Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 16.01.2020, Blaðsíða 80
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 Útsalaallt að 70% af völdum vörum LOTUS 3JA SÆTA með Golf NA 0566 bláu áklæði. L 217 x D 87 cm. Áður 99.900 kr. NÚ 49.950 kr. nú49.950 SPARaðu 49.950 Lotus KINGSTON HÆGINDASTÓLL með gráu áklæði. L 136 x D 113 cm. Áður 159.900 kr.NÚ 99.900 kr. 99.900 SPARaðu 60.000 COMO VEGGLJÓS svart með glærum kúpli. H 21,7 x L 33,5 cm. Áður 9.995 kr. Nú 7.495 kr. HYPE BORÐSTOFUSTÓLL Rautt velúr. Áður 29.900 kr. Nú 14.950 k 14.950 SPARaðu 14.950 22.425 SPARaðu 7.475 r. FASANO SÓFABORÐ Reyklituð eik. Svartir fætur. Ø 70 x H 40 cm. Áður 29.900 kr. Nú 22.425 kr. Fyrstu hádegistónleikar ársins í röðinni Á ljúfum nótum verða í dag í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þar hyggst dúettinn Singimar fara ótroðnar slóðir dúóformsins með spuna að leiðarljósi. Dúettinn skipa Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa og Ingi Bjarni Skúlason á píanó. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund. Singimar leikur í Frí- kirkjunni í hádeginu FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 16. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik, sem tapaði 18:24 fyrir Ungverjum í gær, mætir Slóveníu í fyrsta leik milliriðlakeppni Evrópu- mótsins í Malmö á morgun. Slóv- enar hafa unnið alla leiki sína á EM til þessa. Síðan er leikið við Portú- gal á sunnudag, Noreg á þriðjudag og loks við Svíþjóð á miðvikudag- inn kemur. »68-69 Mæta Slóvenum í Malmö á morgun ÍÞRÓTTIR MENNING Í tilefni af 10 ára afmæli Frystiklef- ans á Rifi ætlar Kári Viðarsson, í samstarfi við fjölmarga bakhjarla og velunnara, að gefa öllum sem eru með lögheimili í Snæfellbæ árs- miða sem gildir á alla viðburði árs- ins 2020. „Með þessu sendum við þakkir til samfélagsins,“ segir á Facebook-síðu Frystiklefans og bent á að þessi tímamótagjöf eigi sér enga hliðstæðu í íslenskri lista- eða menningarsögu. „Án ykkar mætingar og stuðnings væri starf okkar tilgangs- laust,“ er skrifað og lofað skemmtilegu ári með geggj- uðum lista- mönnum. Gefa íbúum ársmiða í tilefni af 10 ára afmæli Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Feðgarnir Sverrir Friðþjófsson, sem kallaður var Sveddi í skóla, og Sverrir Þór Sverrisson, sem gjarnan er nefndur Sveppi, fóru með kvik- myndagerðarmönnum í heimsreisu í fyrra, ferðalagið var tekið upp og verður sýnt í sex þáttum í Sjónvarpi Símans. Þáttaröðin heitir „Pabbi skoðar heiminn“ og verður fyrsti þátturinn sýndur 4. febrúar. Þetta er frumraun föðurins á hvíta tjaldinu en sonurinn hefur verið þar iðinn við kolann frá aldamótum. „Sverrir Þór sagði að ég héngi bara heima, nennti ekki að hreyfa mig, færi aldrei út og kominn væri tími til þess að dusta rykið af skónum, fara aftur með honum á Rolling Stones- hljómleika, sjá Tottenham spila eða gera eitthvað,“ segir Sverrir um að- draganda þáttanna. Hann segir að þessar tillögur hafi engu breytt í nokkur ár. „Þá varpaði Sverrir Þór fram þeirri hugmynd að ég gerði óskalista, skrifaði niður hvert ég vildi fara, hvað ég vildi gera, en ekk- ert varð úr því. Loks snerist umræð- an um að heimsækja nokkrar borgir, fara út fyrir Evrópu og Bandaríkin, sem ég hafði aldrei gert, og við ákváðum að fara í heimsreisu á fjór- um vikum.“ Gubbupest og kvíði Fimm manna teymi undir stjórn Kristófers Dignus, leikstjóra og handritshöfundar, ásamt feðgunum og Huga Halldórssyni og Birni Ófeigssyni, fór í ferðina í lok janúar í fyrra. Flogið var til Parísar og síðan í austurátt. Stoppað í um þrjá daga á hverjum stað, í Egyptalandi, Dubai, Indlandi, Taílandi, Japan, Hawaii, Los Angeles og Las Vegas. „Þetta var skrýtið,“ segir Sverrir. „Við vor- um alltaf með hljóðnema á okkur og spjölluðum um lífið og tilveruna, allt var tekið upp sem við sögðum og gerðum, þannig að í þáttunum kem- ur fram sitt lítið af hverju fyrir utan upplifunina á hverjum stað.“ Upplifunin var „stórkostlega skemmtileg“, eins og Sverrir orðar það. „Ekki er sérstaklega gaman á flugvöllum og að fara tíu sinnum upp í flugvél á mánuði er frekar lýjandi,“ segir hann. Leggur samt áherslu á að félagsskapurinn hafi verið góður og strákarnir léttir og skemmtilegir. „Við reyndum að passa okkur á að fara ekki út í vitleysu eins og amer- íska drauminn, ég var dreginn af báti og hékk í fallhlíf sem var tengd við hann með um 300 metra löngu reipi, fór á kaf í sjóinn, upp í hæsta rússíbana í heimi og ég veit ekki hvað. Ég er mjög lofthræddur og stundum var ég með gubbupest og kvíða fyrir því sem fram undan var en allt gekk vel. Ég man samt ekk- ert eftir rússíbanaferðinni í Tókýó niður braut sem er hærri en Hall- grímskirkjuturn.“ Frumraunin fyrir framan kvik- myndatökuvélina var auðveldari en Sverrir átti von á. „Ég lét hafa mig út í allt og treysti í blindni á Sverri Þór, elti bara og vissi oft ekki fyrr en ég var kominn út í tóma vitleysu. Hlutverkin hafa því snúist við, því þegar hann var gutti hljóp hann allt- af á eftir mér.“ Sverrir segir að nafnið á þáttaröð- inni sé þannig til komið að þegar barnabörnin hafi verið í heimsókn hafi hann gjarnan lesið bókina Helgi skoðar heiminn eftir Njörð P. Njarð- vík fyrir þau. „Þetta var vinnuheiti til að byrja með en það festist við.“ Pabbi skoðar heiminn Ljósmyndir/Kristófer Dignus Í Egyptalandi Sverrir Friðþjófsson og Sverrir Þór skoða píramída.  Heimsreisa feðganna sýnd í sex þáttum í Sjónvarpi Símans Dubai Feðgarnir hvíla lúin bein og leggja á ráðin í sandinum heita.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.