Morgunblaðið - 04.02.2020, Side 8

Morgunblaðið - 04.02.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020 Það er rétt athugað hjá Páli Vilhjálmssyni að undarlegt virðist að Ísland hengi sig aftan í Norðmenn varðandi samninga okkar við Breta.    Á þriðja ár hefurríkisvaldið stært sig af því í fréttum að íslensk yfirvöld hafi sett verulegt fé og mannafla til að undirbúa viðræður sínar og við- brögð tækist Bretum að hlíta fyr- irmælum þjóðar sinnar um að koma ríkinu út úr ESB. Það mátti engu muna.    Á útgöngudegi sögðu for-ráðamenn baráttunnar: „Þetta tókst með herkjum af því að við vorum nægjanlega stórir og öflugir til að láta ekki ofureflið berja þjóð- arviljann niður“.    Þetta minnir á hvernig hefði far-ið fyrir okkur sem réðum ekki einu sinni við mál eins og orku- pakkann.    Páll Vilhjálmsson skrifar: „Efþað er rétt, sem má skilja af meðfylgjandi frétt, að Ísland og Noregur ætli að semja sameigin- lega við Bretland um fríverslun þýðir það í raun að Ísland verður gísl norskra hagsmuna.    Í EES-samningnum er Ísland núþegar hertekið norskum hags- munum, sbr. 3. orkupakkann.    Ísland á vitanlega að semja beintvið Bretland en ekki í gegnum Noreg/EFTA.    Katrín forsætis hlýtur að munaað Gamli sáttmáli féll úr gildi á 19. öld.“ Páll Vilhjálmsson Aftur í tjóðri STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hver höfuðborgarbúi notar að jafn- aði 140 lítra af köldu vatni á dag. Er þetta svipað og í löndum Evrópu og þó heldur í lægri kantinum því heim- ildir benda til að notkunin sé al- mennt á bilinu 110 til 260 lítrar. Kemur þetta fram í skýrslunni Heimilisnotkun á neysluvatni sem Veitur birta á vef sínum. Niðurstöð- urnar grundvallast á mælingum á því hvað Vatnsveita Hafnarfjarðar dælir miklu vatni inn í Áslandshverfi í Hafnarfirði. Fara á fætur á milli kl. 6 og 8 Rennsli er misjafnt á milli tíma dags eins og gefur að skilja og gefur vísbendingar um lífsmynstur íbú- anna. Rennsli er í lágmarki um há- nóttina. Á virkum dögum fara lang- flestir á fætur á milli klukkan sex og átta á morgnana og er notkun vatns stöðug yfir daginn eða þar til kvöld- matartími nálgast. Þá eykst notkun- in mikið og helst þannig fram eftir kvöldi. Sá toppur er þó ekki jafn skarpur og morguntoppurinn sem bendir til að fjölskyldurnar borði ekki kvöldmat á sama tíma. Fólk fer talsvert seinna á fætur um helgar og sumir lúra enn lengur. Þeir fyrstu vakna upp úr klukkan átta en notkunin nær hámarki um hádegið. helgi@mbl.is Notum 140 l af köldu vatni á dag  Vatnsnotkun kemur upp um lífsmynst- ur okkar  Morguntoppurinn skarpastur Morgunblaðið/Heiddi Buna Mikið vatn fer um heimili landsmanna á hverjum degi. „Flensan er komin og einkenni hennar nú eru þau að fólk verður oft mikið veikt og illa haldið, jafnvel meira en við höf- um séð undan- farin ár,“ segir Óskar Reykdals- son, læknir og forstjóri Heilsu- gæslu höfuðborg- arsvæðisins. Margir hafa leit- að á heilsugæslu- stöðvar og Læknavaktina síðustu daga vegna dæmigerðra einkenna inflú- ensu, sem gjarnan byrjar í nóv- ember og nær jafnan hámarki í febr- úar og mars. Einkenni vetrarinflúensunnar eru hár hiti, beinverkir og höfuðverkur og stundum kvef. „Mikilvægt er að drekka nóg og yfirleitt eru algengustu verkjalyf til bóta. Þegar einkenni flensunnar réna fá sumir kvef og hálsbólgu, sem við getum sagt að séu batamerki,“ segir Óskar. Gengur yfir á 3-5 dögum Einkennin byrja snögglega. Hjá flestum ganga veikindin yfir á þrem- ur til fimm dögum og verði fólk ekki þeim mun verr haldið eða veikindin langvarandi þykir ástæðulaust að leita til læknis. Þess má geta að ælu- pest er alltaf í gangi á þessum tíma og það reynist mörgum fjölskyldum erfitt. Bólusetning gegn flensunni gefur oft góða raun og virkar alveg þar til fólk hefur tekið veikina. Ekki er nákvæmlega fært til bókar hjá heilsugæslunni hve margir koma þangað vegna flensu eða annarra umgangspesta, en álagið hefur klár- lega aukist. „Allt að þriðjungur barna fær flensu á veturna en það er í skól- anum sem þau smitast og bera veir- una svo áfram í fullorðna fólkið. Við höfum fengið fleiri sjúklinga en venjulega í daglega móttöku á heilsugæslustöðvunum,“ segir Ósk- ar Reykdalsson. sbs@mbl.is Vond vetrarflensa  Mikil veikindi einkennin nú  Álag er á heilsugæslu og Læknavaktinni Morgunblaðið/Hari Mannlíf Um þriðjungur barna fær flensu og mörg smitast í skólanum. Óskar Reykdalsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.