Morgunblaðið - 16.01.2020, Síða 54
54 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
Í dag kveðjum
við ástkæran bróð-
urson minn, Stein-
dór Sverrisson,
hinstu kveðju. Í 11 ár eða rúm-
lega það er hann búinn að heyja
harða baráttu við krabbamein.
Alveg frá greiningu meinsins
var Steindór alltaf opinn um
veikindi sín og ræddi um þau
sem verkefni sem þyrfti að tak-
ast á við. Mér þótti vænt um að
hann hringdi eða kom þegar
urðu breytingar á meininu. En
alltaf horfði hann fram á við.
Það var bara tvennt í hans
huga; „annaðhvort heldur mað-
ur áfram eða leggst með tærnar
upp í loft og drepst,“ sagði
hann. Ef maður spurði frétta
var alltaf allt gott, en við vitum
að þetta var mikil þrautaganga.
Hann var einstaklega jákvæður
og tókst á við veikindin af miklu
æðruleysi. Margar skurð-
aðgerðir og hvert lyfið á fætur
öðru sem virkuðu misvel, en
virkuðu þó lengst af.
Ég dáðist að þeim hjónum
hve yfirveguð þau voru í barátt-
unni, aldrei nein uppgjöf. Hann
var mjög þakklátur fyrir tímann
sem hann lifði, talaði oft um
hvað hann hefði fengið að upp-
lifa þessi 11 ár, eignaðist fjögur
barnabörn og nýtti vel tímann
sem hann átti með þeim, enda
var hann vinsæll hjá þeim og
elskaður.
Þau Hjördís ferðuðust mikið,
og öll fjölskyldan, bæði innan-
lands- og utan. Hann passaði vel
upp á að allur barnahópurinn
ætti og væri í réttum búningum
þegar horft var á boltann, það
eru skemmtilegar myndir til frá
þessum stundum og þar eru sko
allir í réttum klæðnaði. Eitt af
áhugamálum hans var stang-
veiði og var hann farinn að
kenna barnabörnunum réttu
handtökin.
Heimili Steindórs og Hjördís-
ar er alltaf öllum opið og ófáar
máltíðirnar og góðar stundir
Steindór
Sverrisson
✝ SteindórSverrisson
fæddist 8. júní
1959. Hann lést 7.
janúar 2020.
Útför Steindórs
fór fram 15. janúar
2020.
sem ég hef notið,
jafnt virka daga
sem aðra. Í mörg
ár buðu þau í
skötuveislu á Þor-
láksmessu og á að-
fangadags- og
gamlárskvöld hefi
ég verið boðin og
notið þess að vera
með þeim. Steindór
var listakokkur,
sælkeri og mikill
matmaður. Hann var lengi
kokkur til sjós.
Hugurinn reikar til jóla
bernskunnar, jólagjafir hans til
ömmu og afa valdi hann alltaf
sjálfur, þær voru sérstakar og
fallegar. Hugurinn reikar víða
þegar litið er til baka í minn-
ingabankanum; samvera á Sól-
bakka fyrr og síðar, ættarmót,
veislur, ferðalög, alltaf var
Steindór hrókur alls fagnaðar
og gott og gaman að vera með
honum. Það er erfitt að sætta
sig við að stundunum með hon-
um sé lokið.
Það var notalegt seinni árin,
á leið í eða úr búðarferð, að
koma við í Álfhólunum og fá
kaffibolla og spjall. Við sem eft-
ir erum munum reyna að halda
vel utan um sameiginlegan
barnahópinn okkar og Mikael
son Báru. Við erum mörg sem
eigum barnafjársjóðinn saman,
ég veit að hans verður vel gætt,
afar, ömmur og aðrir ástvinir,
svo og eldri börnin líka. Allt er
þetta fólk sem er til staðar fyrir
fjölskylduna, vonandi getum við
veitt þeim og hvert öðru styrk
og ástúð.
Ég lýk hugleiðingum um
kæran frænda. Hann er kominn
í Sumarlandið og búinn að hitta
þá sem farnir voru. Ég á eftir
að sakna Steindórs mikið. Not-
um vel tímann sem okkur er
gefinn í lífinu. Innilegar sam-
úðarkveðjur elsku fjölskylda og
Dóra og Ríkharður, ykkar er
missirinn mestur.
Votta líka öllum þeim sem
þótti vænt um hann samúð
mína. Guð geymi Steindór.
Ingibjörg Steindórsdóttir.
Með söknuði kveð ég æsku-
félaga minn og vin, Steindór
Sverrisson. Hann var bekkjar-
bróðir Hafdísar, eiginkonu
minnar, í Barnaskóla Selfoss í
austurbæjardeild 1959-árgangs-
ins. Enginn engill frekar en
margir aðrir bekkjarfélagar
þeirra sem ég kynntist á ung-
lingsárunum og urðu fyrir-
ferðarmiklir í hópi unglinga á
Selfossi á þeim tíma. Glókoll-
urinn af Birkivöllunum var öfl-
ugur.
Þegar barnaskóla sleppti
töldu margir sig fullorðna nán-
ast á einni nóttu. Við Steindór
urðum vinir á þeim tíma og síð-
an vinnufélagar. Við áttum það
sameiginlegt að staldra ekki
lengur við í menntastofnunum
en skyldan bauð. Námshæfileik-
arnir voru samt í góðu lagi og
eflaust hefði getað orðið eitt-
hvað allt annað úr okkur ef þeir
hefðu fengið að njóta sín.
Fjölskylda Steindórs fluttist í
Laufhagann en bjó um tíma á
Írafossi. Hann fékk sumarstarf
við gatnagerð á Selfossi og ári
síðar vinnu í Steypuiðjunni þar
sem við áttum eftir að starfa
saman í nokkur ár. Áhugi hans
á að reyna fyrir sér til sjós kom
fram og sjómannsferillinn tók
við, samhliða sumarvinnu hjá
okkur og fleiri fyrirtækjum í
fyrstu.
Áratugum síðar, árið 2004,
kom Steindór aftur til starfa í
Set hf. Okkur þótti vænt um að
endurheimta vorboðann eins og
fyrrum og hann reyndist okkur
mjög góður samstarfsmaður og
stjórnandi.
Þau Hjördís héldu áfram að
mæta á viðburði starfsfólks eftir
að hann lét af störfum og hann
heimsótti okkur reglulega. Þær
stundir eru mér dýrmætar
minningar.
Mér kom ekki á óvart hvað
Steindór tókst á við erfiðasta
verkefni sitt af miklu raunsæi
og hafði mikinn andlegan styrk.
Hversu vel honum tókst til við
það og hversu lengi það varði
kom hins vegar á óvart. Honum
tókst ætlunarverkið; að staldra
miklu lengur við en ætlað var og
sjá börn sín vaxa úr grasi og
barnabörnin bætast við efnileg-
an hóp afkomendanna.
Hjördísi, fjölskyldunni og
öðrum ættingjum þeirra Stein-
dórs sendum við Hafdís og okk-
ar fólk innilega samúðarkveðju.
Bergsteinn Einarsson.
Nú hefur félagi minn og vinur
Steindór Sverrisson kvatt eftir
áralanga baráttu við illvígan
sjúkdóm. Við Steindór þekkt-
umst síðan við vorum strákar á
Selfossi, að minnsta kosti viss-
um við lengi vel hvor af öðrum.
Vinátta okkar hófst þó ekki fyrr
en á unglingsárunum. Báðir á
fullri ferð í lífsins leit að áhuga-
verðum hlutum, eins og ein-
beittir ungir menn hafa hug til.
En lífið skiptist í tímabil og
hvert þeirra tekur enda og nýtt
tekur við, með öðrum skyldum,
öðrum áhugamálum og öðrum
áherslum. Á einu þessara tíma-
bila varð því miður aðeins of
langt á milli okkar, ég meðal
annars í Danmörku og síðar bú-
settur í Kópavogi, en hann að
rækta sinn garð á Selfossi. En
eins og oft vill verða þá sækja
hlutirnir í sama farið og er
óhætt að segja að það hafi gerst
eftir að við stofnuðum fjölskyld-
ur. Steindór varð svo lánsamur
að giftast Hjördísi Ásgeirsdótt-
ur og eignast með henni ynd-
islegt heimili og tvö börn, Báru
og Sverri, en fyrir átti Hjördís
dótturina Andreu, sem Steindór
leit alla tíð á sem eitt af sínum
börnum. Steindór varði miklum
tíma með fjölskyldunni, og
sinnti hugðarefnum sínum af
áhuga, fótbolti og veiði ásamt
ferðalögum var það sem hann
unni. Ekki skipti það máli hve-
nær komið var í heimsókn,
hvort heldur heima eða heiman,
alltaf voru móttökurnar eins og
vænta mátti, og sjaldan nein
lognmolla. Þau hjónin hafa alla
tíð verið dugleg að rækta sam-
skipti við vini og ættingja enda
stór hópur sem fylgdi þeim.
Eins og gengur gafst ekki alltaf
tími til að skjótast yfir heiðina
en þá var síminn nýttur til að
ræða málefni líðandi stundar, en
á þeim hafði Steindór oftar en
ekki ákveðnar skoðanir og var
fylginn sér.
Þegar maður horfir til baka
sést hvað tíminn líður ótrúlega
fljótt, upp í hugann koma þær
mörgu góðu samverustundir
sem við áttum, og þá sérstak-
lega voru veiðiferðirnar til mik-
illar gleði. Það var okkur öllum
því mikið áfall þegar hann
greindi frá veikindum sínum
fyrir meira en áratug. Sorgin og
óvissan sem fylgir slíku hefur
mikil áhrif á alla og þá sér-
staklega fjölskylduna. En þá
komu bestu eiginleikar Stein-
dórs í ljós; að gefast aldrei upp.
Strax frá fyrsta degi var stefn-
an tekin á lækningu með já-
kvæðu og einbeittu hugarfari.
Þetta ótrúlega viðhorf hreif
okkur og sýndi að með viljann
að vopni má ná lengra en maður
getur ímyndað sér. Á þessum
árum hefur hann náð að sjá fjöl-
skylduna vaxa og dafna, sín eig-
in börn verða að fullorðnu fólki
og njóta samverustunda með
barnabörnunum fjórum. En bar-
áttan við sjúkdóminn tók sinn
toll og lagði að endingu vin
minn að velli hinn 7. janúar síð-
astliðinn. Við sendum fjölskyld-
unni hlýjar hugsanir og vinar-
kveðjur á erfiðum tíma, þið vitið
að við Sigga verðum til taks
þegar þarf á að halda.
Vertu sæll vinur, ég mun allt-
af sakna þín.
Jóhann Þórmundsson.
Fallinn er frá vinur okkar,
Steindór Sverrisson, eftir hetju-
lega og langvarandi baráttu við
krabbamein. Við höfum verið
svo heppin að fá að fylgja Stein-
dóri að í fjöldi ára. Eiginmaður,
pabbi og síðast en ekki síst afi
voru allt hlutverk sem Steindór
uppfyllti með miklum sóma og
ást hans á fjölskyldunni stýrði
flestu eða öllu sem hann gerði.
Ættingi, vinur og félagi voru
einnig hlutverk sem honum fór-
ust einstaklega vel úr hendi,
hann var afar vinamargur og
fjöldi sem vissi hversu gott var
að leita til hans með margvísleg
mál eða bara til að spjalla.
Margar góðar minningar
hafa leitið á okkur, fjölskyld-
una, síðustu daga og mörg tár
fallið. Útilegur þar sem allir
fengu að njóta sín, fjölskyldu-
veiðiferðir á ýmsa staði þar sem
hann gætti þess að allir sem
langaði að veiða, veiddu, því
hann var mikil aflakló, fótbolti
og fótboltamót, mataráhuginn,
grillveislur og spilakvöld svo
eitthvað sé nefnt. Steindór var
óþreytandi við að hjálpa börn-
unum að koma hugmyndum sín-
um í framkvæmd, óháð því
hversu gáfulegar þær voru,
börnin vissu sem var að ef vant-
aði að búa eitthvað til eða gera
við eitthvað var hann maðurinn
sem best var að leita til. Erfði
hann þann eiginleika og
hugsanlega einnig verkfæra-
kassana frá föður sínum sem
hefði áður gegnt þessu hlut-
verki. Það var alltaf stutt í
gleðina og húmorinn og prakk-
arasvipurinn sem einkenndi
hann mun halda áfram að
gleðja þá sem hann átti samleið
með.
Elsku Hjördís, við höfum
fylgst með baráttu ykkar fjöl-
skyldunnar full aðdáunar og
lotningar yfir þeim styrk og
samheldni sem þið hafið sýnt
allt til loka. Á þeim tíma hafa
börnin ykkar stækkað og þrosk-
ast og fjögur barnabörn fæðst
sem hafa notið samvistanna við
afa sinn og hann við þau. Við
erum óendanlega þakklát fyrir
allar þær minningar sem við
eigum með Steindóri og víst er
að við eigum eftir að halda
áfram að rifja upp sögur af
Steindóri og gleðjast saman
yfir. Missirinn er mikill en
minningin lifir.
Elsku Hjördís, Andrea, Bára
og Sverrir, og aðrir fjölskyldu-
meðlimir, okkar innilegustu
samúðarkveður.
Emil, Ingibjörg, Ásta Þyri,
Arna Ýr og Emil Ásgeir.
Kveðja frá knattspyrnu-
deild UMF Selfoss
Félagi okkar, Steindór
Sverrisson, er fallinn frá langt
um aldur fram.
Hverju samfélagi sem og
frjálsum félagasamtökum er
lífsnauðsyn að eiga öfluga
stuðningsmenn og bakhjarla
sem standa vaktina og eru til-
búnir að svara kalli um aðstoð
þegar það kemur. Þetta eru
liðsmennirnir sem halda þess-
um samtökum gangandi.
Þannig liðsmann átti knatt-
spyrnudeild UMF Selfoss ein-
mitt í Steindóri Sverrissyni sem
alltaf svaraði kallinu, stóð vakt-
ina í miðasölu, flaggaði í bænum
á leikdegi, eldaði ofan í leik-
menn og gestalið eftir heima-
leiki og svo mætti áfram telja.
Steindór var sjálfur iðkandi
hjá knattspyrnudeildinni á
yngri árum, kappsamur og
ákveðinn eins og ávallt þegar
kom að íþróttinni hjá honum. Í
seinni tíð stóð hann svo vaktina
sem foreldri á hliðarlínunni og
sjálfboðaliði, ávallt jafn hvatvís
og jákvæður.
Steindór var kraftmikill og
glaðlyndur félagi. Hann hafði
mikla ástríðu fyrir fótboltanum,
tók fullan þátt í gleðistundum
þegar vel gekk, nú síðast sl.
haust er fyrsti stóri titill
deildarinnar vannst, bikar-
meistaratitill kvenna. Enda var
hann gallharður Selfyssingur og
vildi sjá liði sínu ganga sem
best. Hann mætti á nánast alla
leiki og studdi við bakið á liðinu
í blíðu og stríðu. Steindór var
heldur ekki feiminn við að segja
sína skoðun og það var gaman
að ræða við hann um fótbolta.
Hann var duglegur að hrósa því
sem vel var gert en líka gagn-
rýninn ef honum þótti ástæða
til. Hann hafði líka efni á því,
var kröfuharður á sitt lið en
ekki síður á sjálfan sig. Það var
hverjum manni ljóst er þekkti
hann og fylgdist með harðvít-
ugri baráttu hans um árabil við
hinn illvíga sjúkdóm sem felldi
hann að lokum.
Nú kveðjum við þennan öfl-
uga liðsmann okkar af auðmýkt
og með djúpu þakklæti. Hans
verður sárt saknað. Mestur er
þó missir fjölskyldunnar og
sendum við Hjördísi og börnum
þeirra okkar einlægustu sam-
úðarkveðjur og megi þau öðlast
styrk til að takast á við sorg
sína.
Blessuð sé minningin um
okkar góða félaga Steindór
Sverrisson.
F.h. knattspyrnudeildar
UMF Selfoss,
Jón Steindór Sveinsson
formaður.
Hvað er að frétta! þetta var
það fyrsta sem Steindór sagði
þegar hann kom í heimsókn eða
maður bara hitti hann fyrir utan
húsið okkar en við búum í rað-
húsi og vorum við því nágrann-
ar. Steindóri kynntumst við fyr-
ir 15 árum og fjölskyldu hans
þegar við fluttum á Selfoss, var
okkur strax tekið vel frá fyrsta
degi. Hann var mjög góður ná-
granni. Við máttu t.d. aldrei
borga í sláttuvélinni og kerran
var alltaf laus fyrir okkur, auð-
vitað reyndum við að borga til
baka með því að slá fyrir hann
annað slagið. Steindór vildi allt
fyrir alla gera. Hann hjálpaði
Símoni með að gera klárt fyrir
veiði hvort sem var bara hnýta
öngla eða bara hvetja hann
áfram í veiðinni, hann sjálfur
var mjög svo mikill veiðimaður.
Steindór var duglegur að fylgj-
ast með veiðinni og ef hann vissi
að Símon væri að veiða í Hvít-
ánni kom hann til að vita hvað
væri að frétta eða segja hvar
fiskur veiddist í gær. Helena
var einnig mjög duglega að
spyrja hann út í eldamennsku
enda var hann mikil kokkur. 27.
des. gaf hann henni síðustu ráð-
in. Mjög oft er elduð kjúklinga-
súpan sem hann sendi í Dag-
skrána um árið og núna mun
þessi súpa heita Steindórssúpa
á mínu heimili. Nokkur gaml-
árskvöld vorum við með honum
og hans fólki úti að skjóta upp
rakettum og eftir það var yfir-
leitt endað inni hjá þeim eitt-
hvað fram á nótt. Barnapössun
fyrir okkur var ekkert mál hjá
honum. Þegar Sigmar var pínu-
lítill sofandi út í vagni eða vak-
andi var ekkert mál fyrir Hel-
enu að spyrja Steindór hvort
hann væri til í að hlusta eftir
honum eða jafnvel hvort hann
mætti verða aðeins hjá honum á
meðan hún skryppi út í búð.
Drengirnir okkar þrír máttu
alltaf leita til hans og Hjördísar
ef við vorum ekki heima og var
maður alltaf mjög öruggur með
það. Alltaf er gaman að koma
yfir í kaffisopa og spjall og
munum við halda því áfram, því
alltaf er kaffisopinn góður en
því miður munt þú ekki koma
gangandi inn í stofu og spyrja
okkur hvað sé að frétta? Mikið
var rætt um fótbolta þó að þeir
Steindór og Símon væru ekki á
sama máli um hverjir væru
bestir í fótbolta, Steindór sagði
Man. Utd en Símon Liverpool.
Steindór, við eigum mikið eftir
að sakna þín, að fá þig ekki í
heimsókn til að tala um fótbolta
stjórnmál eða lífið og tilveruna.
Hvíldu í friði, kæri vinur.
Hjördís, Andrea, Bára og
Sverrir og aðrir ættingjar, við
vottum ykkur okkar dýpstu
samúð.
Ykkar nágrannar,
Helena Sif og Símon.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Minningargreinar
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
VILHELM EINARSSON,
Hjallaseli 55,
lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð
23. desember.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fjölskyldan þakkar Seljahlíð fyrir góða umönnun.
Margrét I. Hafsteinsdóttir
Hafsteinn Vilhelmsson Gyða Kristjánsdóttir
Hlíf S. Vilhelmsdóttir Pétur Guðmann Guðmanns.
barnabörn og systkini
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hlýju og
samúð við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÁSLAUGAR MAGNÚSDÓTTUR
síðast til heimilis á Hrafnistu
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu, Hafnarfirði fyrir
alúð og umhyggju.
Helga Snæbjörnsdóttir
Bjarni Snæbjörnsson Ragnheiður Gunnarsdóttir
Árni Snæbjörnsson Katrín Guðný Alfreðsdóttir
Magnús Snæbjörnsson Ásrún Ingólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn