Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.01.2020, Blaðsíða 16
Í grein hér í Morgunblaðinu sl. mánudag, 6. janúar, varar Gunnar Bragi Sveinsson við öfgum og upphrópunum í um- hverfismálum. Hann snýr út úr orðum Grétu Thunberg, segir rétt „að hlusta á vís- indamenn en þeir [séu] ekki allir sam- mála um hversu alvar- legur vandinn er“. Hvaða vísindamenn eru það, Gunnar Bragi? Á Parísarráðstefnunni hinn 5. desember 2015 flutti utanríkis- ráðherrann Gunnar Bragi Sveins- son skelegga opnunarræðu á mál- þingi um súrnun sjávar. Hann sagði: „Einungis hin síðari ár höf- um við einnig áttað okkur á því að loftslagsbreytingar valda náttúru- hamförum í hafinu [„creating dis- asters in the oceans“]. Sú þróun hefur verið hæg og hljóðlát en mjög raunveruleg. Staðreyndin er að stærsta ógnin við hafið er loftslags- breytingar. Við horfum fram á hlýnun sjávar, hækkandi yfirborð hafsins og súrnun, til að nefna nokkrar áskoranir sem við verðum að takast á við. Allt vistkerfi sjávar er í hættu og eina færa leiðin til að snúa þróuninni við er að draga úr losun koltvísýrings þegar í stað [„by cutting carbon emissins imme- diately“]. Síðar í ræðu sinni sagði utanríkisráðherr- ann: „Við stöndum frammi fyrir ógnar- stóru verkefni. Fyrst og fremst verðum við að einbeita okkur að samdrætti í losun.“ „Fyrst og fremst verðum við að einbeita okkur að samdrætti í losun.“ Þetta eru ráð vísindamanna, og sannarlega í anda Grétu Thunberg. Undirritaður kom strax að máli við utanríkisráðherr- ann, Gunnar Braga Sveinsson, og hvatti hann til að birta þessa sköru- legu ræðu á vefsetri ráðuneytisins. Þrátt fyrir eftirgangsmuni varð ráðherrann ekki við þeirri ósk minni. Og nú hefur Gunnari Braga snú- ist hugur. Hann varar í Morgun- blaðsgreininni sérstaklega við kol- efnisgjaldi, sem hann kallar refsi- skatta, og segir: „Breytingar í loftslagsmálum verða ekki knúnar fram með því að refsa eða með því að draga úr velmegun.“ En hvað um „náttúruhamfarir í hafinu“ af völdum loftslagsbreyt- inga? Munu slíkar hamfarir ekki draga úr velmegun, Gunnar Bragi? Málstaður Grétu Thunberg er að stjórnmálamenn fari að ráðum vís- indamanna og stuðli að því að það dragi hratt úr losun. Það var og málflutningur Gunnars Braga Sveinssonar á Parísarráðstefnunni fyrir rúmum fjórum árum, að fara að ráðum vísindamanna sem mælt hafa hraða súrnunar sjávar í hafinu umhverfis Ísland; súrnun sem er að valda miklum skaða á lífríki sjávar og verður ekki stöðvuð nema losun verði stöðvuð á morgun og gróð- urhúsalofttegundir í andrúmslofti dragist saman á síðari hluta þess- arar aldar. Eru það öfgar? Öfugt við Grétu ákvað Gunnar Bragi að standa ekki fyrir máli sínu og lét vera að birta ræðu sína á vef stjórnarráðsins. Skuldbinding Íslands gagnvart Parísarsamningnum er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda um eina milljón tonna á tímabilinu 2021-2030. Íslensk stjórnvöld hafa enn ekki kynnt nein áform eða áætlun um hvernig skuli dregið úr losun á þessum tíma um 100.000 tonnum á ári. Og stjórnmálamaður- inn sem talaði í París fyrir hönd Ís- lendinga árið 2015 virðist telja þessar skuldbindingar óþarfa og öfgar árið 2020. Þegar Gunnar Bragi var Gréta Eftir Árna Finnsson » Gunnar Bragi sagði: „Við stöndum frammi fyrir ógnarstóru verkefni. Fyrst og fremst verðum við að einbeita okkur að sam- drætti í losun.“ Árni Finnsson Höfundur er formaður Náttúru- verndarsamtaka Íslands. arni@natturuvernd.is 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2020 Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík 414 84 00 www.martex.is Góð þjónusta byrjar með flottum fatnaði. Fatnaður fyrir fagfólk Áður en lengra er haldið er nauðsynlegt að gera grein fyrir muninum á dreifikerfi raforku og flutnings- kerfi. Flutningskerfið, sem Landsnet á og rekur, samanstendur af stærstu flutnings- línunum sem flytja raforku á hárri spennu milli lands- hluta á 132 kV og 220 kV spennu. Að auki eru lands- hlutakerfin, sem í flestum tilfellum eru rekin á 66 kV og sinna raf- orkuflutningi til einstakra byggð- arlaga, hluti flutningskerfisins. Dreifikerfin taka svo við þegar flutningskerfinu sleppir og dreifa raforkunni til einstakra notenda. Í stuttu máli má líkja þessu við æða- kerfi mannslíkamans; flutnings- kerfið er hliðstætt stóru slag- æðunum sem flytja blóðið um milli einstakra líkamshluta og dreifi- kerfið samsvarar háræðakerfinu sem dreifir blóðinu til frumanna eða vöðva og einstakra líffæra. Dreifiveitur hafa staðið sig gríðarlega vel undanfarna áratugi í því að koma sínum línum í jörðu. Eðli málsins samkvæmt ganga hlutir hægar fyrir sig í flutnings- kerfi raforkunnar enda er þar ver- ið að fást við línur á hærri spennu- stigum og með meiri flutningsgetu. Þó er rétt að benda á að Landsnet hefur, frá stofnun fyrir 15 árum, lagt allar línur á 66 kV og 132 kV spennu í jörð. Þar er um að ræða rúmlega 150 kílómetra af jarð- og sæstrengjum. Þetta er í fullu sam- ræmi við stefnu stjórnvalda um lagningu raflína, þar sem segir að meginreglan við uppbyggingu landshlutakerfa raforku sé að not- ast við jarðstrengi að því gefnu að slíkt sé tæknilega raunhæft. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur er það eitt af forgangsverkefnum að nýta með sem hagkvæmustum þætti þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Í því skyni þurfi að styrkja flutn- ings- og dreifikerfi raforku og tengja bet- ur lykilsvæði og skoð- að verði að hve miklu leyti megi nýta jarð- strengi í slíkar teng- ingar með hag- kvæmum þætti, eins og það er orðað. Í þingsályktun nr. 26/ 148 frá 11. júní 2018 um uppbyggingu flutningskerfisins er nánar kveðið á um rannsóknir á mögulegum jarðstrengslögnum og liggja niðurstöður þeirra rann- sókna nú fyrir. Hinn 16. desember síðastliðinn birtist í samráðsgátt stjórnvalda skýrsla sem dr. Hjört- ur Jóhannsson vann um þessi mál að beiðni ráðuneyta atvinnuvega- og nýsköpunarmála og umhverfis- og auðlindamála. Meginniður- stöður í þessari skýrslu eru þær að svigrúm til jarðstrengslagna í fyrirhuguðu 220 kV meginflutn- ingskerfi hringinn í kringum land- ið er afar lítið. Þessar niðurstöður eru í fullu samræmi við það sem Landsnet hefur margoft bent á. Kerfisaðstæður á hverjum stað (þ.e. kerfisstyrkur) hafa grund- vallaráhrif á möguleika til jarð- strengslagna, sérstaklega á hæstu spennustigum flutningskerfisins (132 kV og 220 kV). Sé kerfið ekki í stakk búið til þess að taka við strengnum er tómt mál að tala um strenglagnir þar. Þess vegna er nauðsynlegt að greina hvert tilvik vandlega. Undir þetta er tekið í skýrslunni á fleiri en einum stað, t.a.m.: „Umfjöllun um kosti og ókosti nýtingar jarðstrengja til styrkingar flutningskerfi raforku er gagnleg ef hún er sett fram í samhengi við tæknilegar hámarks- lengdir jarðstrengja. Verkefni þar sem fjallað væri um hve neikvæð eða jákvæð áhrif það hefði á raf- orkuverð, afhendingaröryggi eða umhverfiskostnað ef allt flutnings- kerfi raforku væri lagt í jörðu hefði mjög takmarkað gildi ef ekki væri tæknilega mögulegt að leggja nema takmarkaðan hluta kerfisins í jörðu.“ Því miður hafa, á síðustu árum, verið birtar skýrslur um t.a.m. jákvæð áhrif jarðstrengslagna á afhendingar- öryggi þar sem skautað hefur ver- ið fimlega fram hjá þessum þætti, sem hlýtur að vera grundvallar- forsenda í umræðum um þessi mál. Eins og áður segir koma niður- stöður skýrslunnar okkur hjá Landsneti ekki á óvart. Raunar má segja að þær staðfesti að það svigrúm sem þó er fyrir hendi til strenglagna á 220 kV eigi fyrst og fremst að nýta til þess að full- nægja skilyrðum sem stefna stjórnvalda um lagningu raflína setur, m.a. um á hvaða svæðum komi helst til greina að leggja jarðstrengi. Það er von okkar að skýrsla ráðuneytanna opni augu þeirra sem enn efast um að jarðstrengir á hæstu spennustigum flutnings- kerfisins séu afar takmörkuð auð- lind sem beri að fara sparlega með. „Jarðstrengskvótar“ nýtast betur á lægri spennustigum. Það er líka sú leið sem almennt er far- in við uppbyggingu flutningskerfa annars staðar. Um jarðstrengi og raf- tæknilegar takmarkanir Eftir Magna Þór Pálsson » Það er von okkar að skýrsla ráðuneyt- anna opni augu þeirra sem enn efast um að jarðstrengir á hæstu spennustigum flutnings- kerfisins séu afar tak- mörkuð auðlind. Magni Þór Pálsson Höfundur er verkefnastjóri rann- sókna hjá Landsneti. magnip@landsnet.is Ef seilst er aftur um einhverja ára- tugi sést að þeir Gunnar póstur og Bjössi á mjólkurbílnum voru ómiss- andi fyrir þá tilveru sem lifað var í sveitum landsins. Þeir fluttu menn- inguna og reikningana að sunnan, og mjólkina, sem þá var framleidd á hverjum bæ, vestur, þar sem neyt- endurnir biðu eftir sínu skyri og rjóma og ekki búið að finna upp vegan. Nú eru barirnir orðnir fleiri en kúabúin í minni sveit og því fáir sem hitta Bjössa. En Gunnar póstur er enn á ferðinni þótt strjálast hafi. Hann lætur nægja að koma við þrisvar aðra vikuna en tvisvar hina. Blöðin eru stundum orð- in fimm daga gömul þegar þau koma og ekkert nema pappírssóun að vera áskrifandi, þegar hægt er að hafa allt gagn af netinu. Bréf og pakkar flytjast helst í jóla- mánuði, og þá byrja fyrst vandræðin. Tvö ár í röð höfum við fjölskyldan sent pakka til útlanda og í fyrra skipt- ið kom pakkinn á áfangastað eftir sjö vikur en núna eftir fimm og þá skemmdur. Er þetta ekki óþarfi og einhver pottur brotinn? Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Hringir pósturinn alltaf tvisvar? Morgunblaðið/Rósa Braga Póstur Sumum þykir pósturinn vera lengi á leiðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.