Morgunblaðið - 03.01.2020, Page 16
F
yrir fjórum eða fimm árum fór
ég á skriðsundsnámskeið fyrir
fullorðna sem breytti lífi mínu
til batnaðar. Námskeiðið var á veg-
um KR og haldið í Vesturbæjarlaug.
Kennarinn hét og heitir Halldór og er
mikill meistari. Ég kunni svo sem
skriðsund en undir handleiðslu Hall-
dórs náði ég góðum tökum á því og
hef synt það með stæl allar götur
síðan. Bringusund er auðvitað bæði
asnalegt og leiðinlegt og baksund
ætti að vera ólöglegt, í það minnsta í
almenningslaugum. Skriðsund er
bæði list og íþrótt. Mér finnst gaman
og krefjandi að synda það og ég get
endalaust pælt í því, lært af öðrum
og bætt mig. Það er hrein unun að
horfa á fólk synda fallegt skriðsund –
og kvöl og pína að sjá það synt illa.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Rithöfundurinn
Stefán Máni er
snillingur í að
synda eftir
námskeið í
þeim efnum.
„Kvöl og pína að
sjá fólk synda illa“
Rithöfundurinn Stefán Máni segir að fyrir nokkr-
um árum hafi hann farið á námskeið sem hafði
töluverð áhrif á líf hans og hefur enn í dag.
Elinrós Líndal | elinros@mbl.is
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020
É
g hef farið á mörg góð námskeið
sem hafa bætt líf mitt, allt frá
Myndlistarskólanum í Reykjavík
sem ég sótti reglulega í tíu ár í
bernsku til hugleiðslunámskeiða í
Oxford og NewYork-ríki undanfarin ár.
En eitt námskeið sker sig úr því það hvatti
mig svo mikið og gaf mér „leyfi“ til að láta
drauma mína rætast og vera ég sjálf og
minnir á hvað jákvæðar fyrirmyndir eru
mikilvægar. Fyrir um tuttugu árum var ég í
fæðingarorlofi en fékk pössun til að fara á
námskeið hjá miðaldra bandarískri konu sem
sérhæfði sig í að þjálfa fólk í að koma fram
og tjá sig af öryggi. Hún þorði svo vel að
taka sitt pláss, þaut um salinn með krafti og
útgeislun og miðlaði af reynslu sinni og þjálf-
aði fólk í að koma fram af öryggi. Ég sá
þarna flotta fyrirmynd. Ég var dregin út og
vann kennslubókina hennar og fór í fram-
haldinu að sækja mér meiri og meiri þekk-
ingu á þessu sviði og er í dag sjálf orðin mið-
aldra kona; vinn við þetta og hef skrifað bók
um örugga tjáningu og betri samskipti.
Starfa í dag sem stjórnendaþjálfari og há-
skólakennari á Bifröst og þetta er mitt svið
og ég nýt þess að hvetja fólk til að taka sitt
pláss og leyfa sér að skína og vera öruggt.“
„Þaut um salinn með krafti og útgeislun“
Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona er þaulvön að halda fyrirlestra og námskeið.
Hún man eftir námskeiði sem hún sótti sjálf sem hafði meiri áhrif á hana en önnur.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Sirrý Arnardóttir segir
mikilvægt að taka sér pláss
og vera sá sem maður er.
TJARNARBÍÓ|LAUGARDAG 8. FEB.|12-16
Fulltrúar frá eftirtöldum skólum verða til viðtals:
ARTS UNIVERSITY BOURNEMOUTH • CAMBERWELL COLLEGE OF ARTS • CENTRAL SAINT
MARTINS • CHELSEA COLLEGE OF ARTS • LONDON COLLEGE OF FASHION • LONDON
COLLEGE OF COMMUNICATIONS • WIMBLEDON COLLEGE OF ARTS • ISTITUTO EUROPEO
DI DESIGN - ITALY & SPAIN • EU BUSINESS SCHOOL - BARCELONA - GENEVA - MUNICH.
Einnig verður kynnt nám hjá;
THE LIVERPOOL INSTITUTE FOR PERFORMING ARTS• LEEDS ARTS UNIVERSITY • ATELIER
CHARDON SAVARD - BERLIN • MACROMEDIA UNIVERSITY - BERLIN & HAMBURG.
12:00-13:00 Örnámskeið “Portfolio Preparation”.
13:00-15:00 Reynslusögur; Fyrrverandi nemar segja frá.
13:00-16:00 „Maður á mann”. Viðtöl við fulltrúa skóla.
Aðgangur
ÓKEYPIS