Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 31

Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 málið. Björg Thorarensen lagapró- fessor og fjöldi annarra sérfræðinga kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd. Eftir þvílíka ítarlega skoðun á málinu tók þingið þá ákvörðun að samþykkja mínar tillögur. Það hefði vel getað gert eitthvað annað, sam- þykkt sumar tillögurnar eða enga þeirra. Þannig að þingið rannsakaði málið líka. Það er því ekki rétt af Hæsta- rétti að segja að ég hafi brotið rann- sóknarregluna og þingið ekki bætt úr því,“ segir Sigríður. Í dómi undirréttar Mannréttinda- dómstóls Evrópu sagði að sú ákvörð- un að láta alþingismenn ekki greiða atkvæði um hverja og eina dómara- stöðu, heldur samþykkja allar tillög- urnar 15 í einu lagi, hefði dregið úr Sigríður Á. Andersen, fv. dómsmála- ráðherra, segir meirihluta þing- manna ekki hafa fallist á lista hæfnis- nefndarinnar. Þá fyrst og fremst út af kynjasjónarmiðum. Hallað hafi á konur. Til upprifjunar mynduðu Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Björt framtíð ríkisstjórn þegar skip- að var í nýjan Landsrétt vorið 2017. Sigríður segir aðspurð að þessi sjónarmið hafi heyrst jafnt frá báðum kynjum í liði þingmanna. „Ég átti einkafundi með formönn- um allra flokkanna í stjórn og stjórn- arandstöðu. Þeir sögðu að listinn færi ekki svona í gegnum þingið. Sumir formennirnir lögðu til að ég tæki karl, bara einhvern karl, af listanum og setti inn konu í staðinn. Þá spurði ég á móti: Finnst þér málefnalegt að fjarlægja karl af listanum? Þá var fátt um svör.“ Vitnisburður fyrir héraðsdómi Sigríður rifjar svo upp vitnisburð Hönnu Katrínar Friðriksson, þing- flokksformanns Viðreisnar, fyrir hér- aðsdómi í skaðabótamáli tveggja um- sækjenda sem ekki voru skipaðir. Hanna Katrín hefði þá staðfest að Viðreisn hefði ekki samþykkt lista hæfnisnefndarinnar óbreyttan. Sigríður rifjar jafnframt upp að Gunnlaugur Claessen, formaður hæfnisnefndarinnar, hafi ekki viljað afhenda skorblaðið þar sem umsækj- endum var raðað í hæfnisröð með ná- kvæmni – aðeins 0,03 munaði á þeim sem urðu í sætum 15 og 16. Sigríður kveðst hafa óskað eftir því að sjá skjalið á rafrænu formi til að sjá mætti forsendur útreikninga. Gunnlaugur hafi hins vegar aðeins fallist á að afhenda pappírsútgáfuna. Því hafi þurft að slá inn tölurnar til að átta sig á niðurröðuninni. Þá hafi hún rekið augun í að samtala allra matsþáttanna 12 hafi verið 105%. Sendi þingmönnum bréf Sigríður kveðst hafa kynnt skor- blaðið fyrir stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd. Eftir að hún lagði sem ráð- herra fram tillögu að nýjum hæfnis- lista með fjórum nýjum nöfnum hafi þinginu borist harðorð mótmæli. M.a. hafi Ástráður Haraldsson, einn umsækjenda, sent öllum þing- mönnum tölvubréf sama dag og full- yrt að ráðherrann væri að brjóta lög. „Þingið fékk til sín gesti til að ræða heilindum (e. integrity) dómara- valsins. Sigríður segir þetta misskilning. Það segi í íslenskum lögum að við fyrstu skipun dómara í Landsrétt hafi borið að leggja fram tillögu um hvern og einn dómara fyrir þingið. „Það var gert. Ég skrifaði 15 til- lögur á 15 mismunandi blöð, hvert og eitt nafn, sem ég sendi til Alþingis með rökstuðningi. Svo hafði ég ekki afskipti af málinu í þinginu. Þingið fór alfarið sjálft með málið eftir það. Þetta var óvenjulegt þingmál. Hvorki lög né þingsályktunartillaga heldur einstakt mál sem kveðið er á um í lög- um að þingið þurfti að afgreiða,“ seg- ir Sigríður. Var vandlega athugað „Skrifstofa Alþingis rannsakaði málið mjög vel og hvernig ætti að meðhöndla þetta. Tillögurnar 15 fóru fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem útbjó svo nefndarálit; lagði til að þingið samþykkti þessar 15 tillögur mínar. Svo koma nöfnin í númeraðri röð, frá 1 til 15, og þá segir forseti þingsins að greiða eigi atkvæði um 15 tillögur. Hann leggi hins vegar til að greidd séu atkvæði um þær í einu lagi nema einhver þingmaður óski þess að greidd verði atkvæði um hvert og eitt dómaraefni sérstaklega. Það óskaði enginn eftir því. Þetta er alvanalegt. Aðdragandinn var að forseti, með at- beina þingskrifstofu, kynnti áform sín og möguleika í stöðunni vel fyrir þingflokksformönnum. Allir á þeim fundi voru sáttir með fyrirhugað fyrirkomulag og enginn ágreiningur um fyrirkomulag atkvæðagreiðsl- unnar. Ég lagðist reyndar eindregið gegn því að greidd yrðu atkvæði um þetta í einu lagi og tjáði þingflokksformanni mínum að ég teldi rétt að þingmenn yrðu látnir standa frammi fyrir valinu á hverju dómaraefni fyrir sig. En það var ekki hlustað á mig.“ Ekki hlutverk dómstólanna Sigríður lýsir sig hins vegar sam- mála forseta Alþingis og skrif- stofustjóra Alþingis sem hafi útbúið minnisblað í kjölfar dóms MDE. Þar segi að þinginu sé í sjálfsvald sett hvernig það hagar atkvæða- greiðslum. Það sé ekki hlutverk dóm- stóla að ganga inn á svið löggjafans með afskiptum af því hvernig at- kvæðagreiðslur á þinginu fara fram. „Það gilda þingskaparlög um starfshætti Alþingis, hefðir og venjur í þinghúsinu, sem dómstólarnir sem ein grein ríkisins á ekki að skipta sér af, og hvað þá erlendur dómstóll,“ segir Sigríður. Hún segir aðspurð að ef dómurinn verði staðfestur í efri deild MDE í febrúar muni það að sínu mati ekki hafa neinar afleiðingar. „Þá hlýtur Hæstiréttur að árétta það sem hann hefur margsagt að dómarar við Landsrétt eru löglega skipaðir samkvæmt íslenskri stjórn- skipan. Eitthvert álit frá Strassborg mun ekki breyta neinu um það þótt vissulega megi líta á það sem hvatn- ingu til þess að endurskoða reglur og vinnubrögð um skipan dómara,“ segir Sigríður Á. Andersen. baldura@mbl.is Þingmenn höfnuðu hæfnisröðinni  Fyrrverandi dómsmálaráðherra segir stjórn og stjórnarandstöðu hafa krafist breytinga á listanum  Gagnrýni MDE á atkvæðagreiðslu um dómara lýsi grundvallarmisskilningi á ferli málsins í þinginu Morgunblaðið/Ómar Alþingishúsið Ekki var einhugur um tillögur hæfnisnefndarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.