Morgunblaðið - 14.01.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 14.01.2020, Síða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2020 14. janúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 122.83 123.41 123.12 Sterlingspund 160.46 161.24 160.85 Kanadadalur 93.91 94.47 94.19 Dönsk króna 18.226 18.332 18.279 Norsk króna 13.796 13.878 13.837 Sænsk króna 12.91 12.986 12.948 Svissn. franki 125.9 126.6 126.25 Japanskt jen 1.1199 1.1265 1.1232 SDR 169.33 170.33 169.83 Evra 136.22 136.98 136.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 168.0772 Hrávöruverð Gull 1548.8 ($/únsa) Ál 1771.0 ($/tonn) LME Hráolía 65.29 ($/fatið) Brent ● Úrvalsvísi- tala aðallista Kauphallar Ís- lands lækkaði í gær um 0,37%, en hækkanir og lækkanir á hlutabréfaverði félaga voru hóflegar í báðar áttir. Mest hækkuðu bréf fast- eignafélagsins Eikar, eða um 2,27% í 236 milljóna króna viðskiptum, en gengi félagsins stendur núna í níu krónum á hvern hlut. Næstmesta hækkun gærdagsins varð á bréfum olíufélagsins Skeljungs, eða um 1,8%. Gengi félagsins er núna 8,76 krónur á hvern hlut og hefur ekki verið hærra síðan félagið var skráð á aðalmarkað Kauphallarinnar fyrir þremur árum. Þriðja mesta hækk- unin varð á verði bréfa í Kviku banka, eða um 1,74% í 288 milljóna króna viðskiptum. Er gengi bankans núna 10,53. Mesta lækkunin í gær varð á bréf- um tryggingafélagsins Sjóvár, en bréfin lækkuðu í verði um 1,16% í fimm milljóna króna viðskiptum. Var lokagengi félagsins í gær 19,13 krón- ur á hvern hlut. Þá lækkaði gengi bréfa í Sýn um 0,98% og í Arion banka um 0,66%. Úrvalsvísitala aðallista lækkaði um 0,37% Hlutabréf í Eik hækkuðu í verði. STUTT Í október 2019 nam aflaverðmæti úr sjó 12,1 milljarði króna sem er um 2% minna en sama mánuð árið 2018, að því er fram kemur á vef Hagstofu Ís- lands. Þá var verðmæti botnfiskafla um níu milljarðar króna í október sem er 2,9% aukning frá október árið á undan. Þar af var aflaverðmæti þorsks tæplega 5,9 milljarðar sem gerir 7,7% vöxt milli ára. Aflaverð- mæti ýsu jókst einnig eða um 6,2%, en aflaverðmæti ufsa minnkaði um 12,2% og karfa um 8,6%. Verðmæti uppsjávarafla nam rúm- lega 2,2 milljörðum króna í október og dróst saman um 11,3% samanborið við október 2018. Þar af var 6,1% samdráttur í síld, 48,2% samdráttur í kolmunna og 100% í makríl. 14% á markað Þá var seldur afli fyrir um sjö millj- arða króna í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands í október, en verð- mæti sjófrysts afla var 2,9 milljarðar króna og verðmæti afla sem seldur var á markaði var um 1,7 milljarðar sem þýðir að um 14% heildarafla hafi ratað á markað. Aflaverðmæti upp úr sjó nam 144 milljörðum króna á 12 mánaða tíma- bili, frá nóvember 2018 til október 2019, sem er 14,2% aukning frá sama tímabil ári áður. gso@mbl.is Morgunblaðið/Alfons Finnsson Þorskur Aflaverðmæti botnfisks jókst en samdráttur var í uppsjávarfiski. Minna aflaverð- mæti í október  Þrátt fyrir aukningu í botnfiskafla BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þrátt fyrir hlutfallslega lítið fram- boð af nýju sérbýli á höfuðborgar- svæðinu telja sérfræðingar ekki út- lit fyrir raunverðshækkanir í ár. Samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins eru 328 sérbýli fokheld eða lengra komin á höfuðborgar- svæðinu. Til samanburðar eru 4.656 íbúðir á sama byggingarstigi á svæðinu. Það þýðir að 14,2 íbúðir eru komnar á þetta byggingarstig fyrir hvert sérbýli sem er jafn langt komið. Talningin var gerð í september. Athygli vekur að í mars 2018 voru 3.695 íbúðir á þessu byggingarstigi á svæðinu en 398 sérbýli. Hlutfalls- lega voru þá 9,3 íbúðir á þessu stigi fyrir hvert sérbýli. Undir sérbýli flokkast raðhús, parhús og einbýlis- hús. Á það ber að líta að hátt hlutfall einbýlishúsa eru smíðuð að frum- kvæði einstaklinga til eigin nota. Mörg ný einbýlishús fara því ekki í almenna sölu. Að því leyti er ein- býlishúsamarkaðurinn frábrugðinn markaði með parhús og raðhús. Mun ekki þrýsta niður verði Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, telur aðspurður að hlutfallslega mikið framboð nýrra íbúða muni ekki þrýsta niður verði á sérbýli á næstunni. Heilt á litið sé útlit fyrir óbreytt raunverð í báðum flokkum í ár. Mörg sérbýlishúsahverfi séu eftirsótt sem aftur haldi uppi sölu- verðinu. Þá styðji lágt vaxtastig og fjármögnunarhliðin við markaðinn en vextir hafa farið lækkandi. Jafn- framt séu mörg sérbýlishúsahverfi eftirsótt. Það haldi aftur uppi verð- inu. Magnús Árni Skúlason, hagfræð- ingur og framkvæmdastjóri Reykja- vík Economics, bendir á að kaup- endur á sérbýli hafi jafnan góða hækkun fjölbýliseigna í ár. Sú þró- un geti haldið aftur af verðhækk- unum í sérbýli. Meðal þeirra þátta séu óvissa á vinnumarkaði, hægari vöxtur hagkerfisins og mikið fram- boð nýrra íbúða. Þá bendir Magnús Árni á að markaðurinn með sérbýli í kringum höfuðborgarsvæðið sé að styrkjast. Stórhöfuðborgarsvæðið sé að verða eitt atvinnusvæði. Jafnframt geti það t.d. tekið álíka langan tíma að aka frá Selfossi til Kópavogs og frá ytri hverfum Mosfellsbæjar á há- annatíma. Gengur vel að selja sérbýli Kjartan Hallgeirsson, fram- kvæmdastjóri Eignamiðlunar og formaður Félags fasteignasala, seg- ir hafa gengið vel að selja sérbýli í fyrra. Eftirspurnin hafi verið góð. Vaxtalækkanir hafi stutt við kaup fólks sem fer út í frekari veðsetn- ingu með dýrari eignum. Þá hafi aukið framboð af íbúðum fyrir 60 ára og eldri gert mörgum eldri kaupendum kleift að minnka við sig og selja sérbýlið. Kjartan rifjar upp að þegar hann byrjaði að selja íbúðir í fyrsta áfanga Skuggahverfisins hafi gott einbýlishús eða raðhús ekki dugað fyrir þokkalegri íbúð. Verð á sérbýli hafi ekki endurspeglað byggingar- kostnað. Nú sé minni munur á verði sérbýlis og slíkra íbúða. Þá hafi greiðara aðgengi að lánum stutt við kaup á sérbýli. Áður hafi gjarnan verið erfitt að fá lán til slíkra kaupa. Framboðið af sérbýli sé takmark- að. Til dæmis sé lítið framboð í póstnúmerum 101-108, vestan El- liðaá. Verð á sérbýli haldist stöðugt  Sérfræðingar telja að raunverð sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu breytist lítið í ár  Hlutfallslega mun fleiri nýjar íbúðir en sérbýli eru að koma á markað á næstunni Íbúðir í byggingu 2018 og 2019 Samkvæmt talningu Samtaka iðnaðarins 2018 2019 Fjölbýli mars sept. mars sept Höfuðborgarsvæðið 3.695 4.466 4.625 4.656 Nágrenni höfuðborgarsvæðisins 395 574 710 556 Alls 4.090 5.040 5.335 5.212 Serbýli Höfuðborgarsvæðið 398 379 363 328 Nágrenni höfuðborgarsvæðisins 403 380 456 469 Alls 801 759 819 797 500 450 400 350 300 250 200 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Þróun húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu Meðalkaupverð íbúðarhúsnæðis frá janúar 2010 til október 2019 Þús.kr./m2 Fjölbýli Sérbýli Heimild: Þjóðskrá Íslands Kaupsamningar árið 2019 Fjölbýli Sérbýli Meðalkaupverð/meðalstærð m.kr. 46,3 100 m2 74,3 182 m2 Meðalfermetraverð þús.kr. 463 409 Fjöldi kaupsamninga 4.458 729 Meðalfermetraverð í jan./okt. 2019 þús.kr. 457 468 392 415 Breyting 2,5% 5,9% 468 415 eiginfjárstöðu og eigi íbúðir fyrir. Þannig hafi söluverð íbúða bein áhrif á sérbýlismarkaðinn. Ýmsir þættir muni halda aftur af verð- Kjartan Hallgeirsson Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00 Mikið úrval af KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM fyrir allar gerðir bíla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.