Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 37
FRÉTTIR 37Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
Hassan Rouhani,
forseti Írans,
kallaði eftir því í
sjónvörpuðu
ávarpi sínu í
gær að íranska
þjóðin sýndi
„samstöðu“ eftir
mótmæli síðustu
daga. Þá sagði
Rouhani nauðsynlegt að gera rót-
tækar breytingar á stjórnarfari
landsins og að yfirvöld þyrftu að
útskýra hvers vegna þau hefðu
ekki viðurkennt strax að þau
hefðu skotið niður farþegavélina
sem hrapaði í nágrenni Teheran í
síðustu viku.
Hvatti Rouhani kjörstjórn Írans
til þess að leyfa öllum sem vildu
bjóða sig fram í þingkosningum,
sem fram fara í næsta mánuði, en
frambjóðendur til þingsins þurfa
alla jafna að sleppa í gegnum
nálarauga klerkastjórnarinnar til
að fá að bjóða sig fram. „Fólkið er
herrar okkar og við erum þjónar
þess,“ sagði Rouhani og bætti við
að landinu gæti ekki verið stjórn-
að af einum væng stjórnmálanna.
Rouhani hafnaði einnig
hugmyndum Borisar Johnson, for-
sætisráðherra Bretlands, um að
gert yrði nýtt samkomulag um
kjarnorkumál Írans, sem að þessu
sinni yrði eftir höfði Donalds
Trump Bandaríkjaforseta. „Það
eina sem Trump hefur gert er að
brjóta alþjóðasáttmála og -lög,“
sagði Rouhani í ávarpi sínu.
ÍRAN
Hvetur Írana til að
sýna samstöðu
Karamba Diaby,
eini svarti þing-
maður Þýska-
lands, tilkynnti í
gær að göt eftir
byssukúlur hefðu
verið á rúðum
skrifstofu sinnar
þegar hann
mætti til vinnu
þar í gær.
Diaby, sem situr fyrir þýska
Sósíaldemókrataflokkinn, setti
mynd af einni rúðunni á Twitter í
gær, og sáust þar þrjú kúlnagöt. Þá
sagði Diaby að ein rúðan, sem var
með áprentuðu andliti hans, hefði
verið skotin nokkrum sinnum.
Lögreglan rannsakar nú atvikið.
Talið er að loftbyssa með mjúkum
kúlum hafi verið notuð til verksins,
en engin af kúlunum braust alla
leið í gegnum tvöfalda glerið í rúð-
um skrifstofunnar.
Heiko Maas, utanríkisráðherra
Þýskalands, lýsti yfir á Twitter-
síðu sinni að hin grunaða árás væri
„ótrúleg, ógeðsleg og heigulsverk“.
Diaby var fyrst kjörinn á þing
fyrir borgina Halle frá árinu 2013,
en hann hefur átt heima í Þýska-
landi frá árinu 1980.
ÞÝSKALAND
Kúlnagöt á skrif-
stofu þingmanns
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ríkisstjórn Rússlands sagði óvænt af sér í gær
eftir að Vladimír Pútín Rússlandsforseti nýtti
stefnuræðu sína til þess að leggja til breytingar á
stjórnarskránni sem eiga að styrkja völd rúss-
neska þingsins, Dúmunnar, á kostnað forsetans.
Dímítrí Medvedev forsætisráðherra sagði að
stjórnarskrárbreytingarnar myndu gjörbreyta
valdajafnvægi landsins, hvort sem litið væri til
löggjafarvalds, framkvæmdavalds eða dóms-
valds, og því væri rétt að ríkisstjórnin stigi til hlið-
ar. Pútín útnefndi Míkhaíl Mishústín, yfirmann
rússnesku skattstofunnar, til að gegna embætti
forsætisráðherra. Medvedev mun hins vegar taka
sæti sem varaformaður rússneska þjóðaröryggis-
ráðsins, en Pútín er þar í forsæti.
Segir Rússa vilja breytingar
Á meðal þeirra valda sem færð yrðu til Dúm-
unnar eru valdið til að útnefna forsætisráð-
herrann og helstu ráðherra, sem nú liggur hjá
forsetaembættinu. Þá er lagt til að hlutverk hér-
aðsstjóra verði eflt og strangari kröfur gerðar
um þjóðerni þeirra sem veljast eiga til að gegna
æðstu embættum þjóðarinnar.
Pútín sagði í ávarpi sínu að Rússar hefðu sett
fram skýrar kröfur um breytingar. Þá lofaði
hann því að breytingarnar yrðu bornar undir
þjóðina áður en þær tækju gildi. „Við munum
bara geta byggt sterkt og farsælt Rússland á
grunni virðingar fyrir almenningsálitinu,“ sagði
Pútín í ræðu sinni.
„Leiðtogi til lífstíðar“
Rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei
Navalní sagði hins vegar öruggt að atkvæða-
greiðsla um stjórnarskrárbreytingar yrði aldrei
marktæk, og að markmið Pútíns væri að tryggja
að hann yrði „leiðtogi til lífstíðar“.
Kjörtímabil Pútíns rennur út árið 2024 og er
honum samkvæmt núgildandi stjórnarskrá
óheimilt að bjóða sig fram til embættisins á ný.
Sérfræðingar í málefnum Rússlands litu á tillög-
urnar í gær sem vísbendingu um að hann hygð-
ist mögulega taka sæti í ríkisráði Rússlands,
sem fær aukin völd taki breytingarnar gildi.
Vill breyta stjórnarskránni
Ríkisstjórn Rússlands segir óvænt af sér Pútín leggur til að Dúman verði styrkt á kostnað forseta
AFP
Rússland Pútín nýtti stefnuræðu sína í gær
til að kynna breytingar á stjórnarskránni.
Sjálfboðaliðar sjást hér bjarga ungum dreng úr rústum
loftárásar sem stjórnarher Sýrlands gerði í gær á borg-
ina Idlib, síðasta vígi uppreisnarmanna í borgarastríð-
inu sem staðið hefur nú yfir í nær átta ár. Að minnsta
kosti níu óbreyttir borgarar eru sagðir hafa látist þeg-
ar sprengja lenti á grænmetisgötumarkaði í borginni.
AFP
Borgarastríðið í Sýrlandi geisar enn
Gerðu loftárás á óbreytta borgara
Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í
fulltrúadeild Bandaríkjaþings, út-
nefndi í gær sjö þingmenn úr sínum
röðum til þess að sækja mál deildar-
innar á hendur Donald Trump
Bandaríkjaforseta fyrir öldunga-
deildinni. Adam Schiff, sem fór fyrir
rannsókn fulltrúadeildarinnar, var
valinn til þess að leiða teymið en
Jerry Nadler, formaður dómsmála-
nefndar fulltrúadeildarinnar, var
einnig útnefndur. Flestir af þeim sjö
þingmönnum sem Pelosi útnefndi
eru með reynslu sem saksóknarar í
bandaríska réttarkerfinu.
Útnefningin var nauðsynlegur
undanfari þess að fulltrúadeildin
gæti sent ákærur sínar formlega
áfram til öldungadeildarinnar, en
ekki var búið að því þegar Morgun-
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Gert er ráð fyrir að réttarhald
öldungadeildarinnar hefjist á
þriðjudaginn og munnlegur mál-
flutningur verði í tvær vikur eftir
það.
Pelosi út-
nefnir sak-
sóknara
Adam Schiff leiðir
saksóknarateymið
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty
ÚTSALA
20-60%
AFSLÁTTUR
UNDIRFÖT – AÐHALDSFATNAÐUR – SUNDFÖT – NÁTTFÖT
Haldari 3.990,-
Buxur 1.000,-
Haldari 4.990,-
Buxur 1.500,-
Haldari 5.990,-
Buxur 2.000,-
Haldari 6.990,-
Buxur 2.500,-
Haldari 7.990,-
Buxur 3.000,-
TILBOÐSVERÐ