Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Árásinni á vélina mótmælt
Fjöldamótmæli skóku Íran um helgina eftir að yfirvöld viðurkenndu að hafa
skotið niður farþegavél í síðustu viku Trump varar Írana við að beita harðræði
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fjölmenn mótmæli brutust út í Íran
um helgina eftir að stjórnvöld í Te-
heran viðurkenndu að þau bæru
ábyrgð á því að hafa skotið niður far-
þegavél Ukrainian Airlines á mið-
vikudaginn í síðustu viku. Höfðu þau
áður þráast við að viðurkenna
ábyrgð sína, þrátt fyrir að flest ríki
Vesturlanda segðu sterkar vísbend-
ingar um að það væri raunin.
Donald Trump Bandaríkjaforseti
varaði Írana við því á laugardaginn
að fylgst væri grannt með framferði
stjórnvalda gagnvart mótmælend-
um, en fjölmenn mótmæli gegn
klerkastjórninni í Íran í nóvember
síðastliðinn voru brotin á bak aftur
með mikilli hörku, en talið er að um
300 manns hafi týnt lífi í þeim.
Sagði Trump á twitter-síðu sinni
að ekki yrði horft framhjá því ef
Íransstjórn færi að myrða friðsama
mótmælendur eða ef lokað yrði fyrir
netaðgang landsmanna líkt og gert
var í nóvember. Sendi hann almenn-
ingi í Íran stuðningsyfirlýsingu á
bæði ensku og persnesku, þar sem
hann sagðist hafa stutt baráttu
þeirra frá upphafi forsetatíðar sinn-
ar og að sá stuðningur héldi áfram.
„Við fylgjumst grannt með mótmæl-
um ykkar og fáum innblástur af hug-
rekki ykkar,“ ritaði Trump.
Skaut að vélinni án heimildar
Hassan Rouhani, forseti Írans,
sagði á laugardagsmorgun að rann-
sókn hersins hefði leitt í ljós að vélin
hefði verið skotin niður vegna mann-
legra mistaka. Sagði Rouhani að at-
vikið hefði verið „ófyrirgefanleg
mistök“. Þá hefði Rouhani fyrirskip-
að að tryggt yrði að fjölskyldur
hinna látnu myndu fá bætur fyrir.
Yfirmaður loftvarnasveita íranska
byltingarvarðarins, Amirali Hajiza-
deh, sagðist bera fulla ábyrgð á at-
vikinu, þar sem stjórnandi loftvarn-
arkerfis hefði talið flugvélina vera
flugskeyti. Sá hefði ekki náð tali af
yfirmönnum sínum vegna sam-
skiptatruflanna og því ákveðið upp á
eigin spýtur og án heimildar að
skjóta að vélinni.
Æðstiklerkur Írans, Ali Kham-
enei, vottaði fórnarlömbum virðingu
sína og sagðist hafa skipað heryfir-
völdum að taka á þeim göllum sem
þarna hefðu komið í ljós svo að atvik
sem þetta myndi ekki endurtaka sig.
Brutu alþjóðalög
með handtöku
Minningarathöfn sem háskóla-
nemar í Teheran skipulögðu á
laugardagskvöldið breyttist fljótlega
í mótmæli, og handtók íranska lög-
reglan Rob Macaire, sendiherra
Bretlands í Íran, vegna þátttöku í
þeim. Ríkisstjórn Bretlands mót-
mælti handtökunni og sagði hana
skýrt brot á alþjóðalögum. Macaire
var sleppt samdægurs, en utanrík-
isráðuneyti Írans kallaði hann á
teppið í gær til þess að spyrja hvers
vegna hann hefði verið viðstaddur
mótmælin.
Sagði Macaire í tilkynningu vegna
málsins að hann hefði ekki tekið þátt
í mótmælunum, heldur hefði hann
mætt á minningarathöfn til að
heiðra minningu þeirra sem létust
þegar vélin var skotin niður, en þrír
Bretar voru á meðal þeirra sem
létust. Sagði Macaire enn fremur að
hann hefði búið sig til brottfarar
þegar hann heyrði að mótmæli væru
að hefjast, en verið þá handtekinn.
Bæði Bretland og Bandaríkin hafa
kallað eftir afsökunarbeiðni frá Íran
vegna handtökunnar og Kanada-
menn lýstu yfir áhyggjum sínum. Þá
gagnrýndu Frakkar og Evrópusam-
bandið Írana harðlega fyrir hand-
tökuna á Macaire.
Fréttamiðlar í Íran sögðu hins
vegar frá því í gær að sendiherrann
hefði verið að ýta undir mótmæli
stúdentanna og söfnuðust um 200
stuðningsmenn klerkastjórnarinnar
saman fyrir framan breska sendi-
ráðið. Kölluðu þeir á „dauða yfir
Bretland“ og kveiktu í breska fán-
anum.
Vilja nú draga úr spennu
AFP-fréttastofan greindi frá því í
gærkvöldi að Íransstjórn gæfi nú frá
sér merki um að hún vildi draga úr
spennunni í Mið-Austurlöndum eftir
atburði síðustu viku.
Tamim bin Hamad Al-Thani, em-
írinn af Katar, sem nú er í sinni
fyrstu opinberu heimsókn til Írans,
lýsti því yfir í gær eftir fund sinn
með Rouhani Íransforseta að leið-
togarnir hefðu verið sammála um að
eina lausnin á kreppuástandi síðustu
daga væri að draga úr spennu á milli
Bandaríkjanna og Írans, með því að
allir aðilar drægju úr hernaðar-
viðbúnaði sínum og féllust á við-
ræður. Fjölmenn bandarísk herstöð
er í Katar, en ríkið heldur einnig úti
miklum viðskiptatengslum við Íran.
Þá lýsti Hossein Salami, leiðtogi
byltingarvarðarins, því yfir við
íranska þingið í gærkvöldi að eld-
flaugaárás Írans aðfaranótt mið-
vikudags hefði ekki verið ætlað að
drepa bandaríska hermenn, heldur
hefði árásinni eingöngu verið ætlað
að sýna Bandaríkjamönnum að Ír-
anar hefðu getuna til þess að refsa
fyrir misgjörðir á sinn hlut, á borð
við drápið á hershöfðingjanum
Qassem Soleimani.
AFP
Gagnmótmæli Um 200 manns mótmæltu fyrir utan breska sendiráðið í gær
og kveiktu í fána Bretlands, en sendiherrann var handtekinn í fyrrakvöld.
AFP
Mótmæli Írönsk kona ræðir við lögreglumann á minningarathöfninni sem breyttist í mótmæli.
Stjórnvöld Bandaríkjanna og Kína hafa sammælst um að
halda fundi tvisvar á ári þar sem leitað verður lausna á við-
skiptatengdum deilumálum á milli þjóðanna. Reuters greinir
frá að þannig fundir hafi áður verið haldnir reglulega, allt frá
forsetatíð George W. Bush, en þeir lagst af fljótlega eftir að
ríkisstjórn Donalds Trumps tók við völdum og tollastríð hófst
á milli landanna.
Það var Wall Street Journal sem sagði fyrst frá þessu en
samkvæmt heimildarmanni innan stjórnsýslunnar stendur
til að greina formlega frá samráðsfundunum hinn 15. janúar
næstkomandi þegar fulltrúar Bandaríkjanna og Kína undir-
rita fyrsta áfangasamning um viðskipti á milli þjóðanna.
Er talið sennilegt að Steven Mnuchin, fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, og kínverskur starfsbróðir hans, Liu He,
muni leiða fundina.
Í tíð George W. Bush var fundunum ætlað að bregðast við
árekstrum sem fylgdu ört vaxandi umsvifum Kína og útflutn-
ingi á kínverskum varningi til Bandaríkjanna. Þótti gagnrýn-
endum viðræður þjóðanna bera lítinn árangur og varð úr hjá
ríkisstjón Trumps að velja frekar að fara í hart með tollastríði
til að koma skikki á viðskipti þjóðanna. ai@mbl.is
BNA og Kína munu ræða mál-
in með reglubundnum hætti
Endurvekja fundi sem George W. Bush setti á laggirnar
AFP
Vettvangur Liu He (t.v.) og Steven Mnuchin (t.h.) með
Robert Lighthizer, viðskiptaráðgjafa Bandaríkjastjórnar.
Tsai Ing-wen,
forseti Taívans,
hlaut glæsilegt
endurkjör í emb-
ættið á laugar-
daginn, en hún
fékk 8,2 milljónir,
eða 57% gildra
atkvæða. Er það
metfjöldi at-
kvæða sem for-
setaframbjóðandi
hefur fengið á Taívan.
Úrslitin eru túlkuð sem áfall fyrir
Kínverja, en Tsai hefur verið hörð í
gagnrýni sinni á stjórnvöld á megin-
landi Kína, sem líta svo á að eyjan sé
hluti af kínverska ríkinu.
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sendi frá sér yfirlýs-
ingu eftir að úrslitin voru ljós, þar
sem hann óskaði Tsai til hamingju
með sigurinn. Tóku kínversk stjórn-
völd það óstinnt upp og fordæmdu
yfirlýsingu Pompeos í gær. Sagði
Geng Shuang, talsmaður kínverska
utanríkisráðuneytisins, yfirlýsingu
Pompeos ganga í berhögg við stefn-
una um að Kína sé eitt ríki.
„Við mótmælum öllum opinberum
samskiptum milli Taívans og ríkja
sem eiga í stjórnmálasambandi við
Kína,“ sagði hann í yfirlýsingu sinni.
Þá gerðu kínverskir ríkisfjöl-
miðlar lítið úr sigri Tsai í gær og
sökuðu hana um að hafa beitt belli-
brögðum í kosningabaráttu sinni.
Sigraði
með yfir-
burðum
Tsai
Ing-wen
Kínverjar gagn-
rýna hamingjuóskir
Að minnsta kosti tvö þúsund manns
neyddust til að yfirgefa heimili sín í
Manila, höfuðborg Filippseyja, í
gær eftir að eldfjallið Taal, sem er í
um 65 kílómetra fjarlægð frá borg-
inni, hóf að spúa öskuskýi.
Var öllu áætlunarflugi frá Manila
aflýst, þar sem öskufallið var svo
mikið, en jarðfræðingar telja mikl-
ar líkur á að eldgos hefjist senn í
fjallinu.
„Þetta er svo mikið að þetta er
farið að líkjast öskufallinu úr Eyja-
fjallajökli og þetta lítur ekki vel út
fyrir íbúa í nágrenni við eldfjallið,“
sagði Einar Magnús Nielsen í sam-
tali við mbl.is í gær, en hann hefur
verið á ferðalagi um Filippseyjar
ásamt dóttur sinni. Voru feðginin
tveimur tímum frá því að komast
frá eyjunum þegar öllu flugi var af-
lýst. Ekki er víst hvenær flugvöllur-
inn verður opnaður aftur.
Gríðarmikið öskufall
í nágrenni Manila
FILIPPSEYJAR