Morgunblaðið - 03.01.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 03.01.2020, Qupperneq 25
FÖSTUDAGUR 3. JANÚAR 2020 MORGUNBLAÐIÐ 25 e iin n á lú ð u ri n n Ó lafur Freyr hefur lært söng í fimm ár í Söngskólanum í Reykjavík. Markmið hans með náminu er að leggja sönginn fyrir sig í framíðinni. Í dag starfar hann sem sölufulltrúi á Borg fasteignasölu. „Það yrði frábært ef ég næði að hafa lifi- brauð af söng einn daginn. Það er markmið flestra sem læra söng að mínu mati.“ Er Söngskólinn góður fyrir það markmið? „Söngskólinn í Reykjavík gefur manni mjög góðan grunn til þess að halda áfram. Það sést best á öllum þeim frábæru söngvurum sem hafa stundað söngnám við skólann og gera það gott í dag. Það er ótrúlegur mannauður í þeim kennurum sem eru við skólann og þeir leggja mikið upp úr því að miðla sinni reynslu og þekkingu til nemenda. Það einkennir andann í skólanum hvað kennurum er annt um að nem- endur taki framförum og gangi vel í náminu.“ Hvað er á döfinni tengt sýningum á næst- unni? „Nú standa yfir æfingar á hinum geysi- vinsæla söngleik „Fiðlarinn á þakinu“. Sýn- ingar verða í Tjarnarbíói dagana 8. og 9. febr- úar. Þetta er sérlega spennandi verkefni þar sem við fáum að njóta þess að hafa hljómsveit skipaða fagfólki. Stór hópur nemenda úr öllum deildum skólans tekur þátt í sýningunni.“ Hvert verður þitt hlutverk í verkinu? „Ég fer með hlutverk Tevye sem er aðal- hlutverkið í verkinu. Hann er margslungin per- sóna, svolítið geggjaður en mikill hugsuður og heimspekingur. Tevye og Golda, kona hans, eru blessuð með fimm dætrum og fátækt- arbasli. Sögusviðið er lítið þorp í Rússlandi rétt eftir aldamótin 1900 og segir frá siðvenjum og lífsbaráttu gyðinga þess tíma. Söngleikurinn er skemmtilegur og hnyttinn en þó er alltaf stutt í alvarleika þeirra hörmunga sem gyðingar urðu fyrir. Það má segja að sögupersónur söngleiks- ins takist á við erfiðleika lífsins með brosi á vör og jákvæðni að vopni. Sagan á heldur betur við málefni líðandi stundar því hún snertir á að- skilnaði mismunandi þjóðfélagshópa eftir kyn- þætti, venjum og hugmyndum.“ Hverjir koma að því? „Leikstjóri sýningarinnar engin önnur en Þórhildur Þorleifsdóttir sem vart þarf að kynna fyrir fólki. Eins fáum við að njóta leið- sagnar danshöfundarins Chantelle Carey sem hefur t.a.m. starfað við Borgarleikhúsið og Þjóðleikhúsið. Við nemendurnir erum ótrúlega þakklát að fá að læra af reynsluboltum og fólki sem hefur slegið í gegn í faginu. Tónlistar- stjórar eru þau Hrönn Þráinsdóttir og Sig- urður Helgi Oddsson.“ Hvað gerist innra með þér þegar þú ert á sviði að syngja? „Það er erfitt að lýsa því hversu góð tilfinn- ing það er þegar maður stendur á sviði, í kar- akter og vel gengur. Mér líður eins og ég geti gert allt.“ Ertu sammála því að menning og list sé eitt- hvað sem allir eiga að finna sér farveg að fást við með einum eða öðrum hætti? „Það er mikill sannleikur að þátttaka í menningum og list nærir anda og sál.“ Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að syngja? „Ég söng mikið sem barn og unglingur en hafði aldrei ætlað mér að læra söng. Ég var í kór í menntaskóla og tók m.a. þátt í Jesus Christ Superstar með stórsöngvaranum Ey- þóri Inga Gunnlaugssyni sem var þá bara krakki eins og ég.“ Hvernig vissir þú að þú hefðir hæfileika á þessu sviði? „Mér var sagt í menntaskóla að ég ætti að læra söng en ég ætlaði mér aldrei að læra að syngja. Eftir nokkurra ára hlé frá tónlist þá söng ég með vini tvísöng í veislu. Eftir sönginn var ég óvænt dreginn í Óperukórinn í Reykja- vík undir stjórn Garðars Cortes. Ég man sér- staklega eftir því að Garðar hafði ekki mikla trú á að ég sem óreyndur söngvari gæti þrauk- að í kórnum en hann var tilbúinn að gefa mér tækifæri. Ég mætti því á æfingar og beið eftir því að Garðar myndi senda mig heim. Sá dagur kom aldrei og eftir eitt ár í kórnum var mér boðið að skrá mig í Söngskólann í Reykjavík. Það var mikið heillaspor sem ég er þakklátur fyrir.“ Hver er uppáhaldssöngkennari þinn og af hverju? „Egill Árni Pálsson tenór. Ég hef lært hjá Agli síðan ég byrjaði söngnám. Þó verð ég að minnast á að í skólanum eru svokallaðar opnar deildir þar sem nemendur koma fram og syngja fyrir aðra kennara svo maður fær til- sögn frá mörgum öðrum t.d. Garðari Cortes, Ólöfu Kolbrúnu, Kristni Sigmundssyni og Bergþóri Pálssyni svo einhverjir séu nefndir. Einnig koma erlendir gestakennarar svo þetta er gróskumikið nám.“ Langar að lifa á söngnum í framtíðinni Ólafur Freyr Birkisson bass-barí- tón er nemandi við Söngskólann í Reykjavík. Hann stefnir að því að leggja sönginn fyrir sig í framtíðinni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ólafur Freyr Birkisson segir að Söngskólinn í Reykjavík gefi góðan grunn fyrir framhaldsnám.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.