Morgunblaðið - 04.02.2020, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 04.02.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020 FYRIR HÚÐ OG HÁR Omega3 SKIN er sérstaklega smíðuð til að viðhalda heilbrigðri húð og gljáa. Hylkin innihalda m.a. omega3 fitusýrurnar EPA og DHA og sjávar kollagen. www.lysilife.is F æ st í a p ó te k u m NÝ TT FRÁ LÝ S IF Y R IR H ÚÐ OG H Á R NÝTT SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR 15% AUKA AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM 2 FYRIR 1 AF ÖLLUM ÚTSÖLU BRJÓSTAHÖLDUM & F á k a f e n i 9 1 0 8 R e y k j a v í k Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Verðhrun á útsöluvörum Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Um áramótin varð sú breyting hjá Þjóðskrá Íslands að hún hætti að taka við beiðnum um skráningu í trú- og lífsskoðunarfélög sem berast á pappír fyrir milligöngu trú- og lífs- skoðunarfélaga. Vakin er athygli á þessari breyt- ingu á vef þjóðkirkjunnar, kirkjan.is. Nú fari sú skráning aðeins fram með rafrænum hætti. Þetta þýði jafn- framt að einstaklingarnir sjálfir þurfi að óska eftir skráningu í trú- og lífsskoðunarfélag með því að senda inn rafræna beiðni um slíkt. Ljóst sé að skráning í trúfélag (eða lífsskoðunarfélag) eða ósk um breytingu á skráningu fari ekki lengur fram fyrir milligöngu presta eða forstöðumanna trú- og lífsskoð- unarfélaga. „Einstaklingarnir sjálfir sjá um það eða foreldrar þeirra og for- ráðamenn þegar um börn er að ræða – og það með rafrænum hætti. Fólk getur líka sjálft komið í afgreiðslu Þjóðskrár og tilkynnt skráninguna og framvísað þá löggiltu skilríki.“ Þegar foreldrar barns eru giftir eða skráðir í sambúð við fæðingu barns og eru í sama trúfélagi (eða lífsskoðunarfélagi) eða utan trú- félaga, er barnið skráð með sama hætti og foreldrarnir, segir kirkj- an.is. Séu foreldrarnir sitt í hvoru fé- laginu eða bæði utan trúfélaga er barnið skráð í það sem heitir ótil- greint trúfélag. Ef foreldrar barns eru ekki giftir eða í skráðri sambúð þegar barn fæðist er barnið skráð í sama trú- félag (eða lífsskoðunarfélag) og móð- irin á meðan hún fer ein með forsjá barnsins. Staða fermingarbarna í vor Minnt er á að sé barn á aldrinum 12-15 ára ekki skráð í þjóðkirkjuna þarf að leita álits þess á því áður en til skráningar kemur. „Þetta kemur eflaust upp hjá ein- hverjum fermingarbörnum á kom- andi vori því að þau þurfa að vera skírð – og helst skráð í þjóðkirkjuna áður en til fermingar kemur,“ segir í fréttinni. Þjóðskrá heldur ekki sérstakt fé- lagatal trú- eða lífsskoðunarfélaga heldur er aðeins um að ræða skrán- ingu af hennar hálfu á því hvert sóknargjöldin skuli renna lögum samkvæmt. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ferming Athuga þarf stöðu fermingarbarna fyrir fermingarnar næsta vor. Prestarnir sjá ekki lengur um að skrá börnin í trúfélög  Skráning fer aðeins fram með raf- rænum hætti  Breyting hjá Þjóðskrá Í gær, mánudaginn 3. febrúar, tóku sæti á ný á Alþingi þeir ellefu al- þingismenn sem hurfu af þingi fyr- ir rúmri viku vegna fundahalda í útlöndum. Þingmennirnir eru: Guðjón S. Brjánsson, Silja Dögg Gunn- arsdóttir, Lilja Rafney Magn- úsdóttir, Birgir Þórarinsson, Kol- beinn Óttarsson Proppé, Guðmundur Ingi Kristinsson, Bryndís Haraldsdóttir, Oddný G. Harðardóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Halla Signý Krist- jánsdóttir og Rósa Björk Brynjólfs- dóttir. Viku þá varamenn þeirra af þingi, þau Arna Lára Jónsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir, Bjarni Jónsson, Elvar Eyvindsson, Eydís Blöndal, Jónína Björk Óskars- dóttir, Karen Elísabet Halldórs- dóttir, Njörður Sigurðsson, Olga Margrét Cilia, Stefán Vagn Stef- ánsson og Una Hildardóttir, að því er fram kemur á vef Alþingis. Þingmennirnir komnir heim frá útlöndum ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS Rangt nafn í minningargrein Í minningargrein sem Jón Baldvin Hannibalsson ritaði um Halldór Hermannsson og birtist sl. laug- ardag var rangt farið með nafn Kristínar Svanhildar Helgadóttur og var hún kölluð Kristjana. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. LEIÐRÉTT Fyrsti formlegi eggja- og sæðis- banki á Íslandi hefur störf í þessum mánuði. Markmiðið er að auka möguleika barnlausra para og einstaklinga á að eignast barn. Fyrir þau sem þurfa gjafaegg eða -sæði til að verða þunguð munu fleiri gjafar stytta biðina, og fjöl- breytileiki er tryggður með góðri samvinnu við systurbankann í Sví- þjóð, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Livio Ísland sem er hluti af norrænu samsteypunni Livio. Notkun eggja- og sæðisgjafa hef- ur tíðkast lengi á Íslandi. Sæðisgjöf hefur verið notuð frá 1991, en ein- ungis með sæðisgjöf frá Danmörku. Eggjagjöf hefur verið notuð frá 1998, með íslenskum gjöfum. Fyrsti formlegi eggja- og sæðisbankinn á Íslandi opnar fyrir gjafir í þessum mánuði Livio Ísland Helga Sól Ólafsdóttir er um- sjónarmaður eggja- og sæðisbankans. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.