Morgunblaðið - 16.01.2020, Side 67
DÆGRADVÖL 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
bóndi. Foreldrar Sverris voru
hjónin Gísli Vigfússon, f. 29.8.
1923, d. 1.3. 2007, bóndi á Flögu í
Skaftártungu, og Sigríður Sigurð-
ardóttir, f. 19.1. 1934, d. 11.5. 2017,
húsfreyja og ferðaþjónustubóndi á
Flögu II.
Börn Fanneyjar og Sverris: 1)
Svanhildur, f. 21.8. 1999, d. 25.8.
1999; 2) Sólrún Lára, f. 4.6. 2002,
nemi í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti; 3) Sigurður Gísli, f.
13.7. 2006, nemi við Kirkjubæjar-
skóla á Síðu; 4) Ásgeir Örn, f. 24.2.
2008, nemi við Kirkjubæjarskóla á
Síðu.
Systkini Fanneyjar eru Guðrún
Lárusdóttir, f. 24.8. 1966, bóndi í
Keldudal í Skagafirði; Kristín
Lárusdóttir, f. 11.3. 1971, starfar
við tamningar og er sauðfjárbóndi
á Syðri-Fljótum í Meðallandi.
Foreldrar Fanneyjar: Hjónin
Lárus Valdimarsson, f. 29.6. 1940,
d. 22.2. 2016, sauðfjárbóndi á
Kirkjubæjarklaustri II allan sinn
starfsaldur og fjallkóngur á Mið-
afrétti til margra ára, og Sólrún
Ólafsdóttir, f. 28.2. 1948, sauðfjár-
bóndi á Kirkjubæjarklaustri II til
ársins 2003 og hefur starfað við
bókhald fyrir bændur um margra
ára skeið. Hún er búsett á Kirkju-
bæjarklaustri II.
Fanney Ólöf
Lárusdóttir
Jóhanna Guðmundsdóttir
húsfreyja í Bolungarvík, síðast bús. á Þverá á Síðu
Guðsteinn Einarsson
sjómaður í Bolungarvík
Fanney Guðsteinsdóttir
húsfreyja og bóndi á Þverá á Síðu
Sólrún Ólafsdóttir
sauðfjárbóndi og bókhaldari á
Kirkjubæjarklaustri II
Ólafur Þorvarður Vigfússon
bóndi á Þverá á Síðu, síðar fi skverka-
maður í Reykjavík
Kristín Gísladóttir
vinnukona á Hjörleifshöfða
og húsfreyja á Þverá á Síðu
Vigfús Ólafsson
lausamaður víða á Síðu og í Landbroti,
bóndi á Þverá á Síðu síðustu ár
Kristín Lárusdóttir
hestamaður og
heimsmeistari í tölti 2015
Bjarni Einarsson gullsmiður í Rvík
Anna Pálsdóttir
húsfreyja á Holtahólum
Ólafur Einarsson
bóndi á Holtahólum
á Mýrum, A-Skaft.
Guðrún Ólafsdóttir
húsfreyja og bóndi á Kirkjubæjarklaustri
Úr frændgarði Fanneyjar Ólafar Lárusdóttur
Lárus Valdimarsson
sauðfjárbóndi og fjallkóngur á
Kirkjubæjarklaustri II
Bergur Helgason
búfræðingur og skólastjóri
Búnaðarskólans á Eiðum
Valdimar Lárusson
póst- og símstöðvarstjóri og
veðurathugunarmaður á Kirkjubæjarklaustri
Lárus Helgason
bóndi, oddviti og alþingismaður
á Kirkjubæjarklaustri
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir húsfreyja
á Ásum og Norðurfossi í Mýrdal
Runólfur Sveinsson skólastjóri á
Hvanneyri og landgræðslu stjóri
í Gunnars holti
Elín Sigurðardóttir
húsfreyja á Kirkjubæjarklaustri
„MÉR BER AÐ TILKYNNA ÞETTA. ÞAÐ ER Á
LISTA YFIR DÝR Í ÚTRÝMINGARHÆTTU.”
„Æ, GETURÐU EKKI SEST NIÐUR, LILJA?
ÉG VINN ALDREI ÞEGAR ÞÚ ERT Á ÞESSU
EILÍFA RÁPI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann gefur þér
það sem þig langaði
mest í.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞETTA ER
KLEINUHRINGUR HÆTTU AÐ BORÐA KLEINUHRINGI
ÞETTA ER GULRÓT
ÆTLAR ÞÚ EKKI
AÐ GAGNRÝNA ÞAÐ
AÐ HELGA ER AÐ
LUMBRA Á MÉR?
SEINNA,
HRÓLFUR …
FYRST LANGAR MIG AÐ HRÓSA HELGU FYRIR ÞAÐ
HVERSU FLJÓTT OG ÖRUGGLEGA HÚN HAFÐI ÞIG UNDIR!
TVEIR
ÁSAR
Helgi R. Einarsson orti eftir leiktvö:
Af skynsemi vörðust og skutu,
skoruðu’ og niður þá brutu.
Í djöfulmóð
er nú dulítil þjóð.
Í duftið því Rússarnir lutu.
Skagfirðingurinn Jón Gissurar-
son skrifaði í Leirinn á mánudag:
„Hér er nú norðanstormur, skaf-
renningur og tveggja gráðu frost.
Ljósin á bæjunum í Blönduhlíðinni
blasa við augum þegar ég lít út um
gluggann“:
Þó að föl sé foldarrósin
og fjúki mjöll í skugganum.
Blönduhlíðar blessuð ljósin
blasa við úr glugganum.
Sigmundur Benediktsson svaraði
um hæl:
Þó að mynd við mjallarlín
mótist köldum vetri,
hærri yfir hérað sýn
hafa fáir betri.
Þetta kveikti í Skírni Garðars-
syni:
Hríðar veður húsin skaka,
heljar skafl á stöðli rís.
Skírnir þó með skóflu og haka,
skylmist títt við hröngl og ís.
Vísunni fylgdu baráttukveðjur:
„Á Fornastöðli álpuðust menn til að
gróðursetja nokkur tré, þetta veld-
ur geipilegum skafli þar, þvert á
veginn, þótt jörð sé að öðru leyti
næstum auð. Barátta mín við þetta
fyrirbæri er aðdáunarverð, en auð-
vitað vonlaus.“
Á þriðjudaginn hélt Skírnir
áfram: „Hér eystra eru engar
skepnur lengur, kúabúskapur af-
lagður, sauðfjárbúskapur á „hold“
vegna niðurskurðar og hross engin
á bænum.
Sauðfjárrækt var sett á „hold“
og sóma hestar dauðir.
Fýkur nú bæði fönn og mold
og flestir básar auðir.
Garðsláttuvél tjóðruð í einum
básanna reyndar, O tempora, O
mores!“
Sigmundur Benediktsson svar-
aði:
Sæll vertu séra Skírnir
sannur í von og trú.
Svo að frá harmi hýrnir
hugleiddu ráð mín nú.
Elskaðu ís og snjó!
Drottins sá harði hlekkur.
hita að neðan slekkur.
Dýrðleg tré er dafna frjó.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn handbolti og
norðanstormur
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.