Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
á kr.
199.995
r
MADEIRA
– fáðumeira út úr fríinu
Gönguferðá
15. apríl í 8 nætur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Snjóflóð á Flateyri og í Súgandafirði
Varðskipið Þór, sem kallað var til
Flateyrar með mannskap og vistir
vegna snjóflóða á þriðjudagskvöld,
komst ekki inn í höfnina á Flateyri
vegna fjölda sokkinna báta og varp-
aði því akkeri rétt utan við Flateyri
um klukkan hálf fjögur síðdegis í
gær.
Halldór B. Nellett, skipherra á
Þór, hafði ekki sofið dúr í rúman
sólarhring þegar blaðamaður náði
tali af honum um klukkan þrjú í gær.
Þá var áhöfn Þórs nýbúin að ferja
allan mannskapinn yfir á Flateyri, 22
manns, þar af nokkrir sem komu á
svæðið til þess að veita bæjarbúum
áfallahjálp.
Áður hafði Þór flutt unglings-
stúlku til Ísafjarðar sem grófst undir
í öðru snjóflóðanna sem féllu á
þriðjudagskvöld og ferjað björg-
unarsveitarmenn, lækna, hjúkrunar-
fræðinga og vistir til Flateyrar.
Halldór segir að ekki hafi viðrað
sérlega vel til sjóferðar en haugasjór
hafi verið úti af Galtarvita og Sauða-
nesi.
Spurður hversu lengi Þór muni
dvelja á Flateyri segir Halldór það
óljóst.
„Við eigum að vera heimamönnum
hérna til halds og traust og förum í
verkefni ef þau koma upp.“
Þór og áhöfn skipsins hafa dvalið á
Ísafirði síðan á fimmtudag.
„Við höfum lengi reynt að hafa
áætlanir okkar þannig að við séum
hérna fyrir vestan þegar veður eru
slæm. Eins og sannast hefur er oft
helst þörf á okkur hér,“ segir Hall-
dór, sem bætir því við að fleiri varð-
skip þyrftu að vera á sjó en þetta
eina. Það sé öryggismál eins og
sannast hafi í óveðrum síðustu vikna.
ragnhildur@mbl.is
Komst ekki inn í höfnina
vegna sokkinna báta
Varðskipið Þór Flateyringum til halds og trausts
Ljósmynd/Önundur Pálsson
Þór Varðskipið var á Ísafirði þegar boð barst um að koma til Flateyrar þar sem myndin var tekin í gærmorgun.
Ragnhildur Þrastardóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
Sumir þeirra björgunarsveitarmanna
sem björguðu unglingsstúlku sem
hafði grafist undir snjóflóði á Flateyri
á þriðjudagskvöld höfðu einnig orðið
vitni að snjóflóðinu sem þar féll árið
1995. Þá létust tuttugu manns.
„Þetta rifjar upp erfiðar minningar
fyrir sumum. Einn af þeim sem komu
hingað með varðskipinu í nótt sagði
við mig að hann tryði ekki að hann
væri kominn aftur í þessar kringum-
stæður,“ segir Magnús Einar
Magnússon, formaður björgunar-
sveitarinnar Sæbjargar á Flateyri.
Hann var einn af þeim sem komu
að því að bjarga stúlkunni. Snjóflóðið
féll á heimili hennar en móðir stúlk-
unnar og tvö yngri börn komust út úr
húsinu af sjálfsdáðum. Stúlkan er
ekki alvarlega slösuð.
Vöknuðu við drunurnar
„Þetta leit ekki vel út við fyrstu sýn
en sem betur fer fór þetta mjög vel,“
segir Magnús.
Snjóflóðin sem féllu á Flateyri á
þriðjudagskvöld voru tvö og bæði
gífurlega stór. Það þurfti varla að
kalla björgunarsveitarmenn út því
þeir vöknuðu flestir við drunurnar
sem fylgdu fyrra snjóflóðinu. „Einn
hérna í björgunarsveitinni býr við að-
algötuna og sendi okkur myndir af
hafnarstæðinu, sem var náttúrulega
alveg í rúst. Fyrstu viðbrögð okkar
voru að mæta niður eftir og hafa sam-
band við lögregluna upp á rýmingu og
annað slíkt,“ segir Magnús. Skömmu
síðar féll seinna flóðið. „Þá lögðum við
alla áherslu á að bregðast við þar,“
segir Magnús.
Tíu björgunarsveitarmenn fóru inn
í húsið og tveir stóðu fyrir utan og
stjórnuðu aðgerðum og var Magnús
annar þeirra. Egill Ólafsson, einn
björgunarmanna, sagði við mbl.is, að
húsið hafi verið fullt af snjó. „Fjór-
ir, fimm náðu að skríða með loftinu.
Það voru kannski 50-60 sentímetrar
upp í loftið og þeir byrjuðu að moka
þar niður. Við hinir fórum fyrir fram-
an og byrjuðum að moka þar inn. Mér
hefur held ég aldrei liðið eins vel og
þegar ég heyrði stúlkuna gráta,“
sagði Egill.
Stúlkan var á tæplega tveggja
metra dýpi í 40 mínútur. Félagi Egils,
sem var einn þeirra sem tróð sér inn
með loftinu, lýsti því fyrir honum að
hann hefði notað snjóflóðastangir og
þegar hann hafi fundið fyrir einhverju
mjúku hefði allt verið sett á fulla ferð.
Auk björgunarsveitarmanna buðu
margir bæjarbúar fram aðstoð sína.
„Allir voru til í að hjálpa,“ segir
Magnús.
Stúlkan var flutt til Ísafjarðar með
varðskipinu Þór og dvaldi á sjúkra-
húsinu þar í gær ásamt móður sinni
og systkinum.
Enn mikil hætta
Enn er mikil hætta á snjóflóðum á
norðanverðum Vestfjörðum, sam-
kvæmt spám Veðurstofu Íslands, og
verður sú hætta áfram til staðar, að
minnsta kosti í dag.
Magnús segir að björgunarsveitar-
menn séu tilbúnir að koma til aðstoð-
ar ef eitthvað meira gerist. Hann seg-
ir einnig að Flateyringum þyki vont
að varnargarður hafi brugðist enda
hafi íbúar treyst á þá lengi vel. Útlit
er fyrir betra veður á svæðinu í dag
og næstu daga. Veðrið hefur verið
slæmt undanfarið og farið var að bera
á vöruskorti í verslunum enda bárust
aðföng ekki vestur vegna ófærðar.
Snjóflóðið vekur erfiðar minningar
12 björgunarsveitarmenn björguðu unglingsstúlku undan snjóflóði Snöggir á staðinn vegna annars
snjóflóðs Einna verst að varnargarður hafi brugðist Hafnarstæðið í rúst og hætta á fleiri flóðum
Ljósmynd/Önundur Hafsteinn Pálsson
Flateyri Ólafstún er efst í þorpinu. Húsið við götuna sem flóðið lenti á er fullt af snjó og stóðu gluggar opnir í gær.
„Óvissustigið gildir áfram, sem og
rýmingaráætlun fyrir ákveðin
svæði. Veðrið er þó heldur að ganga
niður og staðan að skána,“ sagði
Magni Hreinn Jónsson á ofan-
flóðavakt Veðurstofunnar í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Í gær könnuðu snjóflóðaathug-
unarmenn og sérfræðingar Veður-
stofunnar umfang flóðsins á Flat-
eyri, þangað sem þeir fóru frá
Ísafirði með varðskipinu Þór. At-
huganir sýna að flóðin hafa farið yfir
varnargarðana bæði í Innra-Bæjar-
gili og Skollahvilft, en flóðið á síðar-
nefnda staðnum olli tjóni í höfninni.
Margt bendir jafnframt til að meira
hafi flætt yfir Skollahvilftargarðinn
en hinn.
Út frá fyrirliggjandi upplýsingum,
segir á vef Veðurstofunnar, er áætl-
að að flóðin á Flateyri í gær kunni að
vera sambærileg að stærð við það
sem féll úr Skollahvilft í október
1995 og olli mannskaða. Flóð yfir
varnargarðana á Flateyri á tveimur
stöðum nú segir Veðurstofan kalla á
endurmat á virkni þeirra. Einnig að
farið verið yfir mat á hættu á staðn-
um sem gert var 2004. sbs@mbl.is
Virkni varnargarða
verði endurmetin
Snjóflóðasérfræðingar meta stöðuna