Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 64
STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Hreinsum gluggatjöld, sófaáklæði, ullarteppi og púðaver Hafðu hreint fyrir gluggunum 64 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020 Elva Hrund Ágústsdóttir elva@mbl.is Þeir sem ekki þekkja til ættu að kynna sér Glacier Gin aðeins nánar. Fyrirtækið var stofnað fyrir rétt um tveimur árum og hefur skotist hratt áfram. Enda um ekk- ert venjulegt gin að ræða. Hér er allt það besta sem þú færð frá náttúru landsins í einni flösku. Undirstaðan er íslenskt vatn í bland við túnfífil, einiber, sítrónu, kóríander og ilmappelsínu. Bland- an er hreint út sagt stórkostleg og engin furða að Glacier Gin sé eitt það þekktasta á veitingastöðum bæjarins í dag og víðar fyrir utan landsteinana. En ginið er komið á markað í Þýskalandi, Spáni, Dubai og nú einnig í Danmörku. Á bak við gott gin stendur fag- legt teymi, en Glacier Gin er í eigu Rúriks Gíslasonar, Fannars Guð- mundssonar og Haraldar Gísla Sigfússonar. „Tveir eldklárir frá- bærir strákar sem hafa sterka sýn á hlutina buðu mér það tækifæri að koma inn í fyrirtækið. Þeir búa yf- ir ákveðnum kostum sem ég hef ekki og öfugt – þannig myndum við gott teymi,“ segir Rúrik er við spurðum hann út í fyrirtækið. Það er ekki einungis innihaldið sem fangar bragðlaukana því flaskan sjálf þykir einstaklega smart og er mjög myndræn ef svo má segja. Flaskan er í grunninn hvít á lit, með mattri áferð. Strák- arnir höfðu ákveðna sýn í huga hvað útlitið varðaði og fengu breskan hönnuð til að setja hug- myndina niður á blað. Útkoman er einföld, stílhrein og segir allt sem segja þarf. Hún laðar svo sannar- lega augað að og stendur upp úr í hvaða umhverfi sem er. „Ég vil stundum segja að flaskan sé eins og sæt stelpa eða strákur sem stel- ur athyglinni þinni á ballinu og þegar þú kynnist innihaldinu betur þá verður ekki aftur snúið,“ segir Rúrik og hlær. Við getum fullyrt að flaskan er í það minnsta eftir- sóknarverð að mynda og deila ef marka má síður samfélagsmiðl- anna. Samstarfsverkefni byggt á góðum vinskap Rúrik segir það hafa staðið til í einhvern tíma að fá Frederik með sér til landsins, en þeir kynntust í gegnum sameiginlegan vin í Kaup- mannahöfn. „Ég er mikill aðdáandi kristalsins frá Frederik Bagger og hef keypt sitt lítið af hverju í gegn- um árin áður en ég kynntist hon- um persónulega – hann er frábær náungi, þægilegur og góður vinur. Við höfum unnið að þessari vöruþróun saman og mun afrakst- urinn verða afhjúpaður í kringum mánaðamótin febrúar/mars.“ Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvaða vöru þeir félagar ætla að kynna til leiks en Rúrik heldur fast í að halda þeim upplýsingum leyndum, þó að hann sé næstum búinn að missa það fram á tunguna nokkrum sinnum í viðtalinu. Undirrituð getur fullvissað les- endur um að það sem hér um ræðir eru fallegustu kristalsvörur síðari ára, sem spanna heila vörulínu og meira til. Frederik Bagger er son- ur hins heimsfræga Eriks Bagger og á því ekki langt að sækja ræt- urnar í heimi hönnunar. Frederik kynnti fyrstu tvær vörurnar sínar, kristalsglös, á netinu undir lok árs- ins 2014 og innan tveggja vikna höfðu honum borist um 300 pant- anir. Neytendur höfðu talað og hefur vörumerkið þotið á ógn- arhraða upp stjörnustigann síðustu ár. Fyrirtækið selur í dag hágæða kristal og postulín um alla Evrópu – þar á meðal hér á landi. En þetta er líka fyrsta sam- starfsverkefnið sem Frederik Bagger fer í með vörurnar sínar, en hann segist vera varkár um hvað og hverja hann tengi við vörumerkið. „Við Rúrik erum góðir vinir og höfum haft sömu hugsjón varðandi samstarf af einhverjum toga. Við vorum sammála um að það sem við ætluðum að gera ætti að vera skemmtilegt en líka skyn- samlegt. Og eftir að hafa rætt hug- myndina kom ekkert annað til greina en að taka skrefið lengra og framkvæma,“ segir Frederik, sem bætir því við að sjálfbærni og um- hverfisvænir hlutir spili þar stórt hlutverk hvernig hann stundi við- skipti. „Að komast í nálægð við söguna í kringum Glacier Gin og íslensku náttúruna, þá varð ekki aftur snúið. Útkoman er spennandi samstarf sem við hlökkum til að deila með ykkur,“ segir Frederik. Ævintýraferð um Þórsmörk Þegar kynna á erlendum gesti land og þjóð í fyrsta sinn er alveg eins gott að gera það með stæl. Glacier Gin-teymið leitaði til Mid- gard Adventure, en þeir skipu- lögðu ævintýralega ferð sem mun seint gleymast. Ferðinni var heitið í Þórsmörk og upp á snævi þakinn Gígjujökul – landslag sem danskur ferðamaður er ekki vanur að sjá á sínum heimaslóðum. „Ég fékk ótrúlega upplifun af Ís- landi og það var mikill heiður að fá að upplifa þessa stórbrotnu nátt- úru hér á landi. Ég er mjög hrifinn af Íslendingum í heild sinni og gestrisni ykkar er yndisleg. Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að koma til landsins og var þessi ferð ógleymanleg lífsreynsla,“ segir Frederik. En hugmyndir og innblástur hljóta að spretta fram eins og sviti í umhverfi sem þessu? „Á ferðalögum mínum fæ ég oft innblástur af sögu og menningu á hverjum stað fyrir sig. Hér var það jökullinn sem snerti mig á mjög sérstakan hátt sem erfitt er að út- skýra – ég fann fyrir létti, mikil- leika og innblæstri á alveg nýjan máta. Þessi upplifun hefur gefið mér mikla lífsánægju,“ segir Frederik. Íslendingar eru smekkfólk fram í fingurgóma Við Íslendingar erum hálfgerðir nautnaseggir og kunnum svo sann- arlega að gera vel við okkur. Sama hvort um mat, drykk, klæðnað eða húsbúnað er að ræða – hjá því verður ekki komist. Við erum orðin meðvitaðri um hönnun og þarf- irnar okkar, og nýtum hvert tæki- færið sem gefst til að „tríta“ okkur þegar það á við. Rúrik segist ekki vera nein undantekning þegar að þessu kemur og að hann heillist auðveldlega af fallegri hönnun í allri sinni mynd. Frederik var á sama máli og tók undir; „það leikur enginn vafi á því að Íslendingar eru smekkfólk fram í fingurgóma og hafa mikla ástríðu fyrir skandinavískri hönnun. Vör- urnar mínar hafa verið til sölu í þrjú og hálft ár á Íslandi og það er virkilega ánægjulegt að sjá hversu vel hefur verið tekið í vörumerkið okkar hér á landi. Ég fyllist alltaf stolti þegar ég verð vitni að því að fólk tali um kristalsvörurnar – það er ekki annað hægt en að fyllast þakklæti sem hönnuður. Ísland er lítill markaður með mikla sál og ég hef mikla trú á því að Frederik Bagger geti orðið eitt af þeim vörumerkjum sem eiga mikla framtíð á landinu,“ segir Frederik. Fyrir áhugasama, þá má fylgjast nánar með samstarfinu inn á In- stagram – @theglaciergin og @frederikbaggerdk. Rúrik í samstarfi við þekktasta kristalsframleiðanda Danmerkur Það er ekki á hverjum degi sem tvö fáguð og eftirsóknarverð fyrirtæki taka höndum saman. Glacier Gin í eigu okkar ástsæla lands- liðsmanns í fótbolta, Rúriks Gíslasonar, hefur hafið samstarf við hinn vinsæla danska kristalsframleiðanda Frederik Bagger, en vör- urnar hans þykja hámóðins í dag – ekki að ástæðulausu. Það verður áhugavert að sjá hver útkoman verður en búast má við miklu. Ljósmynd/Stefán John Turner Í góðum höndum Ein fallegasta ginflaska allra tíma í fallegustu náttúru Íslands – og í höndunum á alls ekki ómyndarlegum manni, Rúrik Gíslasyni, sem er einn af eigendum vörumerkisins Glacier Gin. Fögur flaska Hönnun flöskunnar þykir einstaklega vel heppnuð. Fegurð og fágun Frederik Bagger og Rúrik skála hér í kristalsglösum í óspilltri íslenskri náttúru – rétt eins og sannir menn gera.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.