Morgunblaðið - 13.01.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 13.01.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 V E R T Heilsutvenna uppfyllir daglega vítamín- og steinefnaþörf Íslendinga í tveimur perlum. - því að sumt virkar betur saman Stundum þarf tvo til 13. janúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.83 123.41 123.12 Sterlingspund 160.46 161.24 160.85 Kanadadalur 93.91 94.47 94.19 Dönsk króna 18.226 18.332 18.279 Norsk króna 13.796 13.878 13.837 Sænsk króna 12.91 12.986 12.948 Svissn. franki 125.9 126.6 126.25 Japanskt jen 1.1199 1.1265 1.1232 SDR 169.33 170.33 169.83 Evra 136.22 136.98 136.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.963 Hrávöruverð Gull 1547.85 ($/únsa) Ál 1770.5 ($/tonn) LME Hráolía 65.29 ($/fatið) Brent ● Bandaríski dýnuframleiðandinn Casper lagði á föstudag inn umsókn- argögn vegna skráningar á hlutabréfa- markað. Athygli vekur að í útboðs- gögnum fyrirtækisins er varað við ófyrirsjáanlegum afleiðingum sem gætu hlotist af ummælum áhrifavalda. Casper hóf starfsemi árið 2014 og vakti fljótlega athygli fyrir heimsend- ingu á samanþjöppuðum dýnum í kassa. Meðal þess sem kom Casper á kortið á sínum tíma voru jákvæð um- mæli samfélagsmiðlastjörnunnar og áhrifavaldsins Kylie Jenner. Varar Casper væntanlega fjárfesta við að það kunni að valda fyrirtækinu tjóni ef áhrifavaldar sem félagið á í samstarfi við nota samfélagsmiðla til að tjá sig með þeim hætti að skaði orð- spor fyrirtækisins. ai@mbl.is Vara fjárfesta við áhrifavöldum Áhætta Kylie Jenner átti þátt í að koma Casper á framfæri á sínum tíma. STUTT BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Árið 2019 reyndist Íslenska lífeyris- sjóðnum (ÍL) gott að sögn Ólafs Páls Gunnarsson, framkvæmdastjóra hans. Samkvæmt óendurskoðuðu upp- gjöri virðist raunávöxtun deila sjóðs- ins standa á bilinu 4,6-12,1%. „Hrein raunávöxtun samtrygging- ardeildar ÍL var 10,3% á liðnu ár. Hrein raunávöxtun Líf I, sem er stærsta séreignardeild hans, var hins vegar 12,1%,“ seg- ir Ólafur Páll. Um nýliðin ára- mót voru heildar- eignir sjóðsins um 100 milljarðar króna og hefur hann vaxið mjög að umfangi á síð- ustu árum. „Sjóðurinn hef- ur tvöfaldast að stærð frá árinu 2015. Því þökkum við annars vegar góðri ávöxtun en einnig fjölgun sjóð- félaga á tímabilinu.“ Ólafur Páll bendir hins vegar á að í rekstri lífeyrissjóða sé mikilvægara að horfa yfir lengra tímabil heldur en til eins árs í senn. Sjóðirnir ávaxti lífeyri fólks sem komi oft til útgreiðslu ára- tugum eftir að réttindasöfnunin hefst. Í meðfylgjandi töflu gefur að líta yfirlit yfir ávöxtun ólíkra deilda sjóðs- ins yfir síðasta ár, fimm og tíu ára tímabil. Í mati á tryggingafræðilegri stöðu sjóða er lögum samkvæmt mið- að við 3,5% raunávöxtun og sést á því að Íslenski lífeyrissjóðurinn er í öllum tilvikum langt yfir því marki, litið til eins árs, öllu tilviki nema einu til fimma ára en einn sjóðurinn er þar með nákvæmlega 3,5% raunávöxtun. Til tíu ára litið eru sjóðirnir allir vel yfir viðmiðinu, nema í tilviki Líf 3, þar em vantar 0,2 prósentur upp á. Fella niður kostnað Ólafur Páll segir að á undanförnum mánuðum hafi verið unnið að gerð nýs sjóðfélagavefs sem opnaður verður innan fárra daga. Honum sé ætlað að bæta þjónustu við sjóðfélaga. „Þá mun sjálfvirkni aukast. Á síð- asta ári opnuðum við launagreiðenda- vef sem hefur þegar sannað gildi sitt og því er þetta rökrétt skref í kjölfar þess,“ segir Ólafur Páll. Þá hefur sjóðurinn einnig tekið ákvörðun um að fella niður kostnað í þeim tilvikum þar sem fólk ákveður að flytja lífeyrissparnað sinn (séreign) til annarra vörsluaðila lífeyrissparnaðar. Hingað til hefur þóknun vegna slíks flutnings numið 0,5% af eigninni. „ÍL verður þar með fyrstur stóru séreignarsjóðanna til að stíga þetta skref og fella flutningsgjaldið niður,“ segir Ólafur Páll. „Þetta gerir neytendum hægara um vik að færa sig á milli vörsluaðila. Það er að okkar mati eðlilegt og að neyt- endur ávaxti lífeyrissparnað sinn hjá þeim sjóði sem þeir treysta best, án þess að þurfa að reikna með kostnaði við flutning á milli aðila.“ Segir Ólafur Páll að inneign í líf- eyrissparnaði sé sambærileg innstæðu á bankareikningi að þessu leytinu til. „Með niðurfellingu kostnaðar á flutningi lífeyrissparnaðar verður gjaldtaka skýrari og gagnsærri.“ Landsbankinn er ÍL og hefur tekið samsvarandi ákvörðun varðandi kostnað við flutning lífeyrissparnaðar milli vörsluaðila. Sjóðurinn hefur tvöfaldast að stærð frá árinu 2015 Hrein raunávöxtun Íslenska lífeyrissjóðsins 12% 9% 6% 3% 0% Líf 1 Líf 2 Líf 3 Líf 4 Samtrygging 12,1% 10,2% 8,7% 4,6% 10,3% 5,8% 5,4% 5,0% 3,5% 5,8%5,7% 5,1% 4,6% 3,3% 4,9% Meðalávöxtun á ári sl. 10 ár Meðalávöxtun á ári sl. 5. ár Ávöxtun 2019 Heimild: islenskilif.is  Nýliðið ár var gott hjá Íslenska lífeyrissjóðnum  Raunávöxtun nam allt að 12,1% Ólafur Páll Gunnarsson Flugvélaframleiðandinn Boeing birti í lok síðustu viku aftrit af tölvuskila- boðum sem starfsmenn fyrirtækisins sendu sín á milli þar sem vinnan við þróun 737 MAX-þotnanna er harð- lega gagnrýnd. Einn starfsmaður lýs- ir vélinni þannig að hún hafi verið „hönnuð af trúðum sem stjórnað væri af öpum“. Í öðru skeyti spyr starfsmaður kollega sinn hvort hann myndi láta fjölskyldu sína fljúga með MAX-þotu sem stjórnað væri af flugmanni sem fengið hefði viðbótarþjálfun í flug- hermi. Fékk hann neikvætt svar við spurningunni. Samskiptaskrárnar virðast, að sögn Reuters, benda til að Boeing hafi lagt ríka áherslu á að komast hjá því að viðbótarþjálfun í flughermi yrði gerð að skilyrði fyrir notkun þotn- anna, með tilheyrandi aukakostnaði, og í staðinn yrði látið nægja að flug- menn fengju viðbótarþjálfun í tölvu. Skilaboðin voru send mörgum mánuðum áður en MAX 8-þota Lion Air fórst vegna galla. Í skilaboðasafninu má einnig finna gagnrýni starfsmanna á vinnubrögð flugmálaeftirlits Bandaríkjanna. Þeir kvarta líka yfir menningu vinnustað- arins, aðhaldsaðgerðum og óraun- hæfum tímarömmum. Þá var upplýst um helgina að Dennis Muilenburg, sem var rekinn úr starfi forstjóra Boeing í desember, muni kveðja fyrirtækið með rúmlega 62 milljóna dala kaupauka- og launa- pakka þótt hann fái engar starfsloka- greiðslur í ljósi 737 MAX-hneykslis- ins. Hafa bæði stjórnmálamenn og aðstandendur þeirra sem fórust með gölluðum MAX 8-þotum í október 2018 og mars 2019 lýst óánægju sinni með að Muilenburg skuli leystur út með þessum hætti. ai@mbl.is AFP Gullfallhlíf Boeing lét Dennis Muilenburg fara í desember. Starfsmenn gagn- rýndu 737 MAX  Fráfarandi forstjóri kveður Boeing tugum milljóna dala ríkari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.