Morgunblaðið - 03.01.2020, Page 21
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 21
É g var ekki mjög sterkur ídönsku sem er sérstaklegaleiðinlegt af því pabbi minn
er dönskukennari. Í seinni tíð hef
ég oft óskað þess að ég hefði tekið
betur utan um það, svona bæði
fyrir hann og sjálfan mig,“ segir
Reynir Lyngdal plötusnúður og
leikstjóri síðasta áramótaskaups
en þrátt fyrir slakan árangur í að
bera fram röðgröð með flöðe er
ekki hægt að segja að skólagang-
an hafi ekki gagnast leikstjór-
anum.
„Tímarnir í ljósmyndun hjá
Halldóri Þórðarsyni og mynd-
bandagerð hjá Marteini Sigur-
geirssyni lögðu grunninn að fram-
tíðarstarfi mínu, því sem ég fæst
við í dag,“ segir Reynir sem var
öll sín grunnskólaár í Hvassaleit-
isskóla.
„Þetta er í minningunni alveg
yndislegur skóli. Lítill og öruggur
og vel haldið utan um krakkana. Á
síðustu árum, og eftir því sem ég
hugsa meira út í það, þá ber ég
alltaf meiri og meiri virðingu fyrir
kennurum. Þetta starf er bæði
erfitt, vanþakklátt og gefandi í
senn og mig grunar að við, sem
samfélag, pælum bara ekki nógu
mikið í því hversu mikil áhrif og
ábyrgð kennarar hafa og hvernig
launin þeirra ættu auðvitað að
vera í samræmi við það, sem þau
eru ekki eins og allir vita.“
Merkilegt nokk segist Reynir
muna eftir öllu því fólki sem
kenndi honum á grunnskóla-
árunum en uppáhöldin hans í
Hvassaleitisskóla voru þau Bára
Brynjólfsdóttir, Guðrún Gísladótt-
ir, Halldór Þórðarson og síðast en
ekki síst Hafliði Kristinsson
ensku- og umsjónarkennari.
„Ég gleymi því aldrei þegar
Hafliði lét okkur þýða textann við
lagið Hotel California með Eagles.
Okkur fannst þetta svo hallæris-
legt að við ætluðum að kafna,
enda hlustuðum við nánast ein-
göngu á teknó og einhverja reif-
tónlist en þegar ég heyri þetta lag
í dag bregst það ekki að ég hækka
allt í botn og hugsa til hans Haf-
liða.“
Morgunblaðið/Ómar
Þýddi textann úr
Hotel California
á íslensku og
ætlaði að kafna
„Okkur fannst
þetta svo hallær-
islegt að við ætl-
uðum að kafna,
enda hlustuðum
við nánast ein-
gögnu á teknó og
einhverja reif-
tónlist en þegar ég
heyri þetta lag í
dag bregst það ekki
að ég hækka allt í
botn og hugsa til
hans Hafliða.“
Reynir Lyngdal
Er kominn tími til
að gera eitthvað?
Styrkleikar
Þátttakendur fá tækifæri til að greina helstu styrkleika sína
og skoða leiðir til að nýta þá betur í daglegu lífi.
Rannsóknir benda til þess að aukin meðvitund um helstu
styrkleika okkar auki vellíðan okkar.
Bókhald, Excel og tölvubókhald
Farið er yfir grundvallaratriði og hugtök í bókfærslu og bókhaldi
fyrirtækja og einstaklinga. Þátttakendur læra færslu bókhalds
frá grunni og því ekki gert ráð fyrir forþekkingu og námskeiðið
nýtist einnig þeim sem hafa ákveðinn grunn fyrir.
ÚFF - Úr frestun í framkvæmd
Farið yfir ástæður frestunar, einkenni og afleiðingar. Fyrir
þá sem vilja hætta að fresta og fara að ná árangri í lífinu.
Jákvæð sálfræði
Almenn umfjöllun um jákvæða sálfræði og hvernig hún tengist
andlegri heilsu og vellíðan.
Í fókus - að ná fram því besta með
ADHD
Eykur skilning á ADHD (athyglisbresti/ofvirkni) og hvernig er
hægt að ná betri tökum á einkennum ADHD í daglegu lífi.
Næstu námskeið í boði hjá Hringsjá
Ég heiti
Svala Breiðfjörð
Arnardóttir
Ég er löggiltur bókari
hjá Hringsjá náms-
og starfsendur-
hæfingu.
Ég var nemandi í
Hringsjá náms- og
starfsendurhæfingu.
„Hringsjá breytti lífinu til hins betra.
Í dag er ég í draumastarfi og elska
að vakna á morgnana.“
Hringsjá býður úrval af öðru-
vísi og spennandi námskeiðum
sem hafa hjálpað mörgum að
komast aftur eða í fyrsta sinn
af stað til meiri virkni, meiri
lífsgæða og fleiri valkosta í
námi eða starfi.