starfs- menn í vaktavinnu. Mætti fjölga um mörg hundruð Mönnun á Landspítala hefur verið til umræðu að undanförnu, en fyrir helgi sendi læknaráð frá sér ályktun þar sem vakin er athygli á erfiðum aðstæðum á bráðamóttöku Land- spítalanum, og er ófullnægjandi mönnum meðal annars nefnd. Samkvæmt tölum frá Félagi ís- lenskra hjúkrunarfræðinga eru um 300 menntaðir hjúkrunarfræðingar á vinnumarkaði, sem starfa við ann- að en hjúkrun. Guðbjörg segir ljóst að þörf sé á öllum þeim hjúkrunar- fræðingum til starfa, og fleirum til. „Yfirmenn á Landspítalanum hafa sjálfir stigið fram og talað um að sú stofnun ein og sér gæti tekið við 150 hjúkrunarfræðingum, og þá eru ótaldar aðrar sjúkrastofnanir.“ Rímar þessi málflutningur við skýrslu Ríkisendurskoðunar, þar sem sagt er mikilvægt að fjölga hjúkrunarfræðingum. Bæta þurfi kjör hjúkrunarfræðinga eigi það að nást. Þótt viðræður hafi litlu skilað hingað til segir Guðbjörg að samn- ingamenn séu enn bjartsýnir. Að öðrum kosti hefði viðræðunum fyrir löngu verið vísað til ríkissáttasemj- ara. Þolinmæði er á þrotum  Kjarasamningar hjúkrunarfræðinga lausir í níu mánuði Guðbjörg Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.