Morgunblaðið - 16.01.2020, Side 76
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2020
Brynhildur Guðjónsdóttirvakti verðskuldaða athyglisem leikstjóri þegar húnsviðsetti magnaða upp-
færslu á Ríkharði þriðja eftir William
Shakespeare fyrir sléttu ári. Stuttu
eftir frumsýningu var tilkynnt að hún
myndi næst leikstýra öðru stórvirki
leikbókmenntanna, Vanja frænda eftir
Anton Tsjekhov, í janúar 2020. Upp-
færslurnar eiga það sameiginlegt að
Brynhildi tekst með úthugsaðri túlkun
og sviðsetningu að draga fram hversu
sorglega brýn verkin tvö eru og í
sterku samtali við nútímann. Meðan
Ríkharður kallaðist í valdabrölti sínu á
við ráðamenn samtímans speglar
heimur Vanja þau brýnu málefni sem
snúa annars vegar að umhverfissjón-
armiðum, þar sem við erum sífellt
minnt á að athafnir okkar og athafna-
leysi skilar komandi kynslóðum jörð-
inni í verra ásigkomulagi en við tókum
við henni, og hins vegar misskiptingu
auðs þar sem fjöldinn stritar myrkr-
anna á milli en býr engu að síður við
fátækt meðan aðrir vita ekki aura
sinna tal en dettur þó ekki í hug að
leggja nema smáræði af mörkum.
Vanja frændi Borgarleikhússins
gerist í rússneskri sveit í kringum
aldamótin 1900. Gunnar Þorri Péturs-
son hefur unnið nýja og einstaklega
þjála þýðingu á leikritinu sem færir
tungutak persóna nær nútímaáhorf-
endum. Eins og Gunnar Þorri bendir á
í grein sinni í leikskrá var Tsjekhov
snemma gagnrýndur fyrir skort á
eiginlegri atburðarás í verkinu sem
fjalli aðeins um persónur sem séu fast-
ar í óþægilegum aðstæðum. Þessa
gagnrýni má hæglega heimfæra á
fleiri leikrit Tsjekhovs og séu áhorf-
endur að leita að framvindudrifnu
plotti er hætt við því að þeir verði fyrir
vonbrigðum. Aðal Tsjekhovs sem leik-
skálds felst ekki í fléttunni heldur í
margbrotnum og spennandi persónum
sem eru oft alls ekki samkvæmar sjálf-
um sér þegar kemur að leit þeirra að
tilgangi lífsins, þrá eftir breytingum og
hamingju, von um ást, ótta við þverr-
andi ungdómsþrek og eftirsjá eftir
glötuðum tækifærum. Breyskleiki per-
sónanna og samspil við aðstæður fá
áhorfendur auðveldlega til að sveiflast
milli samúðar og hláturs. Persónur
Tsjekhovs segja iðulega eitt og gera
síðan annað, sem býr til spennandi
dýnamík í heimi verksins og heldur
áhorfendum sífellt á tánum. Óhætt er
að segja að tónninn sé sleginn snemma
í uppfærslunni þegar Marína fóstra
býður Astrov lækni að þiggja te sem
læknirinn afþakkar ákveðið um leið og
hann tekur sér tebolla og drekkur af
ákefð. Skýr lestur Brynhildar á verk-
inu, frábær leikaravinna, sú ákvörðun
að láta persónur iðulega ávarpa áhorf-
endur beint, hárnákvæm tempóskipti
og nærvera þögulla persóna í helstu
lykilsenum magnar lífið í þessu góða
leikriti og skapar sterka og heildstæða
leikhúsupplifun sem enginn ætti að
láta fram hjá sér fara.
Í Vanja frænda hittum við fyrir
Vanja (Valur Freyr Einarsson) og
Sonju (Katrín Halldóra Sigurðar-
dóttir), systurdóttur hans, sem búa og
vinna á sveitaóðali fjölskyldunnar.
Árum saman hafa þau unnið hörðum
höndum til þess að geta séð fyrir pró-
fessornum Aleksandr (Jóhann Sig-
urðarson) meðan hann bjó og starfaði í
borginni, en hann var kvæntur móður
Sonju þar til hún lést. Þegar verkið
hefst er Aleksandr, sem kominn er á
eftirlaun, búinn að dvelja um nokkra
hríð á sveitaóðalinu ásamt Jelenu
(Unnur Ösp Stefánsdóttir), ungri og
fallegri eiginkonu sinni, sem heillar
jafnt Vanja og Astrov lækni (Hilmir
Snær Guðnason). Á meðan Astrov
gengur með grasið í skónum á eftir
Jelenu er hann blindur á ást Sonju á
honum. Á óðalinu dveljast einnig
María (Sigrún Edda Björnsdóttir),
móðir Vanja og fyrri eiginkonu pró-
fessorsins, sem sér ekki sólina fyrir
fyrrverandi tengdasyni sínum, hinn
ólánsami Ílja öðru nafni Vaffla (Hall-
dór Gylfason) en fjölskylda hans átti
áður óðalið, gamla fóstran Marína
(Margrét Helga Jóhannsdóttir) og
vinnumaðurinn Jefím (Arnar Dan
Kristjánsson). Jóhann Sigurðarson
smellpassar í hlutverk hins aldraða og
síkvartandi prófessors sem finnst
hann fastur í útlegð í sveitinni og sakn-
ar lífsins, fjörsins og framans í borg-
inni. Halldór Gylfason er dásamlegur í
hlutverki Ílja sem fór á mis við ham-
ingjuna en hélt að eigin sögn samt
stoltinu. Hann er spaugilega skilnings-
sljór og blindur á aðstæður, meðal
annars í samtali Jelenu og Astrovs þar
sem hann sýnir henni kortin sín.
Í gervi sínu sem Astrov minnir
Hilmir Snær Guðnason skemmtilega á
Tsjekhov, en leikskáldið starfaði sem
kunnugt er sjálfur sem læknir. Hann
er eini hugsjónamaður verksins og
hæglega hægt að dást að því hversu
umhugað honum er um hamingju
mannkynsins. Hann er engu að síður
þjakaður af samviskubiti yfir að ná
ekki að áorka nógu miklu þegar kemur
að náttúruvernd og vel meðvitaður um
að framtíðarkynslóðir muni ekki hugsa
hlýlega til fyrri kynslóða. Það þjónar
uppfærslunni vel og eykur dýnamíkina
í samspili persóna að mála Astrov ekki
upp sem glæsilegan elskhuga, heldur
leggja fremur áherslu á brestina og
mennskuna. Í meðförum Hilmis Snæs
verður Astrov ekki aðeins skarpsýni
hugsjónamaðurinn heldur einnig
glámskyggni ruddinn sem er svo upp-
tekinn af sjálfum sér að hann sér ekk-
ert í kringum sig – allra síst konurnar
tvær sem dragast að honum.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir er
frábær í hlutverki Sonju og miðlar vel
vinnusemi persónunnar en jafnframt
viðkvæmni þegar hún gerir sér ljóst að
það er betra að lifa í óvissu, því þá er
að minnsta kosti hægt að lifa í voninni.
Sterk sviðsnærvera hennar og stöðug
virk hlustun skilaði sér með áhrifarík-
um hætti í öllum samleik. Unnur Ösp
Stefánsdóttir fer afar vel með hlutverk
hinnar óhamingjusömu Jelenu. Niður-
bæld þrá hennar eftir lífinu birtist
skýrt í því að hún getur ekki spilað
nema hljóðlaust út í loftið. Snjallt er
hjá Bjarna Frímanni Bjarnasyni, sem
annast tónlist uppfærslunnar, að taka
útgangspunkt í píanótónlistinni sem
Jelena fær ekki að skapa. Kómískar
tímasetningar Unnar Aspar nutu sín
til hins ýtrasta í kortasenunni með
Astrov þar sem hún gat ekki leynt því
hversu áhugalaus hún var um skóg-
ræktina. Reiðilestur hennar snemma
verks yfir skeytingarleysi manna
gagnvart náttúrunni var glæddur gulri
lýsingu úr smiðju Björns Bergsteins
Guðmundssonar ljósameistara svo
minnti á gróðureldana ógurlegu sem
nú brenna hinum megin á hnettinum.
Valur Freyr Einarsson fer með titil-
hlutverk sýningarinnar og tekst af
mikilli innlifun að miðla sársauka, reiði
og vonbrigðum manns sem áttar sig á
því að hann er aðeins aukapersóna í
eigin lífi. Um árabil hefur hann stritað
í þágu tálvonar, en sér nú fram á að fá
aldrei að njóta ávaxta erfiðis síns.
Frammistaða Vals Freys í þessu mjög
svo krefjandi hlutverki var hreint út
sagt mögnuð.
Hljóðmynd Þórðar Gunnars Þor-
valdssonar og leikgervi Elínar Sig-
ríðar Gísladóttur eru til fyrir-
myndar. Leikmynd Barkar Jóns-
sonar birtir okkur veröld þar sem
búið er að beisla náttúruna í þágu
mannsins. Hornin í ljósakrónunni
miklu minna okkur á útdauð dýr
héraðsins og búið er að smíða veggi
úr trjánum sem áður prýddu landar-
eignina. Litir eru dempaðir í glæsi-
legum búningum Filippíu I. Elís-
dóttur og í samspili við gráa viðar-
veggina fæst skýr tilfinning fyrir
forgengileika persóna. Þau birtast
okkur eins og fólk á svart/hvítum
ljósmyndum fyrri tíma, þrátt fyrir
að þau gætu verið persónur og leik-
endur dagsins í dag. Því miðað við
umfjöllunarefni leikritsins gæti það
hafa verið skrifað í gær.
Hvort sem litið er til Tsjekhovs,
Shakespeares eða grísku harmleikj-
anna minna leikbókmenntirnar okk-
ur á að mannlegt eðli hefur lítið sem
ekkert breyst á þeim tíma sem
manneskjan hefur byggt jörðina.
Þrátt fyrir ótrúlegar tækniframfarir
á umliðnum áratugum og öldum hef-
ur okkur sem manneskjum ekki tek-
ist að beisla breyskleika okkar.
Skortur á samkennd með öðrum,
græðgi og þröngsýni leiðir fólk
ítrekað í ógöngur – oft með skelfi-
legum afleiðingum fyrir fjöldann.
Við verðum að lifa í voninni
Ljósmynd/Grímur Bjarnason og Bjarni Grímsson
Borgarleikhúsið
Vanja frændi bbbbm
Eftir Anton Tsjekhov. Íslensk þýðing:
Gunnar Þorri Pétursson. Leikstjórn:
Brynhildur Guðjónsdóttir. Leikmynd:
Börkur Jónsson. Búningar: Filippía I.
Elísdóttir. Lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson. Tónlist: Bjarni Frímann
Bjarnason. Leikgervi: Elín Sigríður
Gísladóttir. Hljóð: Þórður Gunnar Þor-
valdsson. Leikarar: Arnar Dan Kristjáns-
son, Halldór Gylfason, Hilmir Snær
Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Katrín
Halldóra Sigurðardóttir, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Val-
ur Freyr Einarsson. Frumsýning á Stóra
sviði Borgarleikhússins 11. janúar 2020.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Sveiflur „Breyskleiki persónanna og
samspil við aðstæður fá áhorfendur auð-
veldlega til að sveiflast milli samúðar og
hláturs,“ segir í rýni um Vanja frænda.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is
Gott úrval af reimum í
snjósleða, bíla og fjórhjól.
reimar
í snjósleða, bíla og fjórhjól