Morgunblaðið - 08.01.2020, Side 1
BÍÓHÚSIN FINNA ALLTAFTAKTINNVINNA ENNMEIRI OLÍU
r risaskjár frá Samsung fær hjartað til að slá talsvert örar. 4
Norðmenn hafa tekið í notkun nýja
risaolíulind í Norðursjó en sitt sýnist
hverjum um þau umsvif. 14
VIÐSKIPTA
4
Ný
Streymisveiturnar munu ekki leggja bíóhúsin að velli
frekar en VHS-spólurnar eða DVD-diskarnir
gerðu á sínum tíma, segir Alfreð Ásberg.
MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2020
Fjármögnun hótelturns í vinnslu
Atli Kristjánsson, framkvæmdastjóri félagsins
S26 hótel, segir að með samþykkt deiliskipu-
lags vegna uppbyggingar 17 hæða hótels á
Skúlagötu 26 í Reykjavík sé hægt að ljúka
ýmsum þáttum, svo sem aðalteikningum og
fjármögnun verkefnisins. Framkvæmdum við
fyrsta áfanga, eða kjallarann, miði vel.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær er
stefnt að opnun hótelsins á næsta ári. Það
verður með 203 herbergjum og rekið undir
merkjum Radisson RED-keðjunnar.
Almennt er miðað við að hótelherbergi í
miðborginni kosti 25-45 milljónir. Miðað við
miðgildið kostar hótelið um 7 milljarða. Atli
segir aðspurður þetta heppilegan tíma til að
ráðast í slíkar framkvæmdir. Slaki sé á bygg-
ingarmarkaði og útlit fyrir að fjöldi ferða-
manna verði nokkuð stöðugur og þeir orðnir
eitthvað fleiri þegar hótelið verður opnað síðla
árs 2021. Horft sé til vaxtar hjá Icelandair
m.v. fréttir þaðan og aukins framboðs á flugi
til landsins. Radisson RED sé gríðarlega
sterkt vörumerki og fleiri slík hótel verða opn-
uð um allan heim sem komi til viðbótar þeim
sem nú þegar séu opin og hafi gengið vel. Ef
fram haldi sem horfir muni ferðamönnum frá
Asíu fjölga hlutfallslega mest, einkum Kína.
Breytt forgangsröðun á ferðalögum
Atli segir breytta forgangsröðun fólks á
ferðalögum ásamt nýjum kynslóðum eiga þátt
í meiri fjölgun 3ja og 4ja stjörnu hótela en 5
stjörnu hótela undanfarin misseri. Þ.e.a.s. ef
miðað sé við hefðbundna stjörnugjöf. Gæðin
að baki stjörnugjöfinni geti enda verið mis-
jöfn.
„Ferðamenn eru farnir að horfa meira til
vörumerkja og þess sem þau standa fyrir en
hefðbundinnar stjörnugjafar. Teikn eru á lofti
um að slík þróun muni halda áfram. Radisson
RED-keðjan er einnig vel sótt af fólki í við-
skipta- og atvinnulífinu sem ferðast mikið
vegna starfsins og við sjáum mikil tækifæri í
rekstri veitingastaðar og þakbars á hótelinu.“
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Miðað við meðalverð á nýju hótel-
herbergi í miðborginni gæti hótel-
turn Radisson RED á Skúlagötu
kostað um sjö milljarða króna.
Unnið er að fjármögnun hótelsins.
Teikning/Kettle Collective
Rautt vitaljós á Radisson
Red-hótelinu mun vísa í vitann
sem Vitastígur er kenndur við.
Ókyrrð er kannski það orð sem kem-
ur helst upp í hugann þegar litið er
til ferðaþjónustunnar og hafa áskor-
anir Heimnsferða verið talsverðar
undanfarin misseri.
Meðal annars olli fall Primera Air
haustið 2018 talsverðu fjárhagslegu
tapi fyrir ferðaskrifstofuna eða um
770 milljónum króna. Um sumarið
bað flugfélagið ferðaskrifstofur um
að greiða flug fyrirfram í meira mæli
en venjan er, en þá var félagið að
glíma við erfiða fjárhagsstöðu.
Tómas J. Gestsson, framkvæmda-
stjóri Heimsferða, segir starfsfólk
ferðaskrifstofunnar hafa unnið þrek-
virki þegar aðstæður kölluðu á hröð
viðbrögð. Þá hafi tekist að leysa úr
flestum vandamálum sem hafa skot-
ið upp kolli að undanförnu.
Fjárfest í hugbúnaði
Framkvæmdastjórinn lítur fram-
tíð ferðaskrifstofunnar björtum aug-
um og telur hið mikla úrval sem
fylgir bókunarsíðum á netinu ekki
endilega veita neytendum aðgang að
hagstæðasta verðinu.
Þá sé gífurleg samkeppni á mark-
aði og stefnt að því að félagið dragi
aðeins úr leigufluginu og að rekst-
urinn verði nútímavæddur, að sögn
Tómasar.
„Við erum búin að eyða töluverð-
um fjárhæðum í hönnun á öflugu
bókunarkerfi og við erum að fara að
tengjast flugfélögum til þess að
hægt verði að bóka pakka, flug og
gistingu. […] Markmiðið er að auka
okkar þátt með áætlunarfluginu til
þess að geta boðið meiri
tíðni og fleiri áfangastaði.“
Heimsferðir sækja fram á markaðnum
Morgunblaðið/Eggert
Tómas J. Gestsson segir álagningu í
ferðaiðnaðinum mjög lága.
Framkvæmdastjóri Heims-
ferða segir aðhaldssaman
rekstur forsendu þess að
geta boðið lágt verð.
8
Starfsfólk EY óskar þér og þínum
gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
ey.isEndurskoðun | Skattar | Ráðgjöf
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
EUR/ISK
8.7.‘19 7.1.‘20
145
140
135
130
125
141,8
137,2
Úrvalsvísitalan
2.200
2.100
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
8.7.‘19 7.1.‘20
2.042,74
2.131,33