Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 32

Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 VIÐ LEITUM AÐ LISTAVERKUM ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ Vefuppboð nr. 462 Grafík, prent og ljósmyndir lýkur 22. janúar Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Í dag, 16. janúar, er liðinn réttur aldarfjórðungur frá því snjóflóð féll á byggðina í Súðavík sem tók með sér fjórtán mannslíf. Ætla má að öllum sem fylgdust með fregnum af þess- um atburðum séu þeir í fersku minni, en snjóflóðin tvö á Vestfjörðum árið 1995 eru einn mesti harmleikur sem orðið hefur í íslensku þjóðlífi. At- burðurinn er af þeirri stærðargráðu að flestir muna efalaust hvar þeir voru staddir þegar fréttin barst; and- rúm stundarinnar lifir í vitundinni. „Það versta gerðist“ Snjóflóðið í Súðavík sem var um það bil 200 metra breitt féll kl. 6.25 að morgni á mitt kauptúnið, sem þó hafði ekki verið talið snjóhættu- svæði. Fyrr um nóttina höfðu hús innar í þorpinu verið rýmd í varúðar- skyni. Þar heitir Traðargil og þar átti snjóflóð eftir að falla síðar á þessum degi og falla á hús, sem þá höfðu ver- ið rýmd. Húsin sem snjóflóðið mikla féll á voru við Túngötu, Nesveg og Njarðarbraut. Í þeim voru 26 manns og fórust 14 þeirra. Þar af voru átta börn og þrjú þeirra systkini. Tólf manns var bjargað, en síðastur fannst á lífi tólf ára drengur 23 klukkutímum eftir að snjóflóðið féll. Leit var lokið að kvöldi 17. janúar, en þá fannst tveggja ára drengur látinn. „Við erum öll mjög hljóð og döpur. Áfallið kemur sjálfsagt síðar … Og það versta gerðist sem getur gerst í svona. Börn misstu foreldra sína og foreldrar misstu börn,“ sagði Sigríð- ur Hrönn Elíasdóttir, sveitarstjóri í Súðavík, í samtali við Morgunblaðið, 17. janúar. Umfangsmiklar björgunaraðgerðir Hamförum þessum olli óvenjulega mikil ofankoma í norðvestlægri átt svo snjó kyngdi niður í fjallshlíðinni. Staðkunnugum var ljóst að hættan var til staðar en bíða átti birtingar á hinni köldu janúarnótt og sjá hvort rýma þyrfti hús, sem reyndist um seinan. Líkt og kemur fram hér til hliðar hófust aðgerðir heimamanna við leit nokkrum mínútum eftir að flóðið féll og þungi þeirra varð meiri þegar björgunarsveitarmenn, læknar, hjúkrunarfræðingar og lögregla frá Ísafirði náðu á staðinn. Í hjálparliði þessu voru meðal annars menn með sérþjálfaða leitarhunda og er talið að þeir hafi skipt sköpum við aðgerðir og bjargað lífi nokkurra. Alls á fjórða hundrað manns víða af landinu komu að þessum umfangsmiklu björgunar- aðgerðum, meðal annars fjölmennt lið sem varðskipið Týr flutti, læknar, hjúkrunarfólk, björgunarsveitar- menn og hjálpargögn. Skipið fór vestur í kröppum sjó og foráttuveði og hafa margir þeir sem voru um borð lýst því hve erfið ferðin var þeim. Íbúum í þorpinu fækkaði Hættuástandi í Súðavík var aflýst fyrst fjórum dögum eftir flóðið. Fáum dögum efir snjóflóðið var farið að huga að nýrri framtíð í Súða- vík. Á útmánuðum voru smáhýsi eða sumarhús flutt vestur og þar gat fólk komið sér fyrir til bráðabirgða. Síðar á árinu 1995 hófust svo fram- kvæmdir við nýja íbúðabyggð í þorp- inu, það er á svokölluðu Eyrardals- svæði innar við Álftafjörð á svæði utan snjóflóðahættu. Fólki sem átti hús á skilgreindu hættusvæði bauðst að fá þau greidd út fyrir opinbert fé – og voru alls 55 hús keypt upp. Einnig munaði mikið um aðstoð almennings en í landssöfnuninni Samhugur í verki strax í kjölfar flóðanna söfn- uðust um 290 millj. kr. – um 800 millj. kr. reiknað til núvirðis. Þá veitti ríkisstjórnin framlag til upp- byggingar á staðnum sem svarar til 440 millj. kr. á verðlagi líðandi stundar. Þegar snjóflóðið féll fyrir ald- arfjórðungi bjuggu 228 manns í Súðavík em 204 núna. Hamförunum verður ekki einum kennt um und- anhald byggðarinnar. Þar koma til fleiri þættir, svo sem breytingar í sjávarútvegi, en fólksfækkunin varð þó efalaust hraðari sakir þess hvað gerst hafði. Fjórtán fórust í snjóflóðinu fyrir 25 árum  Harmleikur í Súðavík  Tólf varð bjargað  Á fjórða hundrað sinntu björgunarstarfi  Samhugur í verki Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/RAX Rústir Brak úr húsunum sem lentu undir flóðinu dreifðist yfir stórt svæði. Moggi Forsíða Morgunblaðsins 18. janúar 1995 er mörgum enn í minni. Flugsýn Stór hluti Súðavíkurþorps var í rúst eftir snjóflóðið sem kom úr Traðargili. Byggð var í framhaldinu reist á nýjum stað. Morgunblaðið/RAX Hlé Örþreyttir björgunarmenn hvíla lúin bein í frystihúsi Frosta á Súðavík. Morgunblaðið/RAX Samhugur Á Ísafirði var flaggað í hálfa stöng. Þar gilti ferðabann sem í raun setti sig sjálft, því ófært var í því aftakaveðri sem var þessa daga. Aldarfjórðungur frá snjóflóðunum í Súðavík og á Flateyri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.